Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1997, Qupperneq 4

Heima er bezt - 01.09.1997, Qupperneq 4
Agætu lesendur. Eins og allir vita þá búum við íslendingar allnorðar- lega á jarðarkringlunni, eða norður undir heimsskauts- baug. Það leynir sér svo sem ekki hvað veðuráttuna varðar, lengd árstíðanna og annað, sem þessari hnattlegu fylgir. Ekki eru það svo sem eingöngu ókostir sem fylgja því að búa svo norðarlega á jarðarkringlunni og mætti margt fram telja sem leggjast mundi á skál kostanna. Eitt af því sem stundum hefur verið nefnt sem kostur við svo norðlæga búsetu er fáskrúðugra skordýralif, en þeir þurfa að búa við, sem heirna eiga á heitari og rakari slóðum. Þó vekur það oft undrun manns hversu gríðarlega fj ölbreytt skordýralífið á íslandi er, þrátt fyr- ir fremur kalda veðuráttu og óblíða á löngum vetrum. Það er nánast sama hvar á landinu drepið er nið- ur fæti, hvort það er við stein í ijöruborði, á ræktuðu túni eða upp á eyðimörk brunasanda hálendis- ins, alls staðar verður maður var við iðandi líf skordýra. Kóngulær, flugur af margvíslegu tagi, orma, bjöllur og allt hvað heita hefur. Það liggur auðvitað í hlutarins eðli að sú staðreynd að skordýr skuli finnast i nánast hverju spori að verulegt hlýtur heildarmagnið að vera. Og verður þó íslenski skordýralagerinn að teljast frekar rýr samanborið við sum önnur lönd. Enda hafa vísir menn reiknað það út að ef öll afkoma skordýranna, hverju nafni sem þau nefnast á jörðu hér, lifði og kæmist á legg, þá mundi það taka um hálfan mánuð að búa til sex metra lag af skordýrum á öllu yfirborði jarðarinnar. Slík og þvílík er framleiðsl- an. En affollin eru líka gríðarleg og ekki nema tiltölulega lítill hluti þessarar geypilegu útungunar kemst nokkurn tímann á legg. En þessi öra framleiðsla gerir fleira en að tryggja lág- marks ijölda afkomenda til viðhalds hverri tegund. Kyn- slóðaskiptin eru gríðarlega ör, líftími hvers einstaklings stuttur, sem leiðir af sér að aðlögunarhæfni skordýra er gríðarleg. Þó að þau verði fyrir verulega breyttum og hamlandi aðstæðum þá eru þau tiltölulega fljót að mynda kynslóðir, sem lagað hafa sig að ríkjandi aðstæðum, með hinu alkunna úrvali náttúrunnar, þ.e. afkomu þeirra hæf- ustu. Skordýr eru því allsstaðar og við allar aðstæður, heitar, kaldar, þurrar, blautar og allt þar á milli. Menn hafa látið að því liggja, m.a. þegar umræðan um hugsanlega kjamorkustyrjöld á jörðinni stóð sem hæst, að sigurvegarar þeirra ragnaraka yrðu að öllum líkindum skordýrin. Allt annað lif mundi þurrkast út en skordýrin, með sinni geysilegu aðlögunarhæfni og öru kynslóða- skiptingu myndu ná tiltölulega fljótt að aðlaga sig að þeim breyttu og lítt aðlaðandi aðstæðum sem til yrðu eft- ir slíkar hamfarir. Þau yrðu herrar jarðarinnar um óræð- an tíma. Menn veltu því stundum fyrir sér einnig á þessum tíma, hvort sú geislavirkni, sem kjarnavopnum fylgdi, gæti valdið einhvers konar stökkbreytingu í genum skor- dýra og þannig skapað ófreskjur vísindaskáldsagnanna. Miðað við niðurstöður vísindamanna, þá væri slíkt harla ólíklegt vegna líkamsgerðar skordýra, en þau taka inn súrefni um mörg göt á skrokknum. Sú staðreynd set- ur stærð þeirra takmörk. því ef skrokkurinn verður óvenjulega stór, þá tekst þeim ekki að afla nægilegs súrefnis um slík göt, auk þess sem hætt er við að þau myndu leggjast saman. Menn telja sig hafa séð, út frá steingervingum, er fundist hafa frá upphafstímum lífs á jörðinni, að skordýr hafi verið margfalt stærri þá en þau þekkjast í dag. Astæðuna telja menn vera þá að í upphafi var súrefnismagnið á jörðinni miklu meira en það er í dag, sem um leið lagði braut að möguleikanum á stærri líkamsbyggingu skordýranna. Auknar samgöngur eru sífellt að minnka heiminn fræðilega séð, og eitt af því sem slíku fylgir er aukin blöndun, bæði fólks og dýra. Áhrif aukinna flutninga á skordýralíf íslands kom vel í ljós þegar gámaflutningar skipafélaganna urðu algengir. Fram að þeim tíma höfðu geitungar t.d. verið óþekkt skordýrategund hér á landi, en eins og allir vita þá eru þeir nú komnir til að vera og breiðast óðum út um land- ið. Mér er nokkuð minnisstætt þegar fyrstu fregnir tóku að berast um geitungabú í Reykjavík fyrir u.þ.b. 15-20 árum síðan. Þau fyrstu fundust í Laugarnesinu, ef ég man rétt, enda er það ekki langt frá Sundahöfn, þar sem aðal gámalöndunin fór og fer fram. I fyrstu voru þetta ekki nema ein til tvær „drottningar“ sem náðu fótfestu, en það var líka nóg. Mig minnir að vísir menn hafi talið að hver drottning eignaðist að með- altali 25000 afkvæmi í hverjum umgangi og af þeim hópi yrðu til að minnsta kosti 2500 nýjar drottingar, sem síðan gætu búið til 2500 nýjar, hver um sig, ef allt lifði, sem það auðvitað gerir ekki. En menn sjá af þessu að þróunin er ör og nánast óhjá- kvæmilegt að einhver slatti af slíkri framleiðslu nái að lifa af og ná hér bólfestu. Og sú hefur líka orðið raunin. Munu nú reyndar vera komnar fleiri en ein tegund geit- unga til dvalar hér og hafa þar einna helst verið til nefnd- Framhald á bls. 34 7. 320 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.