Heima er bezt - 01.01.1984, Page 12
■ ■
Otull félagsmála-
maður
Kristján Theodór Árnason er nú að hefja þriðja kjörtíma-
bil sitt sem bæjarstjóri á Gimli. Hann var fyrst kosinn
með 66%% atkvæða í október 1977, endurkjörinn með
78% atkvæða 1980ogloks sjálfkjörinnárið 1983.
Hann er rafvirki að mennt, en hefur tekið þátt í fram-
kvæmdum og þjónustu í ýmiss konar verktakafyrirtækj-
um, verslun, ferðamálum og innan kanadíska flughers-
ins. Hann var sjálfboðaliði í slökkviliði bæjarins árum
saman, félagi í Gimli Kinsmen Club og forseti þess
félags, einnig forseti í Royal Canadian Legion, fyrsti for-
maður í Styrktarfélagi þroskaheftra á Gimli, og hefur
m.a. bæði verið þjálfari og formaður ísknattleiksfélags.
Hann hefur auk þess gegnt formennsku í eftirtöldum
félagas amtökum:
Gimli Memorial Recreation Centre, Gimli Carnival
Commitee, Icelandic Canadian Club of Winnipeg, Mani-
toba.
Þjóðhátíðarárið 1974 var hann forseti og stjórnandi í
undirbúningsnefndinni fyrir Íslendingahátíðina í Mani-
toba 1975 og 1976. Um 6 ára skeið var hann stjórnarfor-
seti Lögbergs-Heimskringlu, sem er eina íslenska viku-
blaðið í Norður-Ameríku.
Af annarri þátttöku í félagsmálum má nefna, að Krist-
ján Theodór hefur setið í stjórnum ýmiss konar samtaka,
t.d. Gimli Chamber of Commerce, The Icelandic Natio-
nal League of North America, The Gimli Cultural Corp.,
the Canada Iceland Foundation og Heritage
Board of Manitoba. Hann var kjörinn heiðursfélagi í
Gimli Curling Club. Hann er meistari í Frímúrarastúk-
unni Viking Lodge á Gimli og Khartum Shrine of Winni-
peg, Manitoba.
Kristján í mótmælaferð gegn mengun Banda-
ríkjanna í Kanada. Myndin er tekin í júlí 1983
framan við bústað Bandaríkjaforseta, Hvíta
húsið í Washington D.C. Kristján hefur farið
tvisvar til að mótmæla þeim áformum og undir-
búningi Bandaríkjamanna að breyta afrennsli
sem fellur í Missisippi-fljótið nyrst í Bandaríkj-
unum, þannig að það renni í Rauðá og út í
Hudson-flóann. Kanadamenn vilja ekki þiggja
þetta vatn, sem m.a. hefur verið notað í áveitur,
þar eð það mun menga bæði ána og flóann og
raska þvi viðkvæma lífríki, sem bæði atvinnu-
fiskimenn og sportveiðimenn vilja standa vörð
um.
Mótmælaferðin gegn mengun til
Washington, höfuðborgar Bandaríkj-
anna í júlí 1983. Þarna eru oddvitar,
bæjarstjórar og indíánar frá Mani-
toba við þinghúsið Capitol.
8 Heima er bezt