Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1995, Blaðsíða 11

Heima er bezt - 01.01.1995, Blaðsíða 11
Flestir völdu fyrri kostinn með góðum ár- angri. Margir bændur í Fljótshlíð keyptu sér Willysjeppa um þessar mundir til heimanota og ferðalaga frá bæ. Húsmæðurnar á bæjun- um, einkum þær yngri, lærðu á bíl um þessar mundir og var ég ein af þeim, sagði Guðfinna. Árið 1957 varð það að ráði milli oddvita Fljótshlíðarhrepps og mín, að ég færi í ljós- móðurnám í Reykjavík og tæki að mér ljós- móðurstarf í Fljótshlíð- inni að námi loknu. Um þessar mundir tók ljós- móðurnámið eitt ár. Með hjálp góðrar tengdamóður og mág- konu tók ég mig upp og fór til Reykjavíkur. Það var mikil breyting. Telpan okkar þá 12 ára og drengurinn 6 ára. Þau áttu svo góða ömmu heima að þetta blessaðist allt. Að ári liðnu kom ég svo aftur heim í sveitina og tók að mér Ijósmóðurstarfið í Fljótshlíðinni. Allt er breyting- um háð, konurnar hætt með árunum að fæða böm sín heima og fóru þá á sjúkrahús til að eiga börnin. Ég var um tíma einnig ljósmóðir í Holta- og Landsveit- arumdæmi og þar til öll umdæmin í sýslunni voru lögð niðurmeð nýjum lögum. Oddgeir Guðjónsson og Guðfinna Ólafsdóttir og börn þeirra á yngri árum. Árið 1965 varð að áeggjan Magnúsínu Þórðardóttur ljósmóður á Selfossi, að ég fór að vinna í Sjúkrahúsi Suð- urlands á Selfossi. Fyrst í sumarafleysingum og svo allt árið frá 1970 og þar til ég hætti lögum samkvæmt 1992. Þetta var mikið og dýrðlegt starf og veitti mér mikla gleði og ánægju. Ég er þakklát öllu því góða fólki sem ég hefi unnið með þar. Það hafa orðið miklar breytingar og framfarir á öllum sviðum þessi ár sem ég hefi lifað og áfram heldur lífið og breytingarnar - og vonandi allar lil bóta! Það sést best á því hvað ég hefi elst að nú á ég sjö barnabörn. Dóttir mín, Guðlaug, á tvö börn, Elínu Sig- urðardóttur og Sigurð Oddgeir Sigurðarson. Tengdasonur minn er frá Hvítárholti í Hrunamannahreppi, sonur Sig- urðar Sigmundssonar fræðimanns og Elínar Kristjáns- dóttur frá Felli í Biskupstungum. Hann er húsasmiður og búa þau hjónin á Hvolsvelli. Tunga í Fljótshlíð. Húsið er byggt 1952 afOddgeiri Guðjónssyni. Heima er best 7

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.