Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1997, Blaðsíða 35

Heima er bezt - 01.09.1997, Blaðsíða 35
Loks gaf ég húsmóðurinni það eina svar, sem ég gat gefið, að ég vissi þetta ekki. Hún rak mig tafarlaust til læknis, hann staðfesti að grunsemdir hennar væru réttar, ég gengi með barni. Ráðningartími minn í Súlnavogi var senn út runninn, og ég vissi ekki mitt ijúkandi ráð. Mundi nokkur vilja taka stúlku í vist, svona á sig komna? Hús- móðirin hefur sennilega ályktað eitt- hvað líkt og ég og fundið til vorkunn- nsemi vegna fávisku minnar og ungs aldurs, því hún kvað upp úr með það, að ég mætti vera kyrr í vinnumennsku á heimili hennar þar til ég hefði alið bamið, en þá yrði ég að finna mér nýjan dvalarstað. Hjá mér fóm í hönd margar dimmar andvökunætur. Hvemig átti ég ein að sjá fyrir bami, sem varla var komin sjálf af bamsaldri og átti hvergi vísan samastað eftir fæðingu þess, og ekki gæti ég leitað að Jensen í öðm landi með barnið í farteskinu. Þetta var mér hreinlega um megn að mér fannst. En meðgangan rann sitt skeið. í fyllingu tímans ól ég son, með miklum harm- kvælum. Jafnskjótt og ljósmóðirin hafði lokið við að lauga bamið og gera því til góða, fór húsfreyjan með það inn í svefnherbergi þeirra hjón- anna og veitti því alla þá umönnun, sem það þarfnaðist. Hún vissi sem var að ég kunni ekkert með ungbam að fara. Á meðan ég lá „á sæng“ sá ég drenginn aðeins þegar reynt var að koma honum á brjóst, en ég mjólkaði honum lítið sem ekkert og húsmóðirin vandi hann því strax á pela. Eg kom hart niður af bamsburðinum og heils- aðist ekki sem best fyrst á eftir. Ef til vill hafa dökkar framtíðarhorfur, sem lágu mér mjög þungt á hjarta, átt sinn þátt í því. En einhver úrræði varð ég að finna og það helst áður en ég stigi af „sæng.“ Ég játa það fúslega að í unggæð- ingshætti mínum bar ég blendnar móðurtilfinningar í brjósti til bams- ins, sem ég taldi mig engan veginn geta framfleytt af eigin rammleik og tilkoma þess setti allar fyrirætlanir úr skorðum hjá mér, í þá veru að leita Jensen uppi, en það vó þyngst af öllu í mínum barnalega hugsanagangi. Eftir langar og þjáningarfullar vanga- veltur og humyndaflækjur, fæddist loks lausn í hugskoti mínu, sem ég tók að skoða í fyllstu alvöru. Þar sem húsfreyjan hafði strax við fæðingu barnsins, tekið það að sér, eins og hún ætti það sjálf, fékk ég þá flugu í höfuðið að léti ég mig hverfa mundi hún aldrei hrekja barnið frá sér á meðan það þyrfti á aðstoð hennar að halda. Mér var vel kunnugt um það að húsbændur mínir höfðu nóg fyrir sig að leggja og þóttist þess fullviss að þau mundu ekki láta sig muna um það að fæða einn lítinn mun til við- bótar fjórum stálpuðum börnum sín- um, sem þegar voru byrjuð að hjálpa til við fjáröflun heimilisins. Böm hjónanna virtust öll mjög hrifin af litla drengnum og ekki mundu þau skemma fyrir honum. Að þaulhugsuðu máli taldi ég bestu lausnina til þess að tryggja framtíð barnsins og einnig fyrir mig sjálfa, að ég léti mig hverfa sem fyrst frá Súlnavogi, áður en húsmóðirin færi að reifa vistaskiptin að nýju. Þegar ég svo hefði fundið Jensen, kæmum við bæði heim til íslands og sæktum son okkar. Örfáum dögum effir að ég reis af sæng náði ég að komast um borð í strandferðaskip, sem losaði vörur hér á Súlnavogi og keypti mér farseðil til Reykjavíkur. Ég þekkti engan í höf- uðborginni og átti þar hvergi vísan samastað. Ég lenti í klefa hjá eldri konu austan af landi, sem einnig var á leið til höfuðborgarinnar og með okkur tókust vinsamleg kynni. Ég spurði hana hvort hún hefði komið áður til Reykjavíkur. Jú, fyrir ári hafði hún farið þangað til þess að leita sér lækninga og var nú að fara í annað skiptið sömu erinda. Ég innti hana eftir því hvort hún þekkti marga í Reykjavík. „Engan, það ég veit,“ svaraði hún. Ég gisti á „Hemum.“ „Hernum!? Hemum!? Hvað er það?“ spurði ég fávís og forvitin. „Hjálpræðisherinn er kristintrúar- hreyfing, sem starfar að trúboði og líknarmálum víða um lönd. Herkastalinn í Reykjavík er höfuðvígi starfseminnar hér á landi og þar er bæði ódýrt og gott að gista,“ svaraði hún. „Ferðu þangað núna?“ spurði ég. „Já, beint ffá skipshlið,“ svaraði hún. Þar með hafði ég fundið ódýran næturstað án minnstu fyrirhafnar, en pyngja min var létt og lítið eftir af sumarhýmnni. Við stöllur fengum gistingu á „Hemum.“ Næsta morgun gaf ég mig á tal við starfsstúlku, sem þjónaði okkur til borðs. Hjá henni mætti ég ógleymanlegri hlýju og góðvild. Ég tjáði henni að mig bráðvantaði vinnu en þekkti engan hér um slóðir, sem ég gæti beðið um að leiðbeina mér í því efni. Hún kvað ekkert sjálfsagðara en reyna að greiða götu mína. „Hér er nýkomið Morgunblað, þar er venjulega að finna ýmis konar at- vinnutilboð. Viltu ekki byrja á því að líta yfir það,“ sagði hún og rétti mér blaðið. Ég hafði ekki lengi flett blaðinu þegar við mér blasti það sem ég leit- aði að. Auglýst var eftir stúlku til heimilisstarfa strax, vegna forfalla. Upplýsingar á staðnum. Húsnúmer og götuheiti. Að kvöldi sama dags var ég ráðin í vist hjá heldrimanna fjölskyldu í höf- uðborginni og þar með byrjaði ég að vinna fyrir fargjaldinu til Noregs. Rúmu hálfu öðm ári síðar, steig ég á skipsfjöl og sigldi á þriðja farrými til fyrirheitna landsins. Mér gekk strax vel að fá vinnu í Noregi og tungumálið lærði ég fljótt. Ég var í leit að sjómanni og hélt mig því við sjávarsíðuna, þræddi útgerðar- bæina og fiskimannaþorpin. Byijaði syðst og dvaldi á hveijum stað þangað til að ég þóttist hafa fullkannað að Jensen væri þar ekki að finna. Þá flutti ég á næsta leitarsvæði. Uppgjöf kom aldrei til greina í mínum huga. Framhald í nœsta blaði. Heima er bezt 351

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.