Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1995, Blaðsíða 28

Heima er bezt - 01.01.1995, Blaðsíða 28
fengið að ljúka okkar verkefni í því efni eigum við alltaf að vera tilbúin að mæta kallinu þegar það kemur. En svo ég haldi nú áfram að segja frá draumnum, þá fannst mér að ég bæði guð þama um að leyfa mér annaðhvort að fara aftur niður til þeirra eða að pabbi kæmi þá og sækti mig fram fyrir tjaldið. Um leið og ég var búin að biðja um þetta fór ég aft- ur niður í hinn jarðneska líkama minn og vaknaði í rúmi mínu. Vegna þessarar atburðarásar sem varð í beinu framhaldi af draumnum sem ég var að segja frá, hef ég að ölluni líkindum misskilið hann eitt- hvað og dregið þá ályktun að það væri ég sem myndi missa eitthvað eða deyja. Mér fannst ég vera að deyja, eins og sagt er, þegar þetta var að eiga sér stað. Eg var komin að þessu tjaldi en vissi að ég kæmist ekki inn fyrir það nema með leyfi þess æðri máttar sem yfir okkur ræður. Við verðum alltaf að fá aðstoðina til þess að komast yfir landamærin eins og við segjum. Það er erfitt að lýsa þessu tjaldi en ég held að ég megi segja að það hafi verið svona eins og Ijósbrúnleitt á litinn. Þetta var ekki neinn skær eða stingandi litur, en engan sá ég og í raun ekkert nema tjaldið og þá sem voru niðri á jörðinni. Þetta er sem sagt í fyrsta sinn sem ég tel að ég hafi farið úr líkamanum eins og það er kallað. Eg fór svo ekki aftur í slíkt ferðalag utan hans, að ég tel, fyrr en ég fór að aðstoða fólkið sem ég hef hér sagt frá, fyrst þar sem flugvélin fórst og svo varðandi skip- in. Mér vitanlega er ég ekki lengur í slíku hjálparstarfi og álít ég að það stafi af þeim meðulum sem ég þarf að nota í dag, því ég held að þau geti truflað svona hluti. Maður sefur á annan hátt og nær ekki sömu tökum á þessu. Hins vegar hefur mig dreymt ýmislegt sem síðan hefur ræst nokkurn veginn. Eg hel’ upplif- að hluti sem áttu eftir að eiga sér stað og jafnvel hafa verið að gerast um svipað leyti og mig dreymdi þá. Meðulin hafa ekki truflað mig þannig, ekki alltaf a.m.k. Eg veit að ég þarf að gera ýmislegt og þarf að fara ýmislegt, en það þurrkast yfir- leitt út síðan ég fór að nota þessi lyf. Eg man ekki nógu vel það sem ég hef þurft að fara og gera. Það hafa verið svona gloppur, því ég hef | seinna munað það, jafnvel þegar það kom fram og ég stóð frammi fyrir því og sá að ég var búin að lifa þetta. Lyfin gera það einhvern veginn að verkum að þegar maður vaknar þá er þetta búið. Nema að maður væri með blýant og myndi skrifa það um leið. Manstu eftir lcmdslagi himtm meg- in? Nei, t.d. þegar ég fór með þessa sjómenn fannst mér þetta eiginlega sama landslagið. Mér fannst þetta eiginlega mjög slétt, eins og grænar grundir. Mér fannst ég bara koma þarna að á græna velli og mér fannst ég skila þeim yfir á nákvæmlega sama landslag, bara fallegra. Fannst þér vera sólskin þarna? Já, það var bjart, mjög bjart. Það var líka mjög bjart yfir þeim og þótt þetta bæri ábyggilega mjög fljótt og hastarlega að fannst mér samt að þeim liði ekkert illa. En voru þeir húnir að átta sig á því að þeir voru dánir? Já, sérstaklega fannst mér menn- irnir á fyrra skipinu vera meira búnir að átta sig á því. Hinir voru svona eins og þeir gerðu sér eiginlega ekki grein fyrir því hvar þeir voru, eða því að þeir væru komnir yfir. Mér fannst heimþrá þeirra eiginlega sterkari, enda hafa þeir kannski komið lengra að og hafa verið famir að hlakka til heimkomunnar. Hinir voru bara að koma úr róðri. En urðu einhver orðaskipti á mílli ykkar, sem þú manst eftir? Nei, engin. Mér fannst ég eitthvað tala til þeirra um að þeir skyldu fylgja mér og mér fannst þeir nota hendumar þegar við fórum úr skip- inu. Eg leiddi þá og þannig er það alltaf. " Finnst þér þú gera þetta ósjálfrátt eða er þetta eitthvað sem þér finnst að þurfi að gera? 24 Heima er hest

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.