Heima er bezt - 01.03.1982, Blaðsíða 16

Heima er bezt - 01.03.1982, Blaðsíða 16
frá þeim inn í fjarðabotna. Þessar töl- ur segja oss, hve dreifð byggðin var og erfitt um samgöngur og öll samskipti, því að milli byggðanna var óbyggilegt með öllu og ófært nema á sjó. Meðal annars gengur mikill, breiður og tor- fær skriðjökull fram í sjó á milli þeirra á einum stað, Frederikshábs Isblink. Ekkert er kunnugt um hvort báðar byggðirnar hafa verið numdar sam- tímis, en ekki er ólíklegt að Eystri byggðin hafi verið numin fyrst, og síðan tekið til við landnám Vestri byggðar þegar fólkinu fjölgaði, og nýir landnemar bættust i hópinn frá íslandi. En margt getur bent til þess að Vestri byggðin hafi alltaf verið laus tengd við megin byggðina, að vísu hefir sjóleiðin verið greiðari norður eftir en með ströndum Eystri byggðar vegna ísreksins, þótt sá munur hafi sennilega verið minni í fomöld en nú. Sóknin til Norðursetu hefir verið léttari frá Vestri byggð, enda þótt 600-700 km séu frá Nuuk norður að Diskó, en rúnasteinn með nöfnum grænlenskra manna hefir fundist um 400 km norðar en Diskó og sýnir það, að örugglega hafa Grænlendingar sótt svo langt til veiða. Fornar heimildir segja, að 190 bæir væru í Eystri byggð en 90 í hinni Vestri. Fundist hafa rústir af um 300 býlum, en enginn veit hvort þau hafa nokkru sinni verið öll samtímis í byggð, og er það raunar fremur ósennilegt. Innan byggðanna sjálfra var viða strjálbýlt, einkum þó um sunnanverða Eystri byggð, en í bestu sveitunum t.d. við Eiríksfjörð og Einarsfjörð ásamt Vatnahverfi ekki strjálbýlla en víða í íslenskum sveit- um. Hins vegar veldur landslag því, að ekki sést milli bæja á mörgum stöðum. Svo virðist sem jafn þéttbýlla hafi verið í Vestri byggð eða líkt því sem þéttast var í hinni eystri. Ljóst má vera, að strjálbýli og samgönguerfið- leikar hafa verið hinu litla samfélagi fjötur um fót. Eins og þegar sagði hafa fundist minjar 300 bæja alls í báðum byggð- um, þegar þær stóðu í blóma. Óvar- legt er að ætla, að miklu meira en 10 manns hafi verið á bæ til jafnaðar, og fólkstalan verið þá um 3.000. Munu flestir, sem málið hafa kannað, vera á einu máli um að hámarkstalan hafi verið 3.000-4.000 manns. Fjarri öllum sanni er getgáta Jóns Dúasonar, að Grænlendingar hinir fornu hafi verið 8-9.000 eða jafnvel fleiri. Þegar rætt er um örlög þjóðarinnar skulum vér hafa í huga hve fámenn hún hefir ætíð verið, jafnvel þegar best lét. Af heimildum má ráða, að byggðin hefir staðið í blóma í a.m.k. þrjár ald- ir, eða allt þangað til landið játaði Noregs konungi skatt, sem gerðist um sama leyti og íslendingar gengu undir vald Noregs konungs. Raunar er eng- in þörf ritaðra heimilda til að sýna að víða hefir verið búið stórt. Rústir fomaldarbæjanna eru þar óvefengjanleg vitni. Má þar nefna Brattahlíð, Garða, Undir Höfða og Hvalsey, Fjós Garðabiskups rúmuðu 100 nautgripi, og víðar má sjá minjar um stór kúabú. Minna verður ráðið af stærð fjárhúsa, en sauðfé hefir vafa- laust gengið að mestu úti, og geldneyti líka, og jafnvel mjólkurkýr, meðan skógar voru nægir og land frjósamt af alfriðun áður en menn komu til sögunnar. En auðvitað hafa þar einnig verið kotbæir, svo sem sagt er um bæ Gamla og Grímu í Fóstbræðra sögu, en hann stóð inni í Eiríksfjarð- arbotni. Ef rétt er til getið um tóttir þær, sem fornleifafræðingarnar telja að verið hafi útibúr, hafa það verið myndarleg hús, sem geyma mátti í gnótt matar. Má þar nefna til tóttina á Stokkanesi, þar sem sagan segir að Þormóður Kolbrúnarskáld væri geymdur. Grænlendingar hafa kunnað vel til húsagerðar og ekki verið smátækir, og sýnilega staðið íslendingum framar að mörgu leyti í þeim efnum. Þeir hafa mjög notað grjót í húsveggi, enda er grænlenska grjótið víða mjög vel fallið í hleðslusteina, má þar einkum nefna sandstein þann, sem kenndur er við Igaliko (Garða), sem víða fæst í Eystri byggð. Gegnir furðu hvílíkum stórbjörgum þeir hafa komið fyrir í veggjum, skipta þau sums staðar smálestum á þyngd. Þurft hefir bæði krafta og verkkunnáttu, meiri en gerðist hér á landi, til að koma þeim fyrir. Hvalseyjarkirkja er órækasta vitnið um hleðslulist þeirra t.d. hinn bogadregni kórgluggi, en veggir kirkjunnar standa óhaggaðir að mestu enn í dag. Þar og raunar víðar má sjá, að þeir hafa kunnað að nota steinlím. Sennilega hefir torfi eða mold verið hlaðið utan að veggjum til skjóls og þök verið úr torfi. Húsavið hafa þeir að líkindum fengið mestan úr rekavið, en þó ef til flutt eitthvað inn. En suður í fjörðunum í Eystri byggð hefir lík- lega verið þröngt um reka, því að þess er getið, að þeir hafi flutt telgdan við norðan úr Norðursetu, en þar eru rekar meiri en syðra. Norðursetu- menn hafa ef til gert sér það til dundurs að telgja viði, þegar ekki gaf til veiða, en telgdi viðurinn miklu léttari í flutningum. Fremur er sú til- gáta Jóns Dúasonar ósennileg, að þeir hafi sótt við sinn vestur til Ameríku. Mér er það nokkur ráðgáta, hvernig þeir hafi fengið torf í veggi og þök. Hér á landi fæst það efni naumast nema í mýrum, sem kunnugt er. En eins og nú háttar er sáralítið um mýr- lendi í Eystri byggð og alls ekki á sumum stöðum, og ristumýri hefi ég hvergi séð þar. Má vera að þeir hafi rist grundatorf í þök en stungið harð- vellishnausa í veggi, og mokað mold utan að þeim til skjóls, því að kaldir hafa naktir steinveggirnir verið, þótt unnt hafi verið að þétta þá með mosa. Landkostir hafa verið góðir í upp- hafi byggðar. Land mjög vaxið skógi og kjarri, og þótt jarðvegur væri grunnur geymdi hann frjóefni hins ósnortna lands. Graslendi var hins vegar lítið, en ekki kom það svo mjög fénaði að sök, sem gekk sjálfala í skóginum. En samt hófust þeir handa um túnrækt, en til þess varð að brenna skóginn eða kjarrið, finnst viðarkola- dreif víða undir grassverði í hinum gömlu túnum. Þá sjást minjar þess að vatni hefir verið veitt á túnin, bæði í Brattahlíð og Görðum og vafalaust víðar, og víðast hvar hafa garðar verið hlaðnir um túnin, á stærri býlum að minnsta kosti. Nóg var grjótið. Úti- húsum var dreift um túnið, sennilega til þess að hægara væri að hagnýta áburðinn. En síðar gerðist það, að húsin voru færð saman í þyrpingu. En þó að landkostir væru góðir og búin stór meðan allt lék í lyndi og landgæði spilltust ekki af ágangi bú- fjár og versnandi veðráttu, er víst að búin ein nægðu ekki til framfærslu 88 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.