Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1995, Blaðsíða 25

Heima er bezt - 01.01.1995, Blaðsíða 25
Guðjón Baldvinsson: Komdu nú að kveðast á 27. þáttur Við byrjum þáttinn á tveimur ljóðum eftir Bergþóru Pálsdóttur frá Veturhúsum en hið fyrra nefnist Staka Þrösturinn vakti mig í morgun, mild og Ijúf ogfögur borgun -fyrir vol og vesalt tal. - Hér, í bjarkar faðmi fríðum, fann sér skjól í klettahlíðum. Söngva á hann voldugt val. Síðara ljóðið kallar Bergþóra Fyrsti þrösturinn Þröstur, minn vœngfrái vinur, veitir mér þráðafró. Eftir vetrarins hrollköldu hrinur hrífst af söhgvarans ró. Þú syngur um ástríki, unað, allt, sem mér kærast er... Eigi um marglitan munað, né meinfýsni í heimi hér. Heimþrá Vítt um breiða Atlantsála ennþá hugur leitafer, fjöllin bláufalda hvítu, fossinn þar sem lék ég mér. Heyri ég vorsins tóna titra, tíbrá glitra um sundin blá, huldur landsins hljóðar vaka, huga mínum birtast þá. Dalinn faðma fjöllin háu, fossar leita afhárri brún, lyngivaxnar brekkur breiðar, bœina meðfögur tún. Sé í anda œskureitinn, ævintýrahallirnar, listaverk sem litlar hendur lögðu á stund að móta þar. Mig dreymir heim í fjallafriðinn, finna laut og mosató, heyra Ijúfan lækjarniðinn, láta hugann hvíla í ró. Hér er allt svo stórt í sniðum, stendur huga mínum fjœr, allt er hér með öðrum siðum, engin lind við sjónum hlær. Ejöllin sem þarfaðma dali, friður ríkirþar og kyrrð, átthaganna blœrinn blíður Aðalheiður Þorsteinsdóttir sem býr í Svíþjóð hefur margar vísurnar og ljóðin ort og m.a. gefið út ljóðabók 1985, sem hún nefndi „Sporaslóð.“ Eftirfarandi ljóð hennar heitir Heima er best 21

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.