Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1996, Síða 21

Heima er bezt - 01.04.1996, Síða 21
Sjálfslýsingu samdi Jón, að því er virðist allnákvæma, sem hljóðar svo: „Guð gerði mig velskapaðan meðalmann á hæð, með léttu geðs- lagi, útlimasmáan, vöðvaþrekinn, með smáar þykkar hendur en sérlega mjúkar, sem kom sér vel fyrir sæng- urkonur og aðra sjúka, með rauðan andlitsfarða fram eftir aldri, er síðan dökknaði, kringlu- og langleitan, með breitt, slétt, upphátt enni, kringlótta höku, þunnar kinnar og undirhöku, með mikið ljósgult hrokkið hár á herðar niður, er eyddist og dökknaði á jarðeldaárunum, léttan í spori, svo snaran að geta sett upp bagga báðum megin á hest, án þess að undir væri staðið.“ Að framansögðu má vel draga þá ályktun, að Jón hafi verið hinn álitleg- asti maður, enda fór svo, að á skólaár- um hans voru tvær jafnöldrur hans svo ólmar í hann, að þær elduðu oft saman grátt silfur þess vegna, og víst var um það, að ekki leið langur tími frá því að Jón Vigfússon, þáverandi húsbóndi hans, andaðist, þar til ekkj- an varð ektakvinna hans. Að loknu skólanámi gerðist Jón að- stoðarmaður síra Jóns Vigfússonar, klausturhaldara að Reynistaðar- klaustri í Skagafirði, og þar var hann árin 1751-53. Þegar nafni hans Vig- fússon andaðist 1752, tók hann við dánarbúinu, uns það var gert upp 1753. Síra Jón Vigfússon var mikill drykkjumaður og illur með víni. Þeg- ar hann var drukkinn, barði hann oft og tíðum konu sína, Þórunni, sérdeilis þá er hún var þunguð. Vegna þessa þurfti oft að ganga á milli þeirra. Utan víns var hann spakur og fastheldinn maður. Kona Jóns Vigfússonar var Þórunn Hannesdóttir frá Hólum í Hjaltadal, sem fædd var árið 1718. Foreldrar hennar voru Hannes Lauritzon Schev- ing sýslumaður og Jórunn Steinsdóttir (biskups Jónssonar). Þórunn missti snemma föður sinn og ólst því upp í Laufási hjá Jórunni móður sinni og Stefáni Einarssyni prófasti, síðari manni hennar. Þórunn og Jón Vigfússon eignuðust fímm börn. Þar af komust tveir dreng- ir og ein stúlka upp. Jón andaðist eftir 12 ára sambúð þeirra hjóna. Sagt var, að Þórunn hefði gifst honum gegn vilja sínum. Andlát síra Jóns Vigfússonar bar svo að, að hann hafði setið lengi við drykkju ásamt smiði sínum, Bimi Amasyni, illa þokkuðum og ágjöm- um manni, og nokkmm landsetum sínum. Einnig var þar vinnukona sú, er Halla hét og var lítt betur þokkuð en Bjöm. Nefnd Halla þjónaði síra Jóni Vig- fússyni til sængur þá nótt, sem í hönd fór. Þennan dag hafði Jón Steingríms- son fylgt Guðrúnu, systur Jóns Vig- fússonar, fram að Hólum, en hún hafði verið í heimsókn hjá bróður sín- um. Þegar hann kom svo heim um kvöldið, heyrði hann mikil drykkju- læti frá húsi Jóns Vigfússonar, og þar sem hann var þreyttur, gekk hann strax til hvflu og sofnaði brátt. Um miðja nótt dreymdi hann, að sagt væri við hann: „Vaknaðu Jón, því hann Guðbrand- ur á Brimnesi er kafnaður í Fúlu- tjöm.“ Guðbrandur var frændi Jóns Stein- grímssonar, bærinn og tjörnin vom til. Við þetta vaknaði Jón og sofnaði ekki meira þá nótt. Að morgni kom nefnd Halla inn til hans og sagði nafna hans Vigfússon látinn og liggja dauðan í sæng sinni, og brá hér öllum við. Fór Jón nú aftur til Hóla og sótti Guðrúnu, systur Jóns Vigfússonar, sem sá síðan um útför hans ásamt skylduliði sínu. „Að þessu afstöðnu og uppskriftar sterbúsins biðja hlutaðeigendur mig, sem þá er aðeins djákni, að taka að mér búið og varðveislu þess, þar til skipti þess fara fram. Þórunn hús- freyja var, er hér var komið langt gengin með Karitas, síðasta bam þeirra hjóna og því ekki til stórræð- anna búin. Þar sem illgimin og öfundin fengu ei þolað að eg, svo umkomulítill sem eg er, skyldi komast til þeirra umráða, sem hér hafa greind verið, fóru ill- gjörðarmenn mínir að bera út ýmsar lygar um mig, svo sem að eg væri faðir barns þess er í vændum var og að eg hafi séð fyrir Jóni Vigfússyni. Þetta lygaámæli hagnýtti nefndur Bjöm sér og lét hann til mín og hús- freyju berast, að hann myndi vita um afdrif klausturshaldara,“ segir Jón Steingrímsson, en þó féll umræða þessi að mestu niður að sinni. Þá er síra Jón Vigfússon var látinn og Þómnn hafði alið Karitas, fór að bera á miklu óyndi hjá henni, og reyndi Jón Steingrímsson að hugga hana við og hressa, svo sem hann mátti, og leið nú ekki á löngu, þar til að saman fór að draga með honum og húsmóðurinni. Hinn 29. september 1753 gengu þau síðan í löglegt ekta- stand. „Þar sem að Þómnn var orðin barnshafandi að Sigríði dóttur okkar, var giftingu okkar flýtt, svo sem tök voru á.“ Þómnni og Jóni Steingrímssyni varð sex dætra auðið, og sambúð þeirra stóð í 32 ár, eða þar til Þórunn andaðist hinn 7. október 1784. Jón dáði konu sína mjög, og um hana segir hann: „Þórunn var öllum góðum kostum búin, guðhrædd og öllum góð, svo var hún einnig forspá, vissi gjaman um óorðna hluti.“ Seinasta morgun lífs hennar spurði Jón um líðan hennar og hún svaraði: „Nú er stríðið strangt, en þó stutt orð- ið.“ Svo fljót var Þómnn að prjóna að eitt sinn, þegar þau öttu kapps, prjón- aði hún 900 lykkjur á meðan hann skrifaði 1200 fljótaskriftarstafi. Stefáni prófasti, stjúpföður Þómnn- ar, þótti svo mikið til um gáfur, skarp- leika og eftirtekt hennar, að eitt sinn þegar hann ræddi við börnin, varð honum að orði: „Ó, hvað gekk guði til þess að þú, Þórunn, varðst ekki drengur? Þú nem- ur allt og manst allt.“ Þannig var hugsanagangur þessa tíma. Heima er bezt 137

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.