Heima er bezt - 01.01.1984, Page 22

Heima er bezt - 01.01.1984, Page 22
ÞORGILS GJALLANDI: „Kjarni ígrasi og þróttur ívíði“ 5 sendibréf til Finns Jónssonar Varðveitt í Konungsbókhlöðunni í Kaupmannahöfn Þorgils gjallandi (Jón Stefánsson) Finnur Jónsson, prófessor Jón Stefánsson, sem ritaði undir höf- undarnafninu Þorgils gjallandi, fædd- ist 1851, lézt 1915. Foreldrar hans voru hjónin Stefán Helgason frá Skútustöðum og Guðrún, rituð Ólafs- dóttir framan af, laundóttir séra Jóns Þorsteinssonar ÍReykjahlíð. Jón var eina barn þeirra hjóna, sem upp komst. Þau bjuggu við fátækt. Þegar Jón Stefánsson var 11 ára gamall, missti hann móður sína. Með þeim mæðginum hafði verið afar kært, enda talin skaplík. Nokkrum árum fyrr hafði hann misst bróður, sem var yngri og mjög hændur að honum. Stefán bóndi giftist aftur, en drukknaði í Mý- vatni eigi löngu síðar. Þá stóð Jón einn eftir, 16ára unglingur, sviptur foreldr- um og eina bróðurnum. Einstæðingsskapurinn svarf fast að honum. Hann varð einrænn og rýninn á umhverfið. Þar sem efni voru engin, stóð hann hallara fæti en fjöldi jafn- aldra hansog félaga. Honum varð því misskipting veraldargæða einnig snemma Ijós. Líf hans varð beiskju- blandið. Varanlegust áhrif mun þó móðurmissirinn hafa haft á hann og sennilegt, að hann hafi ráðið miklu um lífsviðhorf, eins og þau síðar birtust í ritum hans. Fyrir Jóni lá vinnumennska, þótt námfýsi og útþrá brynnu íbrjósti hans. Allt slíkt byrgði hann í barmi um sinn. Hann réðst til föðurbróður síns, Hjálm- ars Helgasonar íVogum. Síðan lá leið- in í Gautlönd. Þar komst hann að marki íkynni við bækur. Hann segir m.a. svo í bréfi: ,,Bækur fékk ég, bæði þáog áður, með fúsu geði hjá Jóni Sig- urðssyni, enda reyndi eg að fara vel með þærog vera skilsamur, því það mat Jón mikils. “ Á öðrum stað lýsir Jón sjálfum sér svo á þessum árum: ,,Að eðlisfari var eg helzt gefinn fyrir fornfræðagrúsk, en síður fyrir búnað. . . Ódæll og fjörugur íæsku, óhagstæður og eigi hlífinn íorðum. Blóðheitur og hneigður til nautna. . . “ 18 Heima er bezl

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.