Heima er bezt - 01.01.1984, Blaðsíða 24

Heima er bezt - 01.01.1984, Blaðsíða 24
1 2 1904 1907 of^ 'ZS- jTc^. HúV. '//z o^ oru oý'C'ym 'icszj ^íosyT-J'd crocJ. <£7f/cesijCj -£cc^yi '>'úrrr>zJ. Þökk fyrir krókinn, sem þér gerðuð yður síðastliðið sumar, til þess aðsjá mig, kotkarlinn. En —skolli varþá ekki heima, enda er hann ekki framfœrinn né tungumjúkur við ókunna menn, svo hann hefði naumast vaxið við þá kynninguna. Ef satt skalsegja, er óvíst, að ég hefði minnst þessa bréflega, ef ég hefði ekki fengið beiðni frá R. Meissner í Göttingen um leyfi til þess, að þýða sögu mína „Upp við FossaHann býður mér að líta yfir þýðinguna, en ég skil ekki þjóðverska tungu, svo það er á engan hátt viðlitamál fyrir mig; enda gerir hann líka ráð fyrir að snúa sér til yðar með það. Ég skrifa Meissner og kýs auðvitað, að þér sjáið um það fyrir góðvin yðar, prófessorinn. Bréf mitt, þar sem ég gef próf. Meissner heimild tilþýðingarinnar legg ég hér innan í og bið yður um þann greiða, að beina því til viðtakandans. Mun ekki mega fá sögu Þiðriks af Bern, Sögu Karlamagnúsar og Alexanderssögu keyptar annaðhvort í Danmörku, eða Noregi þar sem þœr hafa verið gefnar út? Og ef svo vœri, hvað mundu þœr dýrar? Þó það séu riddarasögur þá fýsir mig að sjá þœr, ég hef alla daga verið vitlaus eftir sögum og heimskulega rýninn eftir fornum ritum — því heimska er það fyrir félítinn bónda, sem veit það vel af reynslunni, að hann nemur lítið um sína daga, með sínum fœrum, og hitt einnig, að þeir molar verða aldrei til fengs í búið. Og samt fer ég þá götuna meðan heilsa og hyggja endist. Ef yður kostaði það ekki ómak, að leiðbeina mér hvar þessar bœkur fengjust, svo ég gœti keypt þœr, vœri mér þökk á því. Svo er og um Heimskringlu Snorra; tel ég hana síðast að hœtti barnanna, sem geyma besta hnossið til lokagœðings. Fjöllyndi og fégirni Snorra gleymist mér þegar ég les gullfögru ritin hans, svo laus við sundurgerð og tildur, þar sem varla erorðiof né van; þar sem ekki er hœtt við að maður steyti fót sinn við steini. Ég sé nú, að ég er kominn á bak á gamla krók-stafinn minn, að ég er farinn að rífa ginið um „sögurnar“, einsog þeir segja sveitungar mínir—ogþað viðallsókunnan mann, „lœrðan mann“, þáséégað mér og þagna. Litluströnd 20. 11. 1907. Kœri landi minn og málkunningi. Bestu þakkir fyrir heimsókn og skemmtilegar viðrœður í sumar. Ég leita tilyðar með vandamál, sem mér ber að höndum og erþað í sjálfu sér ekki stórt, en hitt er meir, að mig skortir þekking til þess að leysa það vel afhöndum. Svo er mál með vexti, að tvær stúlkur hafa beðið mig að sœkja um sumarskóla þann er mig minnir að Emma Gad stýri en þér hafið umsjón og ráð fyrir. Önnur stúlkan heitir Guðrún og er dóttir mín, 26 ára að aldri, hin heitir Arnfríður Sigurgeirsdóttir frá Helluvaði hér í hreppi og er jafngömul. Það er ósk mín, að þetta bréf gœti orðið regluleg umsókn fyrir þeirra hönd en sé það ekki, fyrir formleysis sakir, þá bið égyður um allar nauðsynlegar upplýsingar, til þess það geti orðið. Hvort sem efra verður, þá bið ég yður um svör upp á þessar spurningar: Hver stjórnar skóla þessum ? Hverjir íslendingar eru ráðunautar þeir er umsœkjendur skuli snúa sér til? Hver er kostnaður við förina og hvenœr skal fara og aftur snúa heim? Með hverjum skipum verður farið og á hverju farrými búa nem- endur þessir? A fþví ég eryður málkunnugur sný ég mér tilyðar og vœnti mér af því bestra málaloka. Fréttir helstar eru: óhagstœtt sumar með litlum heyfeng einkum er nœr dregur sjónum; þar var ávallt naprara og meiri rigningar; öndverður október illur, fennti þá fé og hrakti stórum, ferðalög tálmuðust og urðu afar dýr og þó fenglítil. Asetningur tœpur yfir- leitt. Ofanverðan október batnaði tíð og þiðnaði, hefir síðan verið snjólétt ogjarðirgóðaren nú eru útsynningar hvassirogrosamiklir, koma þeir illa við beitarfé og sverfa af því holdin, þar sem ekki eru því öruggari landkostir. Á þingi var hrapað að prestamálinu og uni ég þeim úrslitum illa; kristinni trú verður ekki að borgnara, en klerkum verður mun hœttara til ágirni og ráðríkis en áður. Þetta stendur varla marga áratugi ef menning og andans þroski vex í landinu, sem ég vonast fastlega eftir. Fyrirgefið ómakið sem ég baka yður og sitjið heilir á húfi. Með heillaóskum og virðingu erég yðarJón Stefánsson. Ég er með virðing og vinsemd yðar Jón Stefánsson. Mcö Einari gamla reiö jotf aö Lilluslröncl til jiess aö sjá skáldiö Jón Stelansson (j>orf(ils £>jallnn(ln). Viö fengum |>ar micldagsvorö. Mjer leist vel a Jon. mjög slillur maöur og atluigall, hispurslatis; snma svndisl injer um konu hans. Heimsókn Finns 1907 Lýsing dr. Finns á heimsókninni til Þorgils gjallanda í ágústbyrjun 1907. (Ævisaga Finns Jónssonar eftir sjálfan hann, Kaupmannahöfn 1936, bls. 128). 20 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.