Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1995, Blaðsíða 37

Heima er bezt - 01.01.1995, Blaðsíða 37
Klömbrum fyrr en á fjöru og þakið það svo á aðfallinu." Fékk hún þá almanak yfir á Barði og Sigurð á Þúfu til að vera með Ama. Tókst þá loks með ráðum hennar og visku, sakir hennar miklu náttúru en at- gangi þeirra, mikils manndóms og karl- mennsku að koma þakinu á eldhúsið á réttum tíma. Lét hún þá síðan setja vangskjól á strompinn með öllum þeim útbúnaði, sem þar til heyrði. Jana kvartaði aldrei síðan um reyk í eldhúsinu, enda var hann eftir það engu meiri ef hvassviðri var nógu mikið úti, heldur en hann hafði áður verið í logni. Mikið fannst Árna til um vitsmuni konu sinnar. „En í reykjarfræðinni á hún engan sinn líka, því þar er hún heima,“ sagði hann. Þegar fram liðu stundir tók Jana að færa það í tal við Áma mann sinn að hann mætti ekki verða eftirbátur fyrra mannsins síns sæla. „Verður þú nú að fara að hefja þig upp til mannvirðinga í sveitinni," sagði hún. „Og þó þú komist ekki svo hátt að verða hreppstjóri eða hreppsnefndar- oddviti, þá er fleira matur en feitt ket,“ sagði hún. ,,Þú kannski gætir orðið hreppsnefndarmaður, heyskoðunamiað- ur eða meðhjálpari. Það er virðuleg staða hvort embættið sem er. En til þess að komast sona hátt veður þú að vera auðmjúkur og undirgefinn þínum yfir- mönnum og einkanlega verður þú að muna eftir því að taka ofan fyrir þeim hvar sem þú sérð þá álengdar.“ Ámi kvaðst skyldi gera sitt besta til að þetta gæti tekist. „En ég kvíði fyrir öllum lærdómnum, sem er við það. Eg veit ekki einu sinni hvort ég er maður til þess sagði hann. „Sei, sei, þetta kemur allt af sjálfu sér. Þegar þú ert kominn í neðsta haftið í virðingarstiganum þá tekur hvert haft- ið við af öðru, alveg eins og í hverjum öðrum stiga, þangað til þú ert kominn upp í efsta haft og þá er ekki lengra hægt að komast," sagði hún. Árni fór nú að sækja mannfundi. Hann kom á hvern sveitarfund sem haldinn var. Tróð sér inn á hrepps- nefndarfundi, sóknarnefndarfundi, Bún- aðarfélagsfundi, stúkufundi og alla mögulega fundi sem haldnir voru. Hann fór að vasast í pólitík og reyndi að safna atkvæðum fyrir þingmannsefni þau er í kjöri voru. Ef tveir voru í kjöri reið hann bæ frá bæ til að safna áskrifendum fyrir annan. Hélt hann vanalega út vikutíma en þegar árangurinn varð minni en hann vildi snerist hann í lið með hinum því hann hugði þá þeim megin betra að vera og vænna til virðingar. Var hann þannig beggja vinur og báðum trúr á meðan hann var í þjónustu þeirra hvors um sig. Loks tók honum að leiðast þófið. Og eitt sinn er ár var liðið frá því að hann byrjaði á þessu braski sínu sagði hann mæðilega við Jönu: „Seint ætla ég að komast upp í neðsta haftið. Mér finnst ég sitja í sama rass- farinu ennþá, sem ég sat í þegar ég byrj- aði.“ „Þolinmæðin þrautir vinnur allar,“ sagði Jana. Vorið eftir stóð svo á að kjósa þurfti tvo menn í hreppsnefnd. Reið Árni á fundinn og hugðist nú að komast í hið auða sæti eða að falla að öðrum kosti. Þegar á fundinn kom heyrði hann sér til mikillar undrunar að enginn vildi verða fyrir valinu. Stóð hann þá upp á fundin- um og sagði: „En hvað segið þið um mig, piltar? Eg er orðinn margreyndur maður og fær í flest.“ „Þig?“ sögðu menn og litu til Árna. Sonur Þórðar á Barði stóð þá upp og sagði brosandi: „Þú ert vel þess maklegur, Ámi minn, að hljóta virðulegt nafn eftir allar þær mannraunir sem þú hefur ratað í um ævina. Því mér er nær að halda að enginn einn maður hafi komist í furðu- legri eða frásagnarmeiri ævintýri en þú á vorunt dögum. Og legg ég það til við sveitunga mína að þú fáir hið maklega og hljómfagra nafn að vera útnefndur „idiot“ sveitarinnar. Er það nafnbót ekki lítil og ert þú allra manna best að því kominn að hljóta þann sæmdartitil. „Idiot“ er hádanskt nafn eins og kamm- erráð eða jústizráð, sem æðstu embætt- ismönnum er gefið að nafnbót. Þú ert heiðarlega búinn að ávinna þér nafnbót þessa fyrir löngu síðan.“ Margir brostu að ræðu þessari en Arni stóð upp, horfði myndugur í kring- um sig og sagði: „Ég þakka auðmjúklega fyrir þennan mikla heiður, sem mér er auðsýndur og þó ég skilji ekki vel þetta virðulega nafn þá er auðheyrt að það er fallegt, hverja þýðingu senr það hefur. En það er vandi að muna það en fylgja því eng- in heiðursmerki eða vandasöm störf?“ bætti hann við. „Heiðursmerki verða að fylgja því, annað held ég fylgi ekki þessari nafnbót - „Idiot.“ Settist hann við að kenna Árna nafnið og um kvöldið var hann orðinn full- numa í að muna það og reið hann þá heim. Það var hátíðarsvipur á Árna þegar hann heilsaði Jönu konu sinni. Henni sýndist jafnvel vera á honum reigings- svipur. „Ertu kominn í hreppsnefnina?“ spurði hún. „Onei, en ég fékk nú annað virðu- legra nafn,“ sagði hann. „Ég er útnefnd- ur idiot - já, og það með heiðri og sóma.“ „Hvað er það?“ spurði hún. „Nú það er stór dönsk nafnbót, kona, alveg eins og á kammerráðinu á Stað.“ „Hvaða nafnbót hefur hann?“ spurði hún. „Hvaða, ja, ég gleymdi nú alveg að spyrja að því enda hefði það ekki verið til neins. Ég átti nóg með að muna mitt eigið nafn.“ „Og hvaða embætti fylgir þessu nafni?“ „Embætti - embætti? Nafnið á víst sjálft að vera eiginlega embættið.“ „Þetta er náttúrlega ekkert nema nafnið tómt,“ sagði hún. „Nafnið er í sjálfu sér fallegt - „idiot,“ og svo á ég að fá eitthvert heið- ursmerki, sögðu þeir,“ sagði hann. Að nokkrum tíma liðnum kom heið- ursmerkið. Var það gullroðinn skjöldur á stærð við undirskál. Var grafið á hann „Idiot“ með stórum stöfum. Varð Árni glaður við og sýndi konu sinni hann. „Skjöldurinn er úr ekta gulli, það er svo sem auðséð,“ sagði hann. En Jana átti bágt með að trúa því að svo væri. Tók hún hníf og tálgaði í röndina á honum. En þegar hún skóf af honum gyllinguna var svart járn undir. Árna varð illa við þessa rannsókn. „Nú ertu búin að eyðileggja fyrir mér Heima er best 33

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.