Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1997, Blaðsíða 18

Heima er bezt - 01.09.1997, Blaðsíða 18
Gamlir leikfélagar í Haganesvík, Sigurjón Jóhannesson frá Vík og Guðmundur Sœmundsson frá Neðra- Haganesi. Myndin er tekin 1996. að vetrinum á m/b. Kópi, fram yfir 1950. Bátar Skafta hétu hins vegar ýmsum nöfnum s.s. Úlfur Uggason, Stathav, Mjölnir, Þormóður o.fl., en þó var alltaf bara talað um bátinn hans Skafta. Koma með Skafta eða Fastar strandferðir hófust hins vegar til Haganesvíkur með e/s. Skálholti laust fyrir síðustu aldamót en þær lögð- ust af þegar m/s. Skjaldbreið hætti ferðum árið 1966. Ferðir flóabátsins frá Akureyri hófust hins vegar til Haganesvíkur árið 1909, en voru stundum stopular til ársins 1928 að Jón Björnsson, útgerðarmaður á Akureyri, tók þær að sér og síð- ar Steindór sonur hans, sem þekktastur varð fyrir útgerð flóa- bátsins Drangs. Drangur nr. 2 mun hafa hætt ferðum til Skaga- ljarðarhafna 1974. Annar þáttur sjósamgangna við Haganesvík var Siglufjarðarbátur- inn, sem reyndar stundum var í opinberum skýrslum nefndur Fljóta- bátur. Þessar ferðir hófust í tengslum við áætlun hópferðabifreiða árið 1935 og auðvitað 3-4 mánuði að sumarlagi, en þær lögðust af þegar akstur hófst um Siglufjarðarskarð 1947. Það var Skafti Stefánsson út- gerðarmaður á Siglufirði, sem ann- aðist þessar ferðir lengst af og einnig að vetrarlagi, en síðar tók annar Sigl- firðingur, Jón Daníelsson, við þeim Á fyrri hluta aldarinnar og fram yfir hana miðja var vegur Haganesvíkur tals- verður, einkum voru það fjórði og fimmti áratugarnir sem báru af í þeim efnum. Byggingaframkvæmdir kaupfélagsins, bryggjugerð, veitingaskáli reistur, félags- heimili o.fl. Fasta búsetu í Víkinni og á Haganesbæjun- um höfðu þó ekki fleiri en 40-50 manns. Yfir sumar- tímann var þó öllu líflegra, einkum meðan virkjunar- framkvæmdir stóðu yfir við Skeiðsfoss 1942-1945, en þá var Haganesvík umskip- unarhöfn verktakanna og lágu stór flutningaskip dög- um saman við festar á Vík- inni meðan farmur var los- aður. Hraun í Fljótum, Hraunamöl, Haganesborg og jjöll vestan Haganesvíkur bera yfir Miklavatn sem er nœst á myndinni. Eldra húisið byggði Jón Mýrdal, rithöfundur, á ofanverðri 19. öld og þarna er talið aó Davíð Stefánsson, skáld frá Fagraskógi hafi byrjað að safna fróðleik um Sölva Helgason í bókasafni móðurbróður síns, Guðmundar Daviðssonar, sem bjó á Hraunum fyrri hluta þessarar aldar. Myndin er tekin 1996. fara með Skafta. Á fyrri árum og allt fram undir síðustu aldamót var sjósókn annar höfuðatvinnuvegur Fljóta- manna til þorsk- og hákarlaveiða. Meðan sjávarútvegurinn var þar í mestum blóma, voru Fljótin oft köll- uð forðabúr Hólastóls enda átti Stóllinn skreiðarskemmu í Haganes- vík. En Fljótamenn guldu líka mikla mannfórnir í baráttunni við hafið, liklega fleiri en aðrir útgerðarstaðir norðanlands ef marka má gamla ann- 334 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.