Heima er bezt - 01.09.1997, Síða 19
Á bæjarstæðinu í Neðra-Haganesi 1988. Stúlkurnar á myndinni eru
afkomendur síðustu ábúenda þar, sem fluttu brott haustið 1950.
ála og kirkjubækur. Einkum reyndust
hákarlaveiðarnar hættulegar en þá
var langt sótt á opnum bátum um há-
vetur. Aðal útgerðarstaðir í Fljótum á
þessum tíma voru Hraunakrókur,
Haganesvík, Mósvík og frá bæjum á
bökkum.
Eins og áður er að vikið þykir
mörgum fallegt í Fljótum. Útsýn
yfir Stífludalinn fyrir daga uppi-
stöðulónsins þótti viðbrugðið þar
sem áin liðaðist bakkafögur milli
kjarrivaxinna hólma um grænar
starengjar í lognkyrrð sumardags-
ins. Kvöldstund í Siglutjarðar-
skarði þegar úthafið hverfur í
gylltu mistri við sjónar-
rönd, er einnig ógleyman-
leg.
Þrátt fyrir allt þetta hef-
ur undirrituðum þótt út-
sýni frá Neðra-Haganesi
eitt hið fegursta í Fljót-
um. Við túnfótinn ber
eyðikauptúnið í Haganes-
vík við bláskyggt Hóps-
vatnið undir einu formfal-
legasta ijalli sveitarinnar,
Barðshyrnunni, sem
minnir svo mjög á eg-
ypskan pýramída, þaðan
að sjá.
Við bryggjuna í Haganes-
vík 1988. Verslunarhús
Samvinnufélags Fljóta-
manna og Barðshyrna í
baksýn.
Nautakjöt með sinn-
eps- og rjómasósu
750-1000 g nautakjöt af
afturhrygg, um 5 sm á þykkt
3 msk sinnep
salt og pipar
50 g smjör
tæpir 3 dl rjómi
3 msk koníak eða brandí
vætukarsi til skrauts
Penslið kjötið báðum megin með 1
msk af sinnepi. Breiðið yfir og
geymið i 1 klst. Kryddið eftir smekk
með salti og pipar.
Bræðið smjörið á þykkbotna
pönnu, setjið kjötið á pönnuna og
lokið kjötinu báðum megin með því
að snöggsteikja það við mikinn hita.
Minnkið hitann og steikið í 7-12 mín-
útur á hvorri hlið, eftir smekk.
Flytjið yfir á heitt fat og haldið
heitu.
Bætið 2 msk af sinnepinu og helm-
ingnum af rjómanum á pönnuna,
hrærið í til að leysa upp allan
kjötsafa. Hitið varlega. Bætið því,
sem eftir er af rjóma, út í og kryddið
með salti og pipar. Hitið upp að suðu.
Bætið viö koníaki og hrærið vel sam-
an.
Sneiðið kjötið og hellið sósunni
yfir.
Skreytið með vætukarsa og berið
fram strax, ásamt steiktum kartöflum
eða kartöfluflögum.
Handa 4-6.
Heima er bezt 335