Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1995, Blaðsíða 32

Heima er bezt - 01.01.1995, Blaðsíða 32
„Hvað er að sjá buxumar maður, allar í götum,“ sagði hún. „Það er nú ekki að undra,“ sagði hann, „því ég skaut á þær mestöllum skotfærunum, sem ég fór með, já og veitti ekki af, það var hvergi neitt um rjúpu núna nema í þeim. Þú getur varla ímyndað þér hvað mér þótti gaman að skjóta blessaðar rjúpurnar í buxunum. Svoleiðis veiðiferðir fer maður ekki á hverjum degi.“ Hún tók nú buxurnar upp og hristi þær. Loks datt úr þeint ofan á gólfið - grár köttur, svo aumingjalegur að hann gat varla staðið á fótunum. Ami spratt upp og blíndi á köttinn. „Hristu þær betur,“ sagði hann við Jönu. „Það er ekki meira í þeim,“ sagði hún. „Ha - a - skal kötturinn hafa étið rjúp- umar upp með fiðri og öllu saman eða skal ekkert hafa verið í þeim annað en kattarskrattinn?“ sagði Ámi og fálmaði til kattarins. „Var kötturinn í buxunum þegar þú skaust á þær öllum þessum skotum?“ spurði Jana. „Það hlýtur að vera því ekki hefur hann komið í þær síðan.“ „Eg trúi því varla, kötturinn er lifandi en þó eru buxumar allar sundurskotn- ar,“ sagði hún og fór að skoða þær. „Já, ég held það nú, varla lófastór blettur heill í þeim,“ bætti hún við. Ámi fór nú að skoða köttinn, óá- nægður yfir því að ftnna hvergi sár á honum. „Hvernig atvikaðist þetta?“ spurði hún. Hann sagði henni þá allt eins og var. „Buxumar hafa náttúrlega blásist upp af veðrinu og þess vegna hefur þér sýnst þær vera úttroðnar," sagði hún. „Getur vel verið. En sjáðu til, þarna hefur kisa fengið skot í sig og þama annað rétt hjá. Bæði í gegnum stýrið. Hver ætli hefði gert það betur en ég, að skjóta tveimur skotum í gegnum kattar- stýri,“ sagði Árni rogginn, „og það inn- an í buxunum,“ bætti hann við. „Þú er meira flónið,“ sagði hún og hristi höfuðið, „að eyðileggja fyrst bux- umar með bölvuðum skotunum svo ó- mögulegt er að nota þær í bætur, þenj- ast svo með köttinn í þeim á bakinu undan öðru eins trölli og lyngpokanum, slíta axlaböndin og telja sjálfum þér þá trú um að þú sért sprunginn af mæði, hafir fengið gat á bakið og þar streymi lífið út um eins og loft úr útblásinni blöðru, þykist heyra þegar loftið er að streyma út um bakið á þér, sem er þá ekkert annað en korrið í kettinum, sem þú gast þó ekki sært neitt að ráði í buxnabardaganum. Mér dytti ekki ann- að í hug en skilja alveg við þig, ef það gerði ekki eiðurinn. En ég fyrirbýð þér að snerta framar á byssu á meðan við erum saman.“ „Hvað á ég þá að gera við allt púðrið sem ég beiddi Itann Sigga á Þúfu að taka fyrir mig á Eyri um daginn?“ sagði Árni. „Ég held að þú getir selt það,“ sagði hún. Árni fór nú að hressast eftir þetta og náði sér brátt, en kötturinn var lasinn marga daga á eftir. Gróf í skottinu á honum hvað eftir annað. Reyndi Árni að græða hann með öllu sem honum datt í hug en ekkert dugði. Lét hann köttinn sofa hjá sér á hverri nóttu. En einn morgun er Árni vaknaði var kisa dottin í tvennt. Lá hún sjálf upp í horni en skottið fram við stokk. Tók hún þá að hressast fram af því, en skottlaus var hún alla ævi síðan. Veislan Vikuna áður en Árni ætlaði að halda brúðkaup sitt var mikið að starfa í Klömbrum. Jana vildi halda reglulega veislu og bjóða mörgu fólki. „Eins mörgu og Klambrabærinn tek- ur,“ sagði hún „Það er ekki svo oft, sem maður giftir sig,“ bætti hún við. Fallegustu kindunum var slátrað og soðnar niður í trog. Árni sleit tvennum leðurskóm til að útvega áhöld þau, sem hafa þurfti til veislunnar og bjóða fólk- inu í hana. Voru það allt helstu ntenn og konur sveitarinnar sem boðið var. Allir vissu um hinn mikla viðbúnað í Klömbrum, svo mörgum var forvinti á að koma til að sjá alla dýrðina. Jana varð að taka tvær stúlkur til að hjálpa sér með það sem þurfti að gera fyrir helgina. Baðstofan var öll þvegin hátt og lágt. Þótti það undrun sæta, því það hafði ekki verið gert fyrr í manna minn- um. Búrið var sópað hatt og lágt, veggirnir tjaldaðir með striga og borð- um slegið upp langs með báðum veggj- um, því þar átti allur fínasti veislukost- urinn að geymast. Einnig var tekið til í eldhúsinu, því þar voru kjöttrogin geymd, auk margra annarra matarteg- unda. Pottbrauðin voru bökuð hvert á fætur öðru og kaffið brennt niður í stór ílát. Þetta voru sannkallaðir gleðidagar fyrir kýrnar, því þær fengu marga góða mélklessuna og brauðbitann en það var þeirra uppáhaldsmatur. Kálfurinn fékk nú alls ekki að koma í búrið á meðan á þessu stóð, en þar hafði hann verið tíður gestur um sumarið, svo honum brá mjög við. En sá sem verst bar sig af öllum var Árni. Hann var alveg búinn að missa matarlystina af vökum og áreynslu og auk þess var hann orðinn svo sárfættur af hlaupunum að hann þoldi í hvorugan fótinn að stíga. Loks undir helgina sendi Jana hann út á Eyri eftir öllu „fína brauðinu.“ Fór hann ríðandi, svo hon- um fannst það stór hvfld fyrir sig. En þegar hann fór að ríða til lengdar fór svefninn að pína hann. Hann dottaði ofan í hestfaxið og var mörgum sinnum nærri oltinn af baki. Loks komst hann þó slysalaust út á Eyri. Hafði hann þar litla viðdvöl. Tók hann brauðið, sem var í tveimur köss- um og lét hann þá á hrossið, sem hann hafði í taumi. En þegar hann var skammt kominn upp fyrir kaupstaðinn rykkti sú brúna, sem hann teymdi, svo hann var nærri dottinn af baki. En í því hrukku kassarnir af henni. Árni stökk af baki og fór að stumra yfir kössunum en þegar hann leit upp var Brúnka farin að velta sér. Árni rak hana á fætur aftur. Var þá klyfberinn allur genginn úr lagi. Varð hann fokvondur þegar hann sá skemmdirnar. I því bar þar að tvo menn ríðandi. „Sæll vertu,“ sögðu þeir. „Já, ég held það nú,“ sagði Ámi. Hann grúfði sig ofan að klyfberanum og var í óða önn að gera við hann. „Em kaupmennirnir heima?“ spurðu þeir. „Þeir eru allir mölvaðir eftir merina," sagði Ámi ergilegur „Þið sjáið að brot- ið af einum situr þarna í gatinu,“ bætti 28 Heima er best

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.