Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1997, Blaðsíða 26

Heima er bezt - 01.09.1997, Blaðsíða 26
húsmóðir mín mig hvort ég treysti mér til að fara austur á beitarhúsin. Sagði ég já, og lagði af stað klukkan um hálf tíu. Þegar ég kom á beitar- húsin var komið argasta veður, dimmviðris snjóbylur, svo að ekki var til hugsandi að láta fé út. Gaf ég því þess vegna inni en að því loknu treysti ég mér ekki eða sá mér ekki fært, að fara heim aftur að svo komnu. Hafði ég undan veðrinu á beitarhúsin en á móti að sækja heim. Beið ég svo þarna og vissi ekki hvað tímanum leið. Úti hamaðist hríðin með ógn og hávaða og alls- staðar kváðu við margbreytileg hljóð sem stormurinn og snjóiðan fram- leiddu. Voru þau ekki eingöngu í vindskeiðunum á þakinu og í gættun- um á húsinu sem ég var í, heldur einnig í íjöllunum og úti í náttúrunni allt í kring. í fjárhúsinu var hlýtt og notalegt og í raun og veru leið mér þar vel en skuggalegt var í torfhúsunum gömlu og fljótlega varð dimmt í kofanum hjá mér þegar leið undir kvöldið og snjórinn og ffosthélan lá yfir glugg- anum. Ekki hafði ég neina ljóstýru að kveikja á og þarna í óhugnaðin- um, sem leiddi af illviðrinu, myrkr- inu og einverunni, læddust nú að mér alls konar kynjasögur, sem ég hafði heyrt og það þá einna helst að þarna, einmitt í þessum beitarhúsum, átti að vera reimt svo um munaði. Ég trúði ekki svona sögum og hef aldrei lagt trúnað á þær um ævina, en þarna stóðu þær mér fyrir hugskotssjónum og komu í mig ónotum. Freistaði ég þess nú að leggja af stað og reyna að komast heim en komst ekki nema stuttan spöl og sá minn kost vænleg- astan að snúa aftur til beitarhúsanna og fann þau við illan leik. Mun ég eitthvað hafa lent af leið áður en ég komst aftur í beitarhúsin. Á að giska um miðnætti birti í lofti, en hvassviðri var mikið. Lagð ég þá aftur af stað heim á leið. Frusu mjög á mér fötin, sem áður höfðu fennt upp og snjórinn síðan bráðnað í, eftir að ég kom aftur í fjárhúsin. Var ég því mjög stirður til gangs. Klukkan þrjú um nóttina kom ég heim og var þá feginn að fá mat minn og komast í rúm til að njóta hvíldar. Á Melrakkanesi var ég í eitt ár en fór þaðan að Búlandsnesi við Djúpa- vog, til Ólafs Thorlacius héraðslækn- is. Tvö ár var ég á Búlandsnesi og leið þar vel. Þaðan fór ég svo að Karlsstöðum á Berufjarðarströnd og fluttist þaðan að tveimur árum liðnum til Eski- fjarðar vorið 1906. Voru foreldrar mínir þá búsettir þar en þau fluttust þangað árið áður eða 1905. Vorum við Jón bróðir minn, sem var tíu árum yngri en ég, til heimilis hjá þeim þá. Reri ég á ýmsum mótorbát- um ffá Eskifirði um árabil og vann alla algenga vinnu þar á milli. Lengst var ég á mótorbátnum Svaninum, eign Finnboga Þorleifssonar, eða í tólf ár. Þaðan réðist ég á mótorbátinn Njál, eign Friðgeirs Hallgrímssonar. Formaður á bátnum var Ágúst Guð- jónsson. Eftir eitt ár urðu eigendaskipti á þeim báti. Keypti þá Ólafur Sveins- son hann og varð Óli Þorleifsson, bróðir Finnboga Þorleifssonar, sem áður getur, formaður á honum. Var Óli formaður á mótorbátnum Njáli í þrjú ár, eða þar til báturinn fórst. Einn dag sem oftar, í júlí, lögðum við frá bryggju á Eskifirði í róður á mótorbátnum Njáli. Klukkan var sex að kvöldi og þoka mjög dimm. Sigldum við þrjá tíma til hafs eða á miðin, þar sem við lögðum línuna. Á ellefta tímanum höfðum við lokið við að leggja og lágum við bauju- vakt. Voru þá allir undir þiljum nema ég, sem átti vakt. Ekkert hljóð barst mér að eyrum og þokan var eins og þykkur veggur á allar hliðar. Það voru að verða vaktaskipti og minnist ég þess að Eirkíkur Kristjánsson, sonur Kristjáns Jónssonar pósts á Eskifirði, var að koma upp stigann til þess að taka við af mér. Varð mér þá litið út um glugga bakborðsmegin og sá þá stefhi á skipi í fárra feta fjar- lægð koma út úr þokumekkinum og sigla beint á miðjan bátinn með þriggja mílna hraða. Fannst mér þetta frernur óglæsileg sjón, því að þarna voru engin undanbrögð framkvæm- anleg. Ég hrópaði þá eins hátt og mér var framast unnt til félaga minna að það væri að verða ásigling, en um leið fór skipið inn í miðjan bátinn eða inn undir lúgu og hélt honum þar föstum. Ég var í stýrishúsinu og féll við höggið. Fékk ég miklar skrámur á andlitið og meiddist í hægra hand- legg. Draghurð var á stýrishúsinu og lokaðist hún föst. Var hún opin en skall aftur við höggið eða hnykkinn, sem kom á bátinn við áreksturinn. Var mjög erfitt að opna hurðina og óttaðist ég þá að ég myndi fara niður með bátsflakinu, því að mér var ekki auðvelt að neita afls, svo meiddur sem ég var, einkum þó í handleggn- um. Heppnaðist mér þó einhvern veginn að komast út hjálparlaust. Tveir af bátsverjum voru komnir í koju þegar slysið vildi til. Komust þeir þó allir upp á þilfar en fáklæddir og við illan leik. Skipið hélt áfram sína ferð með bátinn á stefni sínu og urðum við ekki manna varir á því. Voru nú góð ráð dýr. Hugkvæmdist okkur þá að reyna að lyfta léttasta manninum upp á skipið og varð fyrir því Kláus Kristinsson frá Hafranesi. Þegar hann kom upp á skipið fann hann þar kaðal og renndi honum til okkar. Ætluðum við að handstyrkja okkur á kaðlinum upp á skipið og reyndist það auðvelt fyrir félaga mína, en þegar ég ætlaði að taka á kaðlinum var hægri handleggurinn á mér algjörlega máttlaus. Var þá kaðl- inum brugðið undir hendurnar á mér og yfir herðarnar og hífðu þeir mig þannig upp á skipið. Reyndist þetta vera breskur togari frá Grimsby. Þegar við vorum allir komnir upp, urðum við fyrst varir við mann á skipinu. Var það háseti. Spurði hann okkur hvort við hefðum verið fleiri á bátnum og svöruðum við því neit- andi. Sögðu togaramenn að í stýris- húsi hefðu verið tveir menn, stýri- maður og háseti, og einn maður í vélarúmi skipsins, þegar ásiglingin varð. 342 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.