Heima er bezt - 01.01.1984, Blaðsíða 16

Heima er bezt - 01.01.1984, Blaðsíða 16
SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR SCHIÖTH: Minningabrot frá árunum 1935—36 Greinarhöfundur á unga aldri, ívið fyrr en atburðir þeir gerðust sem hér er sagt frá. Veturinn 1935-6 var ég heima á Lómatjörn hjá foreldrum mínum. Tvo vetur þar á undan hafði ég verið á Laugarvatnsskólanum og sumarið þar á eftir sunnanlands. Vildu nú systur mínar, sem búsettar voru í Reykjavík, að ég færi heim og yrði móður okkar til aðstoðar. Hún var farin að reskjast og var þetta sanngjamt, þar sem hún var búin að koma upp sjö dætrum og einni fósturdóttur að auki. Þegar líða fer á æfina, leitar hugur- inn æ oftar til baka og þá staðnæmist hann við einstaka atburði eða tímabil, þótt móða gleymskunnar hafi lagst yfir aðra, sem merkir voru hversdags- leikanum og horfnir eru í tímans sjá. Þessi síðasti vetur minn í föðurgarði er mér minnisstæðari en aðrir, fyrir margra hluta sakir. Þá byrjaði ég að kenna og stjórna söng, á eigin spýtur og þá gerðust hörmulegir atburðir, sem seint mun yfir fyrnast. Um haustið fór ég norður með rútubíl. Hafði ég meðferðis nýtt út- varpstæki, sem mig minnir að væri gjöf frá systrum mínum í Reykjavík til foreldra minna. Var það vandmeð- farið, í sterkum pappakassa með mynd utaná, af feitum og skringileg- um karli. Veifaði sá hatti og út frá munni hans voru prentuð orðin: „Lad mig staa paa benene“. Var ekki breytt út af því, fylgdist ég vel með karli alla leið norður og heim í Lómatjörn. Nýja útvarpstækið vakti mikla gleði heima, en alltaf þurfti að láta hlaða „sýrubatterí“, sem það gekk fyrir, því ekkert var rafmagnið. Var því stund- um spöruð hlustunin, er dagskráin þótti þá ekki sérlega áhugaverð. Mest þótti varið í að fá veðurfregnirnar og mikil hjálp í því. Þá var aðeins út- varpað nokkrar stundir á degi hverj- um. Er leið fram á veturinn var ég beðin um ýmis tónlistarstörf t.d. að kenna unglingsstúlkum í skólanum á Grenivík nokkur lög, sem syngja átti á skólaskemmtuninni seinni hluta vetr- ar. Þótti mér þetta mjög skemmtilegt, stúlkurnar voru söngelskar og sungu fallega. Fjórir bræður, frá Jarlstöðum, báðu mig að kenna sér nokkur karla- kórslög, sem ég gerði. Voru þau sungin á tveim skemmtunum í sam- komuhúsinu á Grenivík. Fyrir skömmu minnti einn bræðranna, Ingólfur, mig á atvik, sem gerðist í sambandi við þennan söng, að þegar á hólminn var komið og þeir stóðu á sviðinu í samkomuhúsinu og sungu fyrir fullu húsi, fékk Sigurður, sá sem söng fyrsta tenór, svo svæsið hóstakast í miðju lagi, að hann varð að hætta og hljóp út af sviðinu. Fannst þá þeim sem eftir voru, tilgangslítið að standa þarna og syngja þar sem fyrsta tenór vantaði og hlupu út hver á eftir öðrum. Fór ég síðust út og var víst ekki hátt á mér risið. Annars lík- aði þessi söngur vel og var beðið um hann aftur, enda voru þessir bræður ágætir söngmenn. 12 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.