Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1997, Blaðsíða 14

Heima er bezt - 01.09.1997, Blaðsíða 14
Guðmundur P. Valgeirsson frá Bæ: Um eyðingu íslenskra sveita Ijúníhefti HEB birtum við grein eftir Gnómund P. Valgeirsson, er hann nefitdi Gamla harmsögu. Sagói þarfrá drukknun Ólafs Gislasonar Noró- urfirði og Jakobs Loftssonar Krossanesi, árið 1890. Grein sinni lét Guð- mundur fyigja bréfþað sem hérfer á eftir og þar sem mérfannst innihald bréfsins um margt athyglisvert og túlka vel stóran þátt þeirrar þjóðfélags- þróunar, sent íslenskt þjóðfélag stendur frammi fyrir í dag, séóan frá sjónarhóli fólks í mörgum sveitum landsins, þáfór ég þess á leit vió Guð- mund aðfá að birta Itluta bréfs hans, fleirum til fróóleiks og umhugsun- ar, og varð hann fúslega við þeirri beióni minni. Fceri ég honum bestu þakkirfyrir það og góð orð til blaðsins og útgefanda þess. Guðjón Baldvinsson / g er búinn að vera kaup- andi Heima er bezt lengi, þó ekki frá upphafi. Það er mér alltaf kærkomið lestrarefni, fróðlegt og mannbætandi. Ég var nýlega að lesa viðtal Val- geirs Sigurðssonar við Gísla Vagns- son á Mýrum. Það hafði fallið undan lestri hjá mér vegna „leti minnar," þar til nú. Ég fór með það að lestri loknum, til sonarsonar míns, 11-12 ára gam- als, og bað hann að lesa það. Mér fannst það svo fallegt og hafa upp- eldislegt gildi fyrir hann og alla, sem það lesa. Ég vona að ég hafi þar sáð góðu fræi. Ég sagðist hafa verið lengi kaup- andi blaðsins og lesandi og þar með aðeins þiggjandi. Aldrei hafit mig upp í að senda því neitt til birtingar frá mér. Ég veit að það er bættur skaðinn fyrir ritið. Aðrir hafa orðið til þess og gert það vel. Þökk sé þeim fyrir það. En nú bar svo til að mér kom í hug að skrá frásögn af löngu liðnum at- burði. Svo löngu liðnum að fáir eða engir vita á honum skil, að mér und- anskildum. Ég lét að þessari löngun minni fýrir nokkru. Ég fór að raða saman þeim minningum, sem enn bjuggu í huga mér um þetta slys, sem sagt er frá og er mér og mínum ná- komið, þó langt sé um liðið. Og nú hefi ég gengið frá því. Fékk sonardóttur mína til að færa það upp á blað endanlega, í tölvu, því margt er nú orðið óhægt vegna elli minnar og annars sem henni fylgir. Og nú stend ég frammi fyrir því hvað ég eigi að gera við þetta. Á það nokkurt erindi til annarra, eftir allan þennan tíma? Og fæst nokkur til að birta það, öðrum til lesturs? Frammi fyrir þessum spurningum hefi ég staðið undanfarna daga. Og nú læt ég verða af því að senda þér það til athugunar og þá jafnframt til ákvörðunar um hvort þú vildir vera svo vænn að ljá því geymslu (varð- veislu) á síðum þíns góða tímarits, í stað þess að kasta því niður í ruslakistu mína og gleymast þar með öllu. Ef þér þætti það þess vert að birta það, þá mætti líta á það sem lítinn vott um þakklæti mitt til blaðsins, þín og annarra, sem að því standa, og hafa með frásögum sínum flutt lesendum þess sagnir og sögur úr lífi og lífsbaráttu þessarrar litlu þjóðar, þjóðar, sem oft og löngum hefur orð- ið að þreyta harða glímu fyrir lífi og tilveru sinni. Fátt eða ekkert er mér meiri hug- raun en að horfa upp á þá eyðingu byggðar íslenskra sveita á þessum síðustu og verstu tímum. Heilar sveitir eru þegar komnar í eyði. Margar aðrar eru nú í algerri útrým- ingarhættu. Þar er sveitin mín kæra kannski næst því að fara sömu leið, og of margar standa þær höllum fæti og bíða örlaga sinna. Og þau býli og heimili þar sem góðu búi var búið og voru stórbýli eru nú aðeins svipur hjá sjón, sem ömurlegt er að horfa á. Það er mér mjög mikil hugraun, nú þegar ég stend svo til á grafarbakk- anum, að sjá sveitina mína fögru og kæru, bíða þess eins að fara alger- lega í eyði. Það er þyngra en orðum og tárum taki. Til þessa liggja margar samverk- andi ástæður. En það er ekki annað að heyra og sjá en að ráðandi menn þjóðfélagsins fagni þessari þróun og geri margt viljandi til þess að hún gangi yfir. Margir lýsa velþóknun sinni á þessu ástandi og telja það „þjóðinni“ til ávinnings. En í huga þeirra er „þjóðin“ aðeins þeir sem hafa fest búsetu sína á suðvestur horni landsins og e.t.v. á örfáum öðr- um stöðum. Um ástandið í sveitum landsins er 330 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.