Heima er bezt - 01.01.1984, Blaðsíða 39
Heimilisfangið er:
FÁLKI
■z.
í Amsterdam í Hollandi er talið að um 1000-2000 bát-
ar ,,séu í byggð“. Þeir liggja bundnir við síkisbakkana
og eru aldrei hreyfðir, en bjóða upp á ýmis nútíma þæg-
indi, eins og rafmagn, síma og sjónvarp.
Garðar Björgvinsson er fæddur og uppalinn á Raufar-
höfn. Hann býr í bát sínum, Fálka ÞH 260, frá því um
mánaðamótin mars-apríl ár hvert, og dvelur þar fram í
september eða október. Yfirleitt einn, á sjó eða við
bryggju á Raufarhöfn. Hann er því einn fárra íslendinga
sem hefur tekið upp þessa lifnaðarhætti sem þykja svo
eftirsóknarverðir í Amsterdam og víðar, svo ekki sé
minnst á auðkýfingana á snekkum sínum hér og þar um
heimshöfin.
Garðar hefur annars um 17 ára skeið rekið bifreiða-
verkstæði í Hveragerði og þar býr hann ásamtfjölskyldu
sinni yfir veturinn. Margir kannast við Garðar undir
stöðuheitinu ,,útgerðarmaður á Raufarhöfn“, því þann-
ig hefur hann auðkennt sig í rúmlega 40 blaðagreinum,
sem einkum hafa birst í Dagblaðinu Vísi og Degi á Akur-
eyri.
Hvers vegna vill hann búa í bát?
,,Mér þykir þetta líf frjálst og gott“, svarar Garðar og
klappar Fálka, sem hann lauk sjálfur við að smíða 1975,
eftir að Bátalón hafði lagt til skrokkinn.
Heima er bezt 35