Heima er bezt - 01.01.1984, Blaðsíða 8
„Það er stundum erfitt
hvar „heima“er bezt..
Víða um heim
hefur vaknað áhugi
á því að halda við
sérkennum og
tungu smáhópa,
þar sem slíkt er í
nokkurri hættu. í
Kanada er það
opinber stjómar-
stefna, og ekki er
að efa vilja ís-
lenskra ráðamanna
til að styðja varð-
veislu íslenskrar
menningar 1 Vest-
urheimi. En fyrst
og síðast mun
ábyrgðin og þung-
inn af þessari við-
leitni hvíla á herð-
um áhugasamra
einstaklinga,
beggja vegna
hafsins. Einn þeirra
er Kristján Theodór
Ámason á Gimli.
Við Kínamúrinn í febrúar 1983. Kristján og Marjorie fóru þá 3 vikna áhrifamikið
ferðalag um fjölmennasta riki heims, íklædd m.a. íslenskum lopapeysum eins og
sjámááMarjorie.
Ted K. Árnason, bæjarstjóri á Gimli, er betur þekktur
hérlendis undir skírnarnafni sínu, Kristján Theodór
Arnason. Hann hefur verið fremstur í flokki þeirra,
sem efla tengsl Vestur-íslendinga og íslendinganna
,,heima“. en það orð nota frændur okkar fyrir vestan
um ísland.
Theodór kom í fyrsta sinn til íslands 1968. Síðan
hefur hann komið ,,heim“ 20 sinnum ásamt eigin-
konu sinni. Kannski er hann að vega það upp, að
hann er borinn og barnfæddur í Kanada. Það voru
foreldrar hans líka. Með þetta allt í huga kemur það
á óvart, hve þau hjón tala íslenskuna vel. Marjorie
er íslensk í aðra ættina.
Heima er bezt fékk Kristján Theodór til að rita les-
endum nokkra lýsingu á ævi sinni og störfum, ætt og
áhugamálum. Þökkum við honum kærlega fyrir að
bregðast vel við, sem og Árna Bjarnarsyni á Akur-
eyri, sem annaðist milligöngu fyrir okkur.
4 Heima er bezt