Heima er bezt - 01.03.1982, Page 24

Heima er bezt - 01.03.1982, Page 24
IJr fórum Jónu G.Vilhjálmsdóttur Hvað er nú það? Von að spurt sé, því er nú erfitt að svara, hugurinn er alltaf á reiki til og frá, stundum er ómögu- legt að nema staðar nema eitthvað óvænt ryðjist fram fyrir og segi hingað og ekki lengra, skrítið ekki satt? Já lifið er smá skrítið á stundum. Fyrir nokkrum árum kom óvænt atvik inn í líf mitt, eitt af mörgum. Ég var að ganga frá eftir kvöldskattinn, auð- vitað var hugurinn á þeytingi fram og aftur og ég eitthvað annars hugar. Þá er allt i einu eins og hvíslað að mér, farðu út i Háagerði, tvítekið Háa- gerði, ég var svo undrandi því Háa- gerði er eyðibýli hér utan við kaup- staðinn.Ég reyndi að hrinda þessu frá mér en það var ekki nokkur leið, þetta sá mig ekki i friði. Var ég að verða eitthvað skrítin svei mér, ég hélt það en alveg fór þetta fram hjá manni mínum sem sat við borðið og tottaði pípu sina í rólegheitum. Ég reyndi að sýnast róleg en því fór fjarri að ég væri það en herti mig þó upp og spyr bónda minn hvort hann vilji skreppa með mig í smá bíltúr. Hann setti upp hálfgerðan undrunarsvip sem von var. Langt? spyr hann mig. Nei, svara ég, hérna rétt út fyrir bæinn. Hann hélt að það væri nú sjálfsagt. Veðrið var dásamlegt, kvöldsólin umvafði allt gullnum bjarma. Spákonufells- borg eitt geislaflóð, máske Þórdís hafi verið að huga að gulli sínu í kistunni þetta friðsældarkvöld, hver veit, allt getur skeð. Er við lögðum af stað vildi bóndi minn vita hvert ferðinni væri heitið, ja var það furða. „Ja það er nú það,“ segi ég brosandi. „Er einhver launung yfir þessu ferðalagi?“ spyr hann. Ekki stóð á svari frá mér. Nei, nei svo er nú ekki. Keyrðu út í Háa- gerði. Nú rak ég hann í vörðurnar, hann skildi nú ekki neitt í háttalagi mínu, þarna hafði ég aldrei komið og kotið í eyði, þú skilur þetta ekki karl minn en þangað verð ég nú að kom- ast. Við lögðum bílnum fyrir neðan túngarðinn. Er við komum að bænum fattar minn maður að hann hefur gleymt fylgikonu sinni pípunni í bíln- um svo hann arkar af stað eftir henni. Nú fer ég að kanna býlið. Þarna er eitt hið fegursta útsýni til hafsins. Ekki mátti ég láta fegurð náttúrunnar trufla mig. Þarna var nú fátt sem gladdi augað, við mér blasti opinn gluggi glerlaus, ekkert þar inni nema tómir áburðarpokar og kabyssa sem margur kaffisopinn hefur verið hitað- ur á og mörgum yljað. Ég vind mér inn um gluggann og stend þarna eins og þvara og hugsa, ansa kornið ekki eru þarna draugar um bjarta sumar- nótt, nú hvað dró mig hingað, ég ætl- aði ekki að hopa fyrir neinu. Ó nei, ég hlusta, hvað er nú á seiði? Nú heyri ég veikt klór, hurð var rétt hjá mér, hún var læst. Aftur heyri ég þetta veika klór, nú fór mér ekkert að lítast á blikuna. Ég vissi að eitthvað leyndist þarna sem ég þurfti að greiða úr. Andrúmsloftið var eitthvað svo þvingandi þarna inni svo ég flýtti mér út. í því kom maðurinn minn með pípuna sína auðvitað, honum var ekkert gefið um þetta grúsk í mér, við vorum á allt annarri gráðu. Hættu nú þessu, sagði hann, þú hefur ekkert upp úr þessu. Mikið skelfing eru þeir alltaf óþolinmóðir þessir blessaðir karlmenn. Jæja hvað um það ég var að finna það sem mér var vísað á. Ég fór að kanna innganginn í bæinn, dá- lítið útskot var þar sem gengið var inn, smá skúr og einn gluggi. Eg sá að dyrnar voru lokaðar en datt í hug að kíkja á gluggann þó ekki þyki það nú fínt að vera gluggagæir. Manneskjan er nú ekki há í loftinu svo ég þurfti að tylla mér á tá til að sjá inn, nú ekki dugði það, ég skildi nú ekki drepast ráðalaus á þurru. Er ég leit inn um gluggann brá mér illa. Þarna voru tvær kindur innilokaðar um há sumar. Gat þetta verið eða var ég að sjá of- sjónir? Ó, nei, mér var vísað á þetta. Við opnuðum dymar en þeirri sjón er blasti við okkur gleymi ég aldrei. Þarna ultu blessaðar skepnurnar út: nær dauða en lífi, þær skjögruðu eins og skornir kálfar, farnar að éta ullina hvor af annarri allar útataðar í óþverra en mikið voru þær fegnar frelsinu og fóru strax að háma í sig sílgrænt grasið. Þarna munu blessaðar skepnurnar hafa dúsað í svelti hálfan mánuð til þrjár vikur vatnslausar og ekki hey- tugga.Ég lét bóndann strax vita sem átti kindurnar, þá kom upp úr kafinu að þetta voru tveir lambhrútar sem settir voru í túnið fyrir tveimum vik- um eða meira, en er farið var að gá að þeim voru þeir horfnir en bóndi hugði þá hafa leitað til fjalla í gróðursæld- ina, en margt fer öðruvísi en ætlað er. Ekki mátti tæpara standa að bjarga lífi þeirra, ferð mín þetta kvöld var leiðarvísir að björgun þeirra, enginn skilur hvernig þeir komust þarna inn, það er hulin ráðgáta því þessar dyr voru aldrei opnaðar og engum þvi dottið í hug að líta.þar inn. Sá sem átti hrútana var að fara í burtu svo þarna hefðu þeir borið beinin ef ég hefði ekki fengið þessa aðvörun, já lífið er dularfullt, svona atvik eru mörgum óskiljanleg en hvað um það, þeir björguðust með óvenjulegum hætti má segja. Þeir urðu fljótlega sprækir og náðu sér furðu fljótt á sílgrænu túninu. Svo gerist það einn morgun að þeir koma og heilsa upp á lífgjafa sinn. Þarna voru þeir ósköp ánægðir yfir sínum gerðum, þeir voru búnir að éta allt ofan af blómunum mínum sem öll voru útsprungin. Mér rann nú sannarlega í skapið, lét það nú ekki bitna á þessum málleysingjum sem ekki gátu svarað fyrir sig, en þetta gátu þeir nú samt látið vera. En hvernig rötuðu þeir til mín? Það er spurning sem ég fæ aldrei svar við. 96 Heima er be:l

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.