Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1997, Blaðsíða 38

Heima er bezt - 01.09.1997, Blaðsíða 38
Sr. Ólafur með Páli syni sínum, konu hans og afastelpunum þremur. Hún breytti mér og ól mig upp. Eg fór að gera mér betur grein fyrir lífinu og tilverunni og þeirri ábyrgð að vera manneskja í sköpun Guðs. Guðfræðin er ákaflega menntandi og kemur á svo margan hátt inn á hið mann- lega, sem eðlilegt er. Það er okk- ar starf að vinna með fólk. Ég fann mig ekki í pólitíkinni og yfirgaf flokkinn. Síðan hef ég verið óflokksbundinn. Ég segi það stundum til gamans ef fólk er að tala um að ég sé róttækur, að eini flokkurinn sem ég hafi verið flokksbundinn í sé Sjálf- stæðisflokkurinn. Ég held að ég rækist mjög illa með einhverjum ákveðnum flokki og það breytist áreiðanlega ekki, það er frekar erfitt að kenna gömlum hundi að sitja. Ég hef frekar litla trú á stjórnmálamönnum yfirleitt, finnst þeir hafa brugðist. Ég veit að margir eru sama sinnis og þess vegna eru stjórnmálamenn ekki allir í miklu áliti. Menn snúast eins og vindhanar eft- ir því sem landið liggur og það kemur fram í þeirra störf- um. Menn sjá í gegn um þennan loddaraleik. En auðvitað eru til einstaka menn sem vinna af heilindum. Lífið í dag Það sem veldur mér hvað mestum áhyggjum í dag er þessi gróðahyggja sem er að tröllríða öllu. Allt virðist ganga út á gróða, hagvöxt og fleira í þeim dúr. Þetta tíðk- aðist ekki svo mjög þegar ég var ungur. Það er eins og það sé ekkert sem skiptir máli í okkar þjóðfélagi nema græða og sú hugsun að allt sé hægt að kaupa fyrir pen- inga. Menn geta safnað að sér alls kyns dauðum hlutum, alls kyns skrani, en það er ekki það sem skiptir máli. Það er ekki lífið sjálft. Auðvitað er lífsbaráttan hörð og menn verða að lifa. En þegar öll hugsun manna er farin að snú- ast um hin efnislegu gæði þá er illa komið. Þessi mamm- onsdýrkun er hrikaleg og dansinn kringum gullkálfin skelfir mann. Ég get ekki sætt mig við í þessu þjóðfélagi hve lífskjör þeirra sem minna mega sín eru sífellt skert. Það er ráðist á sjúklinga, ellilífeyrisþega og þá sem minna mega sín, á sama tíma og gróðapungar og sægreifar vaða uppi í þjóð- félaginu. Þessir menn verða stöðugt ríkari á meðan hinir verða stöðugt fátækari, það er slæm þróun. Það hefur alltaf verið talað um að íslendingar væru mikið fyrir samhjálp og samvinnu. Tryggingar væru góð- ar og vel staðið við bakið á okkur. En mér finnst vera orðin breyting á og hafa orðið mikil breyting síðustu tíu til tuttugu ár. Samhjálpin fer minnkandi. Hugsanagangur- inn er þannig að hver eigi að hugsa um sig. Það finnst mér slæmt. Einstaklings- og gróðahyggja fer vaxandi. Þetta er slæmt og ég vona að við munum snúa við og hætta að halda áfram á þessari braut. Það eru svo ótal margir sem þurfa á hjálp að halda, bæði fullorðnir og böm. Prestar verða oft varir við slíkt í starfi sínu. Það eru mun fleiri en manni dettur í hug. Við megum heldur ekki gleyma líknarfélögum út um allt land sem þurfa á ljárstuðningi að halda. Öll eru þau þörf, en þvi miður þá getur maður ekki styrkt allt. Mér finnst að þessi félög ættu að fá meiri fyrirgreiðslu frá hinu opin- bera. Þjóðfélaginu ber skylda til þess að aðstoða þá sem ekki geta séð sér farborða af eigin raun, t.d. vegna veik- inda eða fötlunar. Það eru ýmsar blikur á lofti í þjóðfélaginu. Við eyðum og sóum á báða bóga. Áfengis- og eiturlyíjaneysla er vandamál í landinu, fólk kennir unglingum um en gengur svo ekki á undan með góðu fordæmi. Það þýðir ekki að tala alltaf um unglingana, við verðum að sýna fordæmin sjálf. Við íslendingar erum líka óskaplega blind á öll þau auðæfi sem við eigum, þá á ég við fegurð og hreinleika landsins okkar. Við reisum stóriðjuver til að spilla lofti og legi en hugsum ekki um afleiðingarnar. Ég held að ís- lendingar hefðu gott af að skoða staði þar sem mengun er mikil, svo að við sæjum hve hreint og yndislegt loft við 354 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.