Heima er bezt - 01.01.1984, Blaðsíða 33

Heima er bezt - 01.01.1984, Blaðsíða 33
En hvað sem um allar Miðkvíslar og laxastiga er, setti ég ungur nafn Þórðar í Svartárkoti sem eins konar formúlu silungaklaks. Ekki efa ég að þau víðáttumiklu klakhús nú- tímans sem á nokkrum stöðum hafa upprisið, eru meiri völundarsmíð en klakhús Þórðar voru, og þar ganga líka götur prúðbúnari menn í ríki nælons og plasts. Við fengum hríðarlaust veður á göngu okkar að Græna- vatni, sem nú verður okkar síðasti náttstaður í þessari ferð. Bærinn að Grænavatni er tröll að vexti, og auðvelt var ókunnugum að týna þar félögum sínum, enda rúmaði þessi bær nokkur heimili og margt fólk, og hefir þar um langan aldur verið rómað og merkilegt heimilislíf. Ég var ókunn- ugur flestu þessu fólki, þó mjög hefði ég heyrt frá því sagt, og það kom allt í sama stað niður, hvort rætt var um búskap, þar sem hver skepna gljáði af velsæld en hlóð þó af sér afurðum, eða tónlist, þar sem söngur og hljóðfæraleikur barst um allan bæinn. Ég var gestur Hólmfríðar Þórðardóttur Flóventssonar frá Svartárkoti, og Jónasar Helgasonar, hins þjóðkunna söngstjóra og brautryðjanda í tónlist, og mikið var gott þarna að vera, en eins og ætíð á ferðalagi sef ég lítið sein- ustu nótt fyrir heimkomu, og svo fór hér einnig. Jónas lék á orgelið sitt um kvöldið upp úr sænsku karla- kórssönglagabókinni, lögin sem ég hafði heyrt Mývetninga syngja undir hans stjórn, og sé enn hvernig Fjörðurinn blánar, þegar þeir sungu um það. Og ég laumaðist til að rifja upp í huga bernskuminningu. Það var á ungmenna- félagsfundi eða annarri slíkri heimilissamkomu, að ég heyrði Hólmfríði, þá í Svartárkoti, leika polka á orgelið heima, og ef einhver segði að Hólmfríður hefði ekki lagt börnum sínum til músik í blóðið og margt fleira fágætt, heldur hefði Jónas gefið þeim það allt, þá bara mótmæli ég því! Og ekki þykir mér amalegt í dag þegar ártalið er 1983 þá skuli ég vera afi en Jónas langafi sömu blessuðu barn- anna hérna ofan við Fellið. Kstudagurinn 17. mars skín af himni, skær og fagur, og varð okkur hliðhollur á skíðagöngunni á ská vestur yfir Mývatnssveitina og til heiðarinnar, og af því svo skammt var um liðið, þótti ekki ástæða til að grípa undir hrútana á Helluvaði líka í bakaleiðinni, þó ég hefði vel getað unnt Jóni á Bjarnarstöðum þess, því hann var hreint ekki fjár- maður að uppgerð, heldur virtist honum það eðlisgróin dyggð. Nei, við lögðum bara á Fljótsheiðina, þar sem hún lá eins og opin bók, eða öllu heldur landabréf með ör- nefnum sínum og einkennum. Til eru heimildir um 23 staði, þar sem menn áttu híbýli sín um lengri eða skemmri tíma, um alla víðáttu þessarar heiðar, á milli Bárðardals, Mývatnssveitar og Reykjadals. Og um þessa heiði samdi Tómas frændi minn Tryggvason, sem síðar með miklum sóma bar nafnið jarðfræðingur, langa prófritgerð á Laugaskóla, sem finna má í Ársritinu. Jafnvel ég gæti skrifað margar blaðsíður um hinar fjöl- breyttustu ferðir um þessa heiði, og oftar en hitt með burð eða drátt, með hest eða skíði, í sólskini eða grenjandi hríð, og oft í vondu færi. Nú þyrfti að grafa hér nokkra bæi úr jörð til að kynna, sem áður þurfti úr fönn til að finna. Tómas vissi ekki síður hvað heiðin var rík og hvað hún var gróin og gjafmild, og hann vissi það gjörla, og betur en ég. Hann hafði búið á bakka Engilækjar fram á mann- dómsár, þess lækjar sem ort var um: A aðra mílu í átt frá sjó er það skrítinn kœkur. Rennur hér í þröngri þró þögull Engilœkur. Hvort sem Hjálmar Stefánsson kvað eða einhver annar, var sú kergja í þessum læk, að hann rann lengi inn til landsins áður en hann varð að hverfa til Skjálfandafljóts og gerast því auðsveipur allt til Bjargafjöru. En Tómas hvarf af heiðinni og stundaði fullorðinn nám sitt og gerðist merkismaður og brautryðjandi, svo sem Sigurður Stein- þórsson, nemandi hans og starfsbróðir skrifaði skilningsríkt um hann látinn. En ég á um hann minningarnar og nokkur sendibréf, jafnvel sextíu ára gömul. V, ferðafélagar höfum þegar gengið heiðina, og nú loksins renna skíðin ofurlítið heimfús niður að Bjarnar- stöðum, og ferðinni má heita lokið. Hér er aðeins eftir að kveðjast og þakka fyrir góða samfylgd. Ungt fólk hafði þá ekki lært að segja þegar það kvaddist á hlaðinu: „Ég bið að heilsa ykkur“. Það skiptir ef til vill ekki öllu máli, hvað af þess háttar tiktúrum ræður sig í vist í kveðjum manna, hitt skiptir okkur meiru máli, þessa ævintýra- og fjallamenn, að tveir okkar, eða þeir Jónas Baldursson og Sigurður Jóns- son, hurfu okkur í blóma lífsins „inn í móðuna miklu“, eins og prestur orðaði þess háttar í kveðjuræðu sinni. Við hinir þrír þraukum enn, og líklega með kæk Engilækjar, hálft í hvoru gegn lögmálum, eins og morgunblaðsmenn sögðu að Jónas frá Hriflu hefði ætlað vatninu að renna í áveitu- skurðinum, þó við tryðum því nú ekki framsóknarmenn, og vissum betur. Jón á Bjarnarstöðum fylgdi mér á hesti yfir Svartána, síðan rölti ég með skíðin fram með Stórutungulæknum og suður að Túnhylnum, þar sem byttan beið vestan megin fljótsins, en ég „kallaði ferjuna“ eins og það hét, og var ég fljótlega sóttur heiman frá Mýri. í einkennilega bláleitri birtu slær kvöldroða á minning- arnar, og veitir engum af í dag. Höfundur þessarar frásagnar, Jón Jónsson, er bóndi í Fremstafelli í Ljósa- vatnshreppi, S.-Þing. Árið 1982 gaf hann út Ijóðabókina ,, Hjart- sláttur á þorra“. Heimaerbezt 29

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.