Heima er bezt - 01.09.1997, Side 40
SÖGN OG SAGA
Oscar Clausen
Oscar Clausen:
Log2. bindi.
Meðal efnis þessarar bókar eru eftirtaldir þœttir:
Elskhugi Ragnheiðar biskupsdóttur, Frá ellidögum
fógetans og þáttur Ragnheiðar á Elliðavatni, Fyrstu
prjónavélarnar flytjast til Islands, Fyrsta minnismerki á
Islandi var stolið, Arnes útileguþjófur, fyrsti fram-
kvæmdastjóri Eimskipafélags Islands, Dufferin
lávarður og íslendingar, Séra Jens Hjaltalín, Skiptapinn
frá Kvíabryggju árið 1868, Merkur danskur kaupmaður
í Keflavík, Jens Benediktsen kaupmaður á Isafirði, Við
Faxaflóa í lok 19. aldar, auk fleiri þátta svipaðs efnis.
Eins og sést á þessari upptalningu er hér á ferð bók
handa öllum þeim, sem unna þjóðlegum, íslenskum
fróðleik, bók, sem á erindi við alla þá, er láta sig varða
sögu lands og þjóðar.
Tilboð til óskrifendo HEB
kr. 850.-
Baðar bækurnar - burðargjald innifalið
Annað bindi safnritsins geymir marga minnisverða
þætti. Hér er langur þáttur um séra Sigurð Gunnarsson
á Hallormsstað, náinn vin og samherja Jóns Sig-
urðssonar forseta, en séra Sigurður var mikill búmaður,
heppinn læknir og hagleiksmaður, auk þess að vera
góður og gagnmerkur kennimaður. Þáttur er hér um
fyrstu innlendu kaupmennina í Reykjavík, þá Svein-
björn Jakobsson, Þorstein Jónsson Kúld og Hannes St.
Johnson, og sagt er frá upphafi verslunar í Stykki-
shólmi. All langur þáttur er um Ólaf Árnason sýslu-
mann í Barðastrandarsýslu, sem var ríkur maður, rak
stórbú og þótti mikillátur og dómharður valdsmaður.
Einnig er hér þáttur um vesturfarahópinn stærsta,
rúmlega 500 manns, sem fór frá Seyðisfirði til Vestur-
heims og langur þáttur og fróðlegur er um dætur og
tengdasyni Skúla fógeta Magnússonar. Galdramanna-
þáttur er frá Grímsey og frásagnir eru af ríkum Breið-
firðingum. Gefa þær frásagnir glögga mynd af
stórbúum fyrri alda. Loks er merkur þáttur um hugvits-
manninnn Árna Jónsson úr Geitareyjum á Breiðafirði,
sem var hinn mesti völundur. Árni barst til Danmerkur
og Svíþjóðar og er saga þessa sérkennilega manns hin
fróðlegasta.
Þessar bækur eiga erindi við alla þá, er þjóðlegum fróðleik unna.
SÉRSTAKUR PÖNTUNARSEÐILL FYLGIR BLAÐINU
Skjaldborg ehf. BÓKAÚTGÁFA
Ármúla 23-108 Reykjavík - Sími 588-2400 • Fax: 588-8994