Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1995, Blaðsíða 16

Heima er bezt - 01.01.1995, Blaðsíða 16
 M |§fí r W m má un miklu magni af girðingarstaurum, jólatrjám og fleiri skógarnytjaafurð- um. Ungmennafélagið Þórsmörk í Fljótshlíð hefur að mestu annast gróðursetningu í Tunguskógi ár hvert. Ef svo fer sem horfir telur Oddgeir að innan fárra ára skili skógurinn góðum smíðavið og nú þegar eru gildustu trjástofnarnir 30-40 sm í þvermál. Hjónin frá Tungu, nú að Litlagerði 18 á Hvolsvelli, eru gestrisin og góð heim að sækja. Eftir að spurningum og spjalli við þau var að mestu lokið, einnig ökuferð í farkosti húsbóndans austur á bóginn, hvar gagnviðurinn Barnabörn Guðfinnu og Oddgeirs. Þegar þau hjónin í Tungu, Oddgeir og Guðfinna, hófu bú- skap þar árið 1942 gengu þau fljótt til verka og byggðu litla íbúð við gamla Tungubæinn sem nokkuð var kominn til ára og fremur þröngt þar á þingi. Þetta nýja húsnæði bætti úr brýnni þörf næstu árin. Arið 1952 rís af grunni nýtt íbúðarhús á nýjum stað, skammt frá gamla bænum í Tungu. Þetta hús er nú í eigu Skógræktar ríkisins, eins og áður segir, og býr þar nú einn af starfsmönnum Skógræktarinnar á Tumastöðum. Tunguskógur. Skógrækt hefur löngum verið eitt af hugsjónamálum Tungu- bóndans, enda faðir hans, Guðjón Jónsson bóndi í Tungu í 42 ár, áhugamaður mikill um skógrækt og aðrar lands- bætur. Árið 1952 afhenti hann Fljótshlíðarhreppi sjö ha af landi sínu undir skógrækt. Fljótlega var landið girt og gróðursetning hófst. Voru það einkum greni og furuplönt- ur sem þar voru gróðursettar og hefur Oddgeir haft um- sjón með skóginum - Tunguskógi - frá upphafi að fyrstu skógarplönturnar festu þar rætur fyrir meira en 40 árum. Tungu- og Tumastaðalönd liggja saman og hefur stór landspilda af Tumastaðalandi næst Tunguskógi verið tek- inn til skógræktar og mun þetta skógræktarsvæði allt vera eitt það vöxtulegasta í sýslunni og skilar árlega við grisj- vex, er gengið meðfram skápum og hillum í húsi þeirra Litlagerðishjóna. Þar gefur að líta listasmíði húsbóndans í ótal myndum og eru munir þessir allir að efni til úr Tunguskógi. Síðast (næstum í trúnaði) sé ég, svart á hvítu, þykkan bunka af ljóðum og lögum sem Oddgeir bóndi hefur samið og lagt til í tómstundum sínum, sönggyðjunni samtíð og framtíð til heilla. 12 Heima er best

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.