Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1995, Blaðsíða 39

Heima er bezt - 01.01.1995, Blaðsíða 39
Breyting á innheimtu áskriftargjalds Heima er bezt Eins og áskrifendum Heima er bezt er kunnugt hefur áskriftargjald blaðsins jafnan verið innheimt eftir á, þ.e. í lok hvers áskriftartímabils og þegar fólk er búið að fá viðkomandi blöð í hendumar. Er óhætt að fullyrða að Heima er bezt sé eitt af fáum, ef ekki eina blaðið á ís- lenskum tímaritamarkaði, sem hefur þennan hátt á. En „flest er í heiminum hverfult,“ eins og segir einhvers staðar og það verður að segja eins og er að þetta fyrirkomulag hefur gert það erfitt á ýmsan hátt að halda utan um áskriftirnar svo vel sé og því stundum verið uppi vafaatriði varðandi einstakar áskriftir sem erfitt hefur verið að skera úr um vegna þessa fyrirkomulags á innheimtu gjaldanna. Starfsfólk blaðsins hefur unnið ötullega að því að undanförnu að betrumbæta áskrifenda- kerfi þess svo sem kostur er, einfalda alla vinnslu á því og gera tilheyrandi leiðréttingar, sem alltaf eru óhjákvæmilegar í viðhaldi áskrifendalista tímarita. í þessari endurskoðun höfum við rekið okkur á það að veigamikill þáttur í þessum endurbótum væri fyrirkomulag innheimtu áskrifendagjaldsins. Sú staðreynd að það er innheimt eftir á hefur nefnilega gert allt eftirlit erfiðara og þyngra í vöfum, eins og áður var getið. Niðurstaðan hefur því orðið sú að óhjá- kvæmilegt sé að breyta innheimtukerfinu þannig að framvegis séu áskritargjöldin innheimt fyrirfram. Með því móti verður staða hverrar áskriftar fullkomlega ljós hverju sinni og ein- faldari fyrir báða aðila. Við munum að sjálfsögðu reyna að haga þessari breytingu þannig að hún valdi áskrifend- um blaðsins sem minnstu raski og óþægindum. í júní s.l. greiddu áskrifendur áskriftargjald fyrir tímabilið janúar til júní 1994. Næsti gíróseðill barst svo með októberblaðinu og var hann fyrir áskrift seinni hluta síðasta árs, þ.e. júlí til desember 1994. Með þessu blaði, janúarheftinu , erum við svo senda út gíróseðil með áskriftarg,jaldi fyrri hluta ársins 1995, sem er þá fyrirframgreiðsla fyrir það tímabil (janúar-júní). Hér eftir munu svo áskriftargjöldin verða innheimt á sama tíma og verið hefur, þ.e. í júní- og desembermánuði ár hvert. Það má því segja að fyrirkomulagið gagnvart áskrifendum sé nánast óbreytt núna eftir ára- mótin, að því atriði undanskildu að framvegis er áskriftin greidd fyrirfram. Þeim sem óska eftir nánari upplýsingum um þessa breytingu er velkomið að hafa samband við okkur í síma 588-2400 til frekari útskýringar el' á þarf að halda. Áskriftargjaldið sjálft verður óbreytt áfram og blaðið jafn ódýrt og áður eða aðeins kr. 247 hvert tölublað og er ódýrari tímarit að öllum líkindum varla að finna hér á landi. Um leið og við sendum áskrifendum blaðsins bestu kveðjur leyfum við okkur að vona að þessi breyting á fyrirkomulagi innheimtunnar verði báðunt aðilum til einföldunar og þæginda.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.