Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1999, Page 10

Heima er bezt - 01.07.1999, Page 10
Fyrstu búskapardr og garðyrkjundm Séð suður Túngötu og Suðurgötu. Verkó, sem síðar varð Félagsbíó, til hcegri. Guðleifur og Ástríður með börn sín 1979. Frá vinstri: Sigurður, Ásta, Margrét, Fljörtur, Sigurjón og Ragnar. Þetta breytti ætlan minni um að fara í Bændaskólann og við hófum búskap saman suður í Hafnarfirði. Þar vorum við í rúmt úr. Ég fékk vinnu í Vél- smiðju Hafnarfjarðar en mér lík- aði hún ekki og hafði löngun til að helga mig landbúnaði eða annari jarðvinnu. Þú sú ég auglýst í bæjarblað- inu eftir manni ú garðyrkjustöð- ina í Krísuvík. Þetta var 1100 fm stöð. Ég var eini umsækjandinn og fékk vinnuna og það fylgdi henni húsnæði. Þú vorum við komin með þrjú börn, eitt útti konan áður. Þar bjuggum við í u.þ.b. ár. Þetta var frábær og stórkostlegur staður en umferðin var mikil. Ef Hellisheiðin varð ófær fór fólk þama um í Ámes- sýsluna. Þá var ekin Krísuvíkur- leiðin. í Krísuvík var iðulega gist svo við vomm alls ekki ein, en okkur lynti ekki, mér og bústjór- anum, svo við fórum árið eftir austur í Auðsholtshjáleigu, heim til tengdaforeldra minna og ég fór að vinna við búskapinn. Um haustið fór ég fyrst í sláturhúsið og síðan í Þorlákshöfn og var í jámabindingum við byggingu Meitilsins og fram á haustið og á vertíðinni var ég settur í salthús- ið og var þar fram á vorið. En þá fór ég að hugsa um framtíðina. Náttúru- og forn- leifafræði hafa löngum átt hug minn og ég hef alltaf lesið mikið um þessa hluti. Því var það að ég fór að huga að vinnu í Hvera- gerði og hafði hugsað mér að læra garðyrkjuna. Þá var hægt að vinna í fimm ár við garðyrkju og fá þá atvinnuréttindi. Ég var búinn að tala við Jón H. Bjömsson í gróðrastöðinni Alaska, sem þá var með garðyrkju í Hveragerði og gat fengið vinnu þar og byrjaði strax eftir páskana. Þá vom þar starfandi tveir garðyrkjufræðingar, annar hét Adolf Jónsson og hinn Kristján Jensen, og var hann danskur. Það var rósarækt í hálfri stöðinni og svo vorum við með pottaplöntur. Ég fór að vinna þarna og ætlaði að taka garðyrkjuna á fimm ámm. En veturinn eftir var hér staddur danskur skrúðgarðyrkjumeistari frá kirkju- görðunum í Kaupmannahöfrí og var hann sendikenn- ari við Garðyrkjuskólann í stuttan tíma og hélt nám- skeið eina helgi fyrir starfandi garðyrkjumenn. Mér kom ekki til hugar að fara upp eftir því þetta námskeið var auglýst fyrir garðyrkjumenn en Kristján Jensen hætti ekki fýrr en ég fór með honum. Þegar ég var sestur á milli Kristjáns og Jóns í Alaska inni í skólastofu, þá fékk ég yfir mig þvílíkt kvalræði að við lá að ég tárfelldi yfir þeim örlögum mínum að geta ekki sest á skólabekk og farið að læra garðyrkju. Þetta var nokkurs konar hug- ljómun að kynnast þessu og heyra fýrirlestrana um 250 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.