Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1997, Page 22

Heima er bezt - 01.09.1997, Page 22
Guðjón Baldvinsson: Komdu nú að kveðast á... 56. þáttur ið heíjum þáttinn á nokkrum vísum úr fór- um Unnar Elíasardótt- ur í Reykjavík og eru þær fyrstu eftir afa hennar Kristján Elíasson, Sig- urðssonar frá Lágafelli í Miklaholts- hreppi á Snæfellsnesi, þar sem hann yrkir um dætur sínar Ragnheiði, Steinunni og Jófríði, föðursystur Unnar: Ragnheiður með rjóða kinn, rauna varin spelli, leikur sér við pabba sinn, Ijúf á Lágafelli. Steinunn mín er mikið nett, margur vildi spanna, hárið Ijóst um harnarklett, hylur mittið granna. Hún Jófríður litla lóan, langt af mörgum ber, herðabreiðan, mittismjóan, mann vill kjósa sér. Jón Michael Bjarnason frá Skarði í Bjarnarfirði á Ströndum, sonur Bjarna Jónssonar, Elíassonar frá Klúku í Bjarnarfirði, yrkir eftirfar- andi um uppeldissystur sína, Þórdísi Loftsdóttur í Odda í Bjarnarfirði: Dísa litla dillar sér, daga styttir alla, bráðum fer, já bráðumfer, bjartur sveinn að kalla. Og um Unni Elíasardóttur yrkir hann: Unnur brosir, oft er hljóð, eitthvað hugann gleður, gaman vceri að grína á slóð og gæta þess er skeður. Helga Baldvinsdóttir frá Akureyri sendi okkur nýlega ljóð eftir ömmu- bróðir sinn, Benedikt Hallsson. Hún lét einnig fylgja nokkur fróðleiks- korn um hann og segir þar m.a.: „Benedikt var fæddur 15. febrúar 1850 að Belgsá í Fnjóskadal, sem nú er löngu komið í eyði. Foreldrar hans voru Ásgerður Jónsdóttir og Þorkell Hallsson. Ás- gerður var tvígift. Fyrri maður henn- ar var Jón Jónsson og áttu þau sex börn. Hann fórst í snjóflóði 1843. Síðan giftist hún Þorkeli Hallssyni og eignaðist með honum þrjú börn, Sigríði ömmu mína, Þóru og Bene- dikt. Meðal hálfsystra Benedikts var Guðrún, móðir Guðmundar Finn- bogasonar, þjóðskjalavarðar og Karls skólastjóra á Seyðisfirði. Ég fékk þessi Ijóð send frá Krist- ínu Rögnvaldsdóttur í Ólafsfirði, en hún þekkti til hans og segir frá hon- um í septemberblaði HEB 1971, m.a. það að hann hafi verið skírleiksmað- ur, nokkuð sérlundaður, vel hag- mæltur og vísur hans flogið víða um land en fátt varðveist nema á vörum fólks. Einnig las ég um þetta frænd- fólk mitt í tímaritinu Súlur frá árinu 1979, þar sem Jón Kr. Kristjánsson frá Víðivöllum í Fnjóskadal segir ögn frá Ásgerði langömmu minni og hennar lífsbaráttu. Benedikt stundaði lengi barna- kennslu í Ólafs- firði og Fljótum og átti þar góðu að mæta. Hann andaðist 26. september 1931, ókvæntur og barnlaus. Mig minnir að foreldrar míni hafi talað um að hann hafi verið frekar raunamaður, eins og mér finnst sumar vísurnar hans bera Jsí. Benedikt Hallsson vitni.“ Einhverju simii hittust þeir vinimir Benedikt og Guðmundur Stefánsson í Minni-Brekku. Ávarpaði þá Bene- dikt Guðmund með þessum vísum: Þegar heimi fer égfrá, fáa mun að telja vini. En lifir þú, mitt leiði á, legg eitt blóm í kveðjuskyni. Guðmundur svaraði samstundis: Gáskalaust ég gjarnan vil greiða svar mót beiðni þinni. Ef mér treynist aldur til, orðin þín skal geyma í minni. En fari svo þú fréttir það, fallinn sé ég nár í valinn, láttu frá þér lítið blað Ijóðagyðjunnar kveðja halinn. Benedikt svarar: Að ég lifi lengur þér, líkur til ei sýnast vera, en verði svo, minn vilji er, vinur þína bón að gera. 338 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.