Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1995, Blaðsíða 22

Heima er bezt - 01.01.1995, Blaðsíða 22
I lauginni á Hveravöllum. VIÐ KJALVEG Ein dýrmætasta og stór- fenglegasta náttúruperla sem við Húnvetningar getum státað okkur af er án efa Hveravellir við Kjalveg. Þetta jarðhita- svæði norðan undir Kjalhrauni sem hefur að geyma marga gullfall- ega vatnshveri, ásamt svo mörgu öðru sem vert er að skoða. egar nálgast Hveravelli má sjá |gufustróka upp frá hverunum og þá kemur einhver undarleg timnning í brjóstið, einhver gleði eða eftirvænting. Mín tilfinning er sú að Hveravellir séu ein af aðalorkustöðv- um landsins, eins og til dæmis Borg- arvirki, Asbyrgi og Snæfellsjökull. Það er sérstakt andrúmsloft á Hvera- völlum. Mér finnst ég anda að mér orku og endurnýjun á þessum heill- andi stað. Ef við tölum um að staðir hafi heilunarmátt, þá mundi ég mæla með því að fólk færi á Hveravelli. Hvort sem kraftaverk gerast þar eður ei þá get ég lofað því að líðanin verður betri og ferðin ógleymanleg. Margir merkir hverir eru á Hvera- völlum. Má þar nefna Eyvindarhver, sem kenndur er við Fjalla-Eyvind, Bláhver og Grænhver, sem bera þessi nöfn vegna lita sinna, Öskuhólshver, sem er hrúðurstrýta með miklu gufu- uppstreymi, og Bræðrahveri, en auk þessara eru ótal margir sem ég kann ekki nöfn á. A Eyvindarhver má glögglega sjá að í honum hefur verið soðið. Ferðafélag Islands reisti sæluhús á Hveravöllum 1938. Við þetta gamla sæluhús stendur laug sem er um margt mjög sérstök. Er hún hlaðin og sérstaklega notaleg. Bæði laugin og umhverfið er svo náttúrulegt að mann langar til að dvelja þarna langa stund. En Ferðafélagið reisti annað hús stutt frá hinu gamla árið 1980. Gamalt hlaðið hús stendur sunnan 18 Heima er best

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.