Heima er bezt - 01.01.1995, Blaðsíða 12
Með tveimur af Ijósuhörnum sínum.
hefi hús að sýsla við, svo prjóna ég og les mikið, syndi
og hjóla. Á sumrin vinn ég mikið í garðinum við húsið
okkar. Hann er nokkuð stór og hressandi að vinna í hon-
um og vera úti þegar gott er veður.
Eg hefi alltaf haft gaman af að hjálpa öðrum, enda hef-
ur það verið mitt starf að hlúa að og hlynna að fólki.
Guðfinna og systkini hennar.
Sonur minn, Olafur Sveinn, á fimm börn. Hann býr í
Brussel og vinnur þar hjá EFTA. Kona hans er frá Edin-
borg í Skotlandi og heitir Fiona McTavis. Börnin hans
heita Hulda, Berglind, Arndís Finna, Geir og Brynjar.
Dætur sínar á hann með fyrri konu sinni, Elínu Jóhanns-
dóttir, Kópavogi.
Árið 1991 ákváðum við hjónin að flytja frá Tungu til
Hvolsvallar. Eg var enn í fullu starfi á Selfossi og því oft
ekki heima. Oddgeir var löngum einn við búskapinn, þvf
bömin okkar voru þá farin að heiman og búin að stofna
sín eigin heimili.
Við áttum litla íbúð á Sel-
fossi og þar var minn annar
dvalarstaður, en margt breyt-
ist með árunum og við ákváð-
um að breyta til. Skógrækt
ríkisins á Tumastöðum, næsta
bæ við Tungu, keypti jörð og
hús í Tungu og við fluttum á
Hvolsvöll. Þetta var mikil
breyting eftir nær 50 ára bú-
skap í blómlegri sveit. Við
keyptum notalegt einbýlishús
að Litlagerði 18 og þar dvelj-
um við nú í góðu umhverfi
með góðum nágrönnum.
Eg hætti að vinna á Selfossi
þegar ég var 70 ára og varð
að finna mér eitthvað til
dundurs. T.d. reyni ég að
heimsækja barnabörnin mín í
Brussel minnst einu sinni á
ári, en ég á fjögur þeirra þar.
Dóttir Guðlaugar minnar hefur
lagt áherslu á fjölþætt nám þar
ytra og vinnur um þessar mundir í fjármáladeild EFTA.
Þar var erfitt að hætta og hafa ekkert fyrir stafni, en ég
8 Heima er hest