Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2000, Síða 5

Heima er bezt - 01.11.2000, Síða 5
Arni Gunnarsson: Cæfan hefur verið mér hliðholl Eitt af mörgu sem fylgirþví að búa á okkarfjöl- menna höfuðborgarsvœði er að við erum sífellt að mæta fólki sem við þekkjum ekki. Flest af þessu fólki hverfur úr augsýn án þess að við veit- um því nokkra athygli vegna þess að ekkert ífasi þess né útliti vekur áhuga okkar. Dögum saman mætum við fólki sem birtist og hverfur, líkt og mynd á skjá, og líklega erum við flest í þessum hópi sjálf þegar horft er með augum þeirra sem við mætum. Svo kemurþað fyrir að allt í einu mætum við manni eða konu, sem á einhvern hátt sker sigfrá fjöldanum og myndþessarar persónu situr eftir í huganum eftir að hún er horfin og stundum endar þetta með því að við erum ekki í rónni ogförum að leita eftir því hverþessi per- sóna sé og reynum jafnvel að stofna til einhverra kynna til að svala áleitinni forvitni okkar. Með viður- kenningu frá Granda á sjötugs- afmælinu. Rætt við Einar Magnússon, fyrrverandi sjómann Mig minnir að það hafi verið í Kolaportinu, þessari Flóru mannlífsins í Reykjavík, sem ég fór að veita athygli manni þeinr sem hér er tekinn tali og leiddur fram fyrir lesendur þessa rits. Roskinn maður, grannvaxinn, stæltur og kvikur í hreyfingum, hæglátur í fasi en mikill á svip, með andlit likt og höggvið í stein. Hann stóð þarna í einum sölubásnum og afgreiddi harðfisk, hákarl og aðra skylda matvöru af þjóðleg- um toga. Mér sýndist útlit mannsins gefa til kynna að hann hlyti að hafa unr sína daga siglt einhverja þá sjói mannlífs senr vert væri að fá einhverjar fregnir af. Síðar bar þennan mann fyrir augu mér á hinum ýmsu stöðum. Ég sá hann stjórna róðrarsveit kvenna í kappróðri á Sjómanna- daginn og síðan brá honum fyrir í sjónvarp- inu þar sem hann var að leika sér við að leggjast flatur á gólfið, setja fullt vatnsglas á kollinn á sér og standa upp með það án þess að nokkuð haggaðist. Þetta allt varð svo til þess að ég stóðst ekki mátið og eitt sinn er ég var sem oftar staddur niðri í Kolaporti, vék ég mér að honum þegar stund gafst frá afgreiðslu, og fór þess á leit við hann að mega eiga við hann stutt spjall um ævi hans og eftirminnileg atvik. Hann tók Heima er bezt 397

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.