Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1997, Blaðsíða 21

Heima er bezt - 01.09.1997, Blaðsíða 21
Sigurður var vanur að koma fram, enda enginn viðvaningur, marghertur í hretviðrum stjórnmálanna og búinn að vera forsætisráðherra. Sigurður var glæsimenni, hár, tígulegur og góðlegur. í svipnum var einhver sér- stakur hlýleiki. Hann var vel mælsk- ur og kryddaði ræður sínar með skáldlegum tilvitnunum. Séra Jón Guðnason var sá af fram- bjóendunum sem ég þekkti að nokkru ráði, enda hafði hann fermt mig og ég oft hlustað á hann í kirkju. Ég var því mjög fylgjandi að hann næði kosningu sem og líka varð. Ekki var þetta þó af því að ég hefði svo fastmótaðar skoðanir í stjórn- málum eða ég heíði ákveðið að fylgja Framsóknarflokknum að mál- um, heldur stafaði þessi óskhyggja mín af stakri aðdáun á manninum sjálfum. Ég hygg að flest þau börn sem hann hafi fermt hafi verið sama sinnis, enda var maðurinn sérstakt ljúfmenni og aðlaðandi í allri fram- komu. Ég hef haft kennslu að ævistarfi og umgengist marga kennara og barna- fræðara. Ég tel mig því hafa nokkra innsýn inn í þau mál sem að kennslu lúta. Það er skoðun mín að séra Jón hafi verið fæddur kennari. Arni Árnason læknir, var hlédræg- ur maður og fáskiptinn. Talinn var hann gáfumaður mikill og einlægur trúmaður. Hann mun hafa notið al- mennrar virðingar. Stjórnmál munu að líkindum ekki hafa verið hans fag, þótt hann léti tilleiðast í þetta skipti. Fundurinn stóð til klukkan fimm um morguninn. Fyrst fluttu fram- bjóðendur framsöguræður og þær nokkuð langar. Ég man ekki efni þeirra en hitt man ég að mér þótti Sigurður Eggerz skara fram úr og eins hvað Árni læknir var feiminn og virtist taka sér þetta nærri. Brátt snerist fundurinn upp í nokk- urs konar einvígi milli Jóns Þorláks- sonar og Tryggva Þórhallssonar. Málflutningur þeirra var glæsilegur en þó ólíkur um margt. Ég held að Tryggvi hafi verið það sem kallað er á dönsku „folketaler.“ Maðurinn var glæsilegur og átti létt með að orða hugsanir sínar svo að almenningur skildi. Jón var rökhyggjumaður og þungur á bárunni, en allt glöggt og skýrt það sem hann sagði. Það ein- kenndi Jón og lýtti málflutning hans að nokkru að honum hætti við að stama, einkum er hann hóf mál sitt. En er hann hafði talað nokkra stund varð hann flugmælskur og var þá sem hraðinn ykist er á leið ræðuna. Aðeins einn innanhéraðsmaður tók til máls á fundinum, Þorsteinn Þor- steinsson sýslumaður. Þorsteinn var frekar stirður ræðumaður og ekki áheyrilegur, en var af flestum talinn hygginn. Ég hygg að það hafi verið frekar fátítt að innanhéraðsmenn tækju til máls á opinberum fundum. Ég man aðeins eftir einum sem ég heyrði tala á almennum stjórnmálafundi, það var Guðbrandur Jónsson bóndi á Spákelsstöðum. Sérstæður maður um margt, hægur og látlaus í framkomu en flugmælskur. Guðbrandur var tal- inn fróður í lögum og því af sumum kallaður Laga-Brandur. Nokkuð tók að fækka á fundinum er líða tók á nóttina. Ferðafélagar mínir, þeir Bergjón og Oddur, komu til mín um þrjúleytið og sögðust ekki nenna að hanga þarna lengur. Sögð- ust vera að fara heim og spurðu mig hvort ég ætlaði ekki að vera með. En ég gat ómögulega slitið mig frá þess- ari sérstæðu skemmtun, sagðist ekki fara fyrr en fundi væri slitið. Fund- urinn stóð til klukkan nærri fimm um morguninn. Heim að Snóksdal kom ég um klukkan sjö. Það var í þann mund er Kristján gamli var að koma út og líklega nýbúinn að signa sig, en það var vani hans á hverjum morgni og hans fyrsta verk er út var komið. Þegar hann sá mig kallaði hann: „Gústi, flýttu þér nú og komdu inn og segðu mér fréttirnar af fundinum. Það er ekkert að marka það sem þeir segja, Oddur og Bergjón.“ Ekki gat ég leynt því að ég var dá- lítið upp með mér af því að hann skyldi meta mig meira en bæði son sinn og uppeldisson. Var nú sest inn og þar varð ég að þylja yfir gamla manninum allt sem ég mundi af fundinum, eins greinilega og ég gat. Ég var þá aðeins seytján ára, en Kristján kominn yfir sjötugt. Enn er mér þetta glöggt í minni. Það er eins og ég sjái okkur sitja á innsta rúminu í fátæklegu og hrör- legu baðstofúnni í Snóksdal. Kristján var einn af þeim mönnum sem átti samleið með æskunni fram á elliár. Við áttum saman margar skemmtilegar stundir sem ég man vel enn. Ég var spenntur að bíða eftir úrslit- um kosninganna. Ekki þó vegna þess að ég væri svo pólitískur eða hefði myndað mér ákveðna pólitíska skoð- un. Minn áhugi var eingöngu bund- inn við að séra Jón Guðnason ynni kosninguna. Mér var svo innilega hlýtt til hans. Kosið var fyrsta vetrardag. Mig minnir að veðrið væri mjög vont þann dag. Urslit urðu sem hér segir: Sr. Jón Guðnason fékk 271 at- kvæði, náði kosningu. Sigurður Eggerz fékk 238 atkvæði, °g Árni Árnason 117 atkvæði. Heima er bezt 337

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.