Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1996, Side 18

Heima er bezt - 01.04.1996, Side 18
Guðjón Baldvinsson: Komdu nú að kveðast á 41. þáttur skar Þórðarson frá Haga byrjar þáttinn hjá okkur núna og kemur hann að vanda, víða við í vísna- gerð sinni: Til hestamanns. Heillar knapann hestsins snilld, höndin styrk á taumi. Fannst mér rök égfinna gild fyrir mannsins draumi. í tímans straumi. Tímans streymi er mörgum mein, margt sem burtu flýtur gleymist. Minning ein og ein engri glötun lýtur. Varúð. Það er vert að gefa gaum að gleðinni sem fundum. Þó er hollt að hafa taum á hamingjunni stundum. Uppsagnir. Fólkið okkar grátt og grett gengur fölt og hokið. Sér ei nokkurn sólskinsblett senn er öllu lokið. Sigfús Þorsteinsson frá Rauðuavík, yrkir um ellina og segir: EIli. Það er margt, sem að mér er, ónýtt bæði haus og bak, minnið þrýtur, því er ver þegar Ellin herðir tak. Bágt er hana að berjast við, bœði kann hún sókn og vörn og ekki veitir okkur grið uns á ný við teljumst börn. Við höfum birt hér áður í þættinum, hluta úr ágætu bréfi sem við fengum frá Hirti Arnórssyni á Akureyri, þar sem hann fjallaði meðal annars um ýmsar reglur er þekktust í þeirri íþrótt að kveðast á, o.fl. Eitt af því sem Hjörtur minnist á er greinamerki í vísum og segir hann um það atriði eftirfarandi: „Notkun greinamerkja hefur minnkað á síðustu árum. Erfiðara er um reglur í bundnu máli en lausu. Leitaði ég dæma í Vísnasafninu hans Sigurðar frá Haukagili, fyrsta bindi, um hvað betur mætti fara. Oft kemur punktur inni í miðri vísu. Vonandi. Ætíð skaltu hafa í huga, hverfi og bregðist vinarþel. Það er alltaf einhver smuga ef þú leitar nógu vel. Þegar slóðin örðug er og engar bjóðast lendur. Alltaf Ijóðið yljar mér eins og móðurhendur. (Ásgrímur Kristinsson, bls. 13.) Baráttan. Það er eins með þig og mig, þessi gamla saga, barátta við sjálfan sig sífellt alla daga. Yfir bárur ágirndar elligrár og slitinn. Reri árum rógburðar rann af hári svitinn. (ísleifur Gíslason, bls. 29.) 134 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.