Heima er bezt - 01.04.1996, Blaðsíða 36
þess, því útstreymi fundargesta og ára
miðils, sem er þrungin nægilegum efnum
til lrkamningagerðar, spara þeim bæði
tíma og erfiði og einfalda þeim mótun
þeirra, alveg eins og kaup klæðis auð-
veldar sköpun flíkur og sparar klæðsker-
anum framleiðslu ullar, körtunar, spuna
og vefnað, áður en hann sníður og saum-
ar flíkina.
Stundum þarf svo mikið efni frá miðl-
inum að hann léttist þess vegna verulega.
Stundum er þörf nær alls efnis miðilsins,
þannig að hann hverfur sjónum venju-
legum augum, þó þeir skarpeygu skynji
andalíkama hans enn í stólnum. I slíkum
tilfellum eru það aðeins hin grófu efnis-
kenndu atóm, sem eru hagnýtt, en þau
andlegu eru ósnortin. Venjulega er þeim
öndum, sem taka þátt í miðilsfundum,
bæði þeim, sem íklæða sig og þeim sem
aðstoða, ókunnugt um þær aðferðir, sem
notaðar eru til þess að líkamningafyrir-
bæri komi í ljós, rétt eins og margir, sem
notfæra sér uppgötvanir efnafræðinnar,
skilja ekki hin raunverulegu rök eða lög-
mál, sem að baki liggja. Bak við öll lík-
amningafyrirbæri finnst alltaf ósýnilegur
stjómandi, frá sviði, sem er langtum þró-
aðra en jarðsviðið. Hann mætti nefna
hinn efnafræðilega stjórnanda, en hann
ráðleggur anda, sem hefur sérstaka hæfi-
leika til stjómunar á öflum stjarnsviðsins
og öðram öndum, sem aðstoða hann, að
hafa samband við miðilinn og hafa eftir-
lit með myndun líkamninga, sem eru ná-
tengdir fundargestum á miðilsfundi.
Öflug hreyfing finnst nú í andaheimi
til þess að fræða bæði anda og lifendur
og þeir „Guðsþjónar" bæði í Austur- og
Vesturlöndum, sem berjast munu gegn
slíkri fræðslu, munu bíða ósigur. Kraft-
urinn er of sterkur. Mannanna börn
munu öðlast fræðsluna, frá öllum hliðum
og gegnum allar dyr, sem reynt er að
halda lokuðum fyrir þeim. Ógjörlegt er
að kæfa þekkingu, hún er óbreytanlegur
fæðingarréttur hverrar sálar. Hún getur
heldur ekki orðið einkaeign nokkurs
hóps manna.
Þegar sálin byijar að hugsa, mun hún
sækjast eftir fræðslu og nærast af öllum
þeim molum, sem falla henni í skaut.
Það væri því betra að veita fræðslu öll-
um þeim, sem í sannleika leita hennar,
svo hún geti orðið þeim vissa í staðinn
fyrir að reyna að kæfa hana og láta sál-
inni eftir að leita hennar á sorphaugum
villukenninga.
Mannkynið er í stöðugri framþróun,
sem krefst frelsis og lausnar frá leiðandi
helsi, nema það gefi eftir og heimili eðli-
lega þróun á þekkingu eins langt og hún
I
15 2 Heima er bezt ZmPZ
nær. Er það þá ekki réttmætt að þeir
fróðu svali þorsta eftir birtu og fróðleik
eftir öllum hugsanlegum leiðum, hjá öll-
um þeim, sem þyrstir í hann og á þann
hátt, sem fræðslan verður aðgengilegust?
Þessi pláneta er aðeins rykkorn í al-
heiminum. Það, sem hún veit er aðeins
örlítið brot af alheimsvísdómnum, eins
og hann er á hverjum tíma, aðgengilegur
og nauðsynlegur, þannig að trúarþörf
einstaklingsins fái nýja og aukna birtu,
ekki með því að blinda fyrir þekkingu,
nema hún valdi snjónum ofbirtu (menn
séu ekki reiðubúnir að taka við henni).“
31. kafli
„Hussein, það er enn eitt atriði, sem
mig langar til að spyrja þig um. Oft hef
ég heyrt fólk láta í ljós þrá eftir að vita
hvers vegna það getur ekki aðgreint
þessi svið kringum jörðina og milli jarð-
ar og sólar og séð þá anda, sem sagðir
eru í stofu nær þeim. Það er skiljanlegt
að allir sætti sig við að það sé vegna þess
að þeir séu ekki skyggnir eða sjái hluti
innri augum. Þeir óska frekari skýringa.
Eg er sjálfur andi og veit að ég er til, svo
er og um bústað minn, en þeirri spum-
ingu get ég ekki svarað, getur þú það?“
Hussein hló.
„Ég gæti fært fram tylft lærðra skýr-
inga, en hvorki þú né dauðlegir menn,
sem skortir hæfileika til þess að sjá anda,
yrðu öllu fróðari þó ég romsaði þeim
upp. Ég verð því að svara spurningunni
eins laust við tæknilegar skýringar og
mér er unnt. Ég spyr því fyrst hvort þú
hafir séð myndir af líkamningum, sem
birst hafa á ýmsum sálarrannsóknafund-
um?
Ef svo er, væri þér ljóst að með dauð-
legum augum verða þeir aðeins séðir
hálfgagnsæir. Þetta ætti að gefa þér hug-
mynd um þá efnisgráðu,sem líkamningur
hefur. Efnisagnirnar eru svo gisnar að
þeim má líkja við fíngert riðað net, tengt
saman ósýnilegum ioftkenndum atóm-
um. Þau eru raunverulega svo fín, að þau
verka ekki á bestu tegundir ljósmynda,
sem nú eru á markaðnum. Ekki er unnt
að ná myndum af öndum sem hafa horf-
ið af andasviðinu, með þeim myndatækj-
um sem nú eru til, þar eð þá skortir hinar
grófari efnisagnir og verða því annað
hvort að mynda líkamninga eða nota að-
ferð, sem gefst vel og venjulega er notuð
þegar mynda á anda, sem eru sýnilegir
skyggnum mönnum en ósýnilegir venju-
legum mannlegum augum. Þetta má
skýra í stuttu máli með því, að andar
nota þau andahulstur, sem ég hef skýrt
þér frá, sem þokumekki af hálfefnis-
kenndum mannlegum atómum, sem eru
svo teygjanleg í samsetningu, að andar
geta mótað með þeim mynd sína, líkt og
listamaður mótar í leir. Slíkir líkamning-
ar hafa verið myndaðir og lfkjast mynd
af öndum, sem með viljamætti geta gert
þá líka sér. Þó myndimar séu þannig
raunverulega ekki af öndunum sjálfum,
þá era þær þó sannanir fyrir andakrafti
og tilveru þess anda, sem birtist í mynd-
inni, þar eð sérhver andi verður sjálfur
að móta þessi teygjanlegu efni í eigin
mynd, þar sem efniskenndar andamyndir
koma skýrt fram á myndaplötunni, þá
mynda andar raunverulega líkami af efn-
iskenndum atómum og íklæðast þeim.
Skyggn vera, sem sér slíka líkamninga,
sem mynda á, getur sennilega ekki greint
þá frá raunverulegum líkömum, því að-
greiningarhæfni miðla er enn ekki nógu
þroskuð. Þeir geta heldur ekki gert sér
grein fyrir því hvers vegna líkami, sem
virðist raunverulegur og þéttur, sést á
myndinni sem hálfgagnsær. Þeir sjá bæði
hið andlega efni og það grófara samtímis
og fyrir þeim fá þau útlit raunveralegs
líkama, með skýrt afmarkaða limi, en
ekki útlit „andaskugga“ þó þeir birtist
raunverulega sem skuggakenndari verar,
þá er það, eins og ég hef sagt, að mynda-
tæknin getur aðeins náð mynd af hinu
grófara efni, en ekki því sálarlega.
Blindaðir vísindamenn, sem leita að
lausn á jafnerfiðri gátu, sem er svo óend-
anlega torráðin, styðjast aðeins við eigið
hyggjuvit og draga síðan þá ályktun að
þeir séu færir um að gefa fullkomna
skýringu á svo víðfeðmu vísindalegu
efni.
En látum okkur snúa aftur að spum-
ingum þínum. Þegar ég nú hef skýrt fyrir
þér, með hvaða hætti myndasmiður getur
myndað andaveru, sem birtist sem þoku-
kennd, draugsleg mynd, skal ég sýna þér
hvernig dauðleg augu sjá hana, en til
frekari skýringar á skoðun minni, bið ég
þig fyrst að ímynda þér, að þú sért á ný
kominn í þinn jarðneska líkama, án frek-
ari miðilshæfni en þú hafðir. Látum okk-
ur gera samanburð á efni og anda með
tvennum sjónum. Annað skulum við
kalla vinstra auga, hitt hið hægra og lát-
um vinstra augað sjá efnið en hið hægra
andann. Göngum út frá því að þú snúir
baki í birtuna og haldir vísifingri upp að
vinstra auga, sem eitt getur séð fingur-
inn, en hægra augað sér aðeins vegginn
framundan. Lokaðu síðan vinstra auganu
og fingurinn verður þér þá ósýnilegur.
Þó er það staðreynd að hann er á sínum
stað, aðeins ekki í sjónmáli vinstra aug-