Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1996, Page 17

Heima er bezt - 01.04.1996, Page 17
en ekki fyrirsjáanlegt, að hún geti nokkru sinni rætzt til hlítar. Takmarkið, sem mannkynið á að keppa að, er að lina svo þrautir og bágindi mannfélagsins, að það verði siðaðra manna, er hjálpi hver öðrum að bera byrðarnar, svo að hinir veiku og lítilmótlegu, þeir sem snauðir eru að þessa heims gæðum, geti einnig notið einhverra þæginda í lífinu. Þá er mannkynið er komið á það stig, að það er ekki eingöngu hnefarétturinn, sem gildir í viðskipt- um manna, þá má fyrst tala um sann- ar framfarir. En hefur nú 19. öldin með öllum sínum risafetum færzt nær þessu tak- marki? Það er spurning, sem ekki er auðvelt að svara. En svo mikið mun samt mega segja, að hún hafi tölu- vert þokað mannkyninu í þessa átt, miklu meir en hinar fyrri aldir, því að hefði hún ekki gert það þrátt fyrir allar framfarirnar, sem svo mikið er talað um, þá væri fremur huggunar- snautt að horfa fram á ókomnar aldir. Vér getum því huggað oss við, að mannkynið er í stöðugri framþróun, ekki aðeins í þekkingu og skilningi, heldur jafnframt og þar af leiðandi, í framkvæmdum til almenningsheilla, til meiri velgengni, ánægjulegra og fjölbreytilegra lífs. Að neita því væri of mikil þröngsýni, of mikil svart- sýni og hrapallegur misskilningur á gildi tilverunnar og þýðingu þeirri, er aukinn þroski og fullkomnun mannsandans hlýtur að hafa á allt Iíf manna og lifnaðarháttu. Menn mega ekki blína sig blinda á einstökum skuggablettum á hinum heiðskíra himni þekkingarinnar eða furða sig á nokkrum blóðlituðum daunillum drefjum í sporum menn- ingarinnar á sigurför hennar yfir heiminn, því að ekkert er svo gott einvörðungu, að það sé ekki að ein- hverju leyti meini blandið. Það á að verða hlutverk nýju aldar- innar að gera skuggana minni og slóð menningarinnar ekki jafn spor- ræka niður á við, til tortímingar ýmsu fólki, sem stundum endranær, heldur sporræka upp á við, að háu og göfugu takmarki, því takmarki að gera mannkynið hraustara, skynsam- ara, frjálsara, upplitsdjarfara, ánægð- ara, vonbetra og kærleiksríkra en fyrr. Með þeirri ósk og von biðjum vér nýju öldina velkomna, og kveðjum hina gömlu, þakkandi henni fyrir þann grundvöll, er hún hefur lagt. Nýja öldin hefur fengið mikinn arf frá hinni gömlu og vér vonum, að árið 2000 hafi hann aukizt svo og margfaldazt, sem núlifandi menn hafa litla eða enga hugmynd um. Mundi þeim, sem nú eru uppi, þykja gaman að geta litið upp úr gröf sinni að hundrað árum Iiðnum, og sjá þá, hvernig umhorfs væri í heimin- um. Þótt breytingarnar yrðu þá ekki tiltölulega meiri en þær hafa orðið næstliðin 100 ár, þá væru þær samt geysimiklar. Og hver veit nema þær verði enn stórfelldari? Þjóðólfur 18. september 1907. Norðmanna- róstur á SigluSirði Maður, nýlega kominn að norðan, Ögmundur Sigurðsson kennari, flyt- ur frétt af allmiklum usla og ófriði, er norzkir síldveiðamenn hafi gert á Siglufirði, sunnudag 25. f. mán., ráð- ist á yfirvaldið og gert annan óskunda. Hinn setti sýslumaður í Eyjafjarð- arsýslu, cand. jur. Björn Líndal, hafði verið staddur út á Siglufirði, í málavastri út af landhelgisbrotum Norðmanna. Þá var búið að ná 30 norskum síldveiðaskipum alls og sekta. Sumum hafði Valurinn danski náð, en sýslumaður fleiri þó. Þeir voru því orðnir honum allreið- ir, sýslumanni, bæði þeir, sem sektaðir höfðu verið og aðrir, sem þurftu að svala sér fyrir tollinn nýja eða tollhækkunina á síldinni. Tilefni uppþotsins þennan dag var það, að norsk skipshöfn á legunni á Siglufirði, hafði gerst ölvuð og ráðist á skipstjóra með misþyrmingum, er hann ætlaði að spekja þá. Var þá sent eftir lögreglustjóra. Hann lét taka 2 verstu óróaseggina, leggja á þá jám og flytja á land. Með því að enginn er þar fangaklefinn, var þeim snarað inn í vörugeymsluhús. Þá kemur önnur skipshöfn norsk, utan af legunni, ræðst á húsið, þar sem landar þeirra hinir seku voru geymdir, mölvuðu það og náðu þeim út. Því næst réðust þeir á önnur hús í kauptúninu með grjótkasti í glugga og óþverra, otuðu knífum og hótuðu sýslumanni að saxa hann sundur. Hann var liðfærri miklu og hörfaði undan inn í kirkjuna, sem hafði verið lánuð norskum kennimanni þar stöddum til messugjörðar yfir lönd- um sínum. Þetta var á áliðnum degi. Prestur sá fór að reyna að tala um fyrir óróaseggjunum. En þeir létu sér hvergi segjast og réð hann sýslu- manni til að hafa sig undan að sinni. Hann sá þann sinn kost vænstan; en safna síðan liði, er hafði aflað sér barefla, og ræðst í móti óaldar- flokknum, er hafði enn magnað fjandskapinn, gekk sjálfur í broddi fylkingar með skammbyssu í hendi og fékk loks stökkt Norðmönnum á flótta, þótt liðfleiri væru miklu, náði 2 forsprökkum þeirra og snaraði í varðhald. Hinir flýðu út á skip sín. Dönsk blöð, hingað komin, er segja frá þessum atburði, eftir hrað- skeyti frá Seyðisfirði, láta sem 50 norsk síldveiðaskip hafi verið höndl- uð og sektuð þar nyrðra, mánuðinn sem leið og hafi látið úti um 30.000- 40.000 kr. Frá Akureyri er svo sagt af hátterni Norðmanna þar að þar, sé hið mesta sukk af þeirra hendi, með drykkju- skap og ólifnaði; mannfénaði þeim ekið í hlössum á kveldum úr veit- ingaskálanum í fangelsi bæjarins. Heima er bezt 133

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.