Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1995, Blaðsíða 29

Heima er bezt - 01.01.1995, Blaðsíða 29
Það eru alltaf einhverjir aðrir sent standa á bak við þetta og stjórna. Hefurðu orðið eitthvað vör við þá sem það gera? Nei, og ég veit ekki hverjir það eru. Veistu ekki um hjálpendur þína að öðru leyti? Nei, ég veit ekkert um það hver kann að hafa notað mig til þess arna. Aftur á móti man ég eftir því að ég fékk mjög góða hjálp þegar ég gekk með elsta strákinn minn. Þá var pabbi löngu dáinn. Hann dó þegar ég var 14 ára gömul. Að vísu hafði mig dreymt hann eins og gengur. Svo var það uni sumarið að við sátum úti á túni. Það var nú ekki búið að byggja eins mikið í Reykjavík þá og nú er. Ég átti þá heima við Hrísateig, og ég man að kirkjan var í smíðum. Á þessum tíma voru mjög fá hús við Hrísateiginn og Laugateiginn. Þarna voru því þessi fínu tún og við sem sagt sátum þarna úti og nulum góða veðursins. Þá bar þarna að konu sem ég hafði að vísu séð en þekkti ekki. Hún var ættuð vestan úr Breiðafirði og var í heimsókn hjá fólkinu í húsinu. Hún sat og horfði á mig þarna úti. Þá brá svo við að ég gat bara ekki hreyft mig og það fór svona einhver ein- kennilegur straumur um mig þannig að mér varð kalt í þessu líka glaða- sólskini sem var á, og það var nú að mér fannst hlýrra í gamla daga en núna. Ég sat þarna og var bara hrein- lega eins og negld niður. Ég hugsaði: „Hvern fjárann er kerlingin að glápa svona á mig.“ Þar sem ég átti í vændum að verða einstæð móðir innan tíðar datt mér helst í hug að hún væri að hneykslast á því með sjálfri sér, því að það hefði nú ekki þótt gott í ungdæmi hennar. Ég varð öskureið við tilhugsunina, en hreyft mig gat ég ekki. Það leið þó nokkur stund við þess- ar aðstæður þar til ég fann allt í einu að ég var laus. Þá var ég sko fljót að rísa á fætur og skunda heim. Frænka mín kom á eftir mér og spurði hvort ég væri orðin veik. „Nei,” sagði ég. „Ég ætla bara ekkert að sitja undir augnaráði þess- arar kerlingarálku. Hún getur sett út á einhverja aðra en mig.” Þessi kona er dáin fyrir allmörgum árum. Fékkstu að vita hvað hún var að gera þarna? Reyndar ekki fyrr en löngu seinna. Meðgangan var orðin mér svo erf- ið að ég vaknaði alltaf upp mjög snemma á morgnana, svona unr kl. 4-5. Þá fannst mér alltaf að það væri eins og að fóstrið væri fast upp undir bringspölunum. Ég þóttist hafa séð það á lækninum sem ég hafði farið í skoðanir til að hann fylgdist óvenju- vel með mér og mér fannst hann kalla nokkuð ört á mig í skoðanir. En hann sagði mér aldrei neitt. Eins og ég sagði vaknaði ég alltaf við þetta því að þá var orðið svo kæfandi að það var engu líkara en að ég væri að kafna. Einn slíkan morgun fannst mér eins og ég væri vöknuð. Þá sá ég, líklega hef ég verið í einhvers konar svefnástandi, að pabbi kom inn. Ég hafði aldrei séð hann með þessum hætti áður þó mig hefði oft dreymt hann. Ég sá einungis efri hluta hans, niður að mitti, cn að öðru leyti var hann eins og í móðu. Hann kom inn og gekk að höfðalaginu hjá mér og klappaði á höfuðið á mér og sagðist vera kominn með gesti. í því sá ég að frænka mín, sem var dáin, kom inn og ég sá hana á sama hátt og hann. Á eftir þeim kom læknirinn okkar, þ.e. heimilislæknir foreldra minna. Hann var einnig látinn þegar þetta gerðist, en þau voru öll miklir vinir. Reyndar dóu þau öll úr sama sjúkdómi. En læknirinn kom fulllík- amnaður ef svo má segja, íklæddur grænleitum fötum, í sportjakka með föstum spæli í bakinu og hálfsíðum pokabuxum. Hann hélt á læknatösk- unni svo allt var afar eðlilegt. Svo bara skyndilega hvarf allt, líkt og ég hefði verið svæfð. En síðan vaknaði ég inn í þetta aftur, þ.e.a.s. ég sá hann ganga frá rúntinu og frænku mína á eftir honum og pabba á hælunum á þeim út. Þegar pabbi kom inn fyrst fannst mér hann ekki opna dyrnar alveg heldur svona í hálfa gátt og komu þau öll inn um dyrnar þannig. En eftir að þau höfðu farið út aftur þá kom hann inn aftur að vörmu spori, gekk til mín og sagði: „Magga mín, nú fer þetta allt vel og þér kemur til með að ganga mjög vel með að eiga barnið.” Svo fór hann. Ég tók eftir að hann lokaði ekki dyrunum. Mér fannst ég nú sofna þessum venjulega svefni, ef svo má segja. Ég vaknaði svo við það að frænka mín og maður hennar stóðu við rúm- ið mitt og spurðu þau hvort ég hefði verið veik í nótt. „Nei,” sagði ég. „Nú, af hverju svafstu svona ein- kennilega?” „Ég svaf ekkert einkennilega,” svaraði ég. „Jú,” svöruðu þau, „og þú hefur farið fram, því hurðin var hálfopin.” Ég innti þau eftir því hvernig hún hefði verið opin. Þau sýndu mér það en það var siður þeirra á meðan ég var hjá þeim að koma inn á hverju Heima er hest 25

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.