Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2000, Qupperneq 8

Heima er bezt - 01.11.2000, Qupperneq 8
enn geymdar úrklippur af því. Síðan gerðist það alllöngu seinna að verkakvennafélagið í Reykjavík hélt fund í Al- þýðuhúskjallaranum. Þá var móðir mín flutt til Reykjavík- ur. Þarna mætti hún að sjálfsögðu og þegar hún bað um orðið var henni synjað. Þetta segir sína sögu. Þrátt fyrir að þau Hannibal Valdimarsson ættu sameig- inlegt baráttumál á sviði verkalýðshreyfingarinnar þá voru þau þar um margt ósammála og elduðu grátt silfur á stund- um, því hún var lengra til vinstri en hann. Síðan var það á afmælisdegi hennar er hún varð áttræð, að henni barst heillaskeyti svo langt, að undir það þurfti tvö skeytaeyðu- blöð. Þetta skeyti var hlýlegt að efni og sá er það sendi var Hannibal Valdi- marsson. Ég bytjaði að sjálfsögðu ungur að vinna eins og tíðkaðist á þessum árum. Móðir mín réði sig í sildarvinnu til Siglufjarðar þegar ég var eitthvað um sjö ára aldur og tók okkur yngstu börnin með sér. Við urðum að sjá um okkur sjálf að mestu á daginn í bragg- anum á meðan hún var í vinnunni. Svo kom það einstaka sinnum fyrir að góð- viljaðir skipstjórar tóku mig með um borð og það var auðvitað toppurinn á tilverunni. Eitt sumarið fór mamma í síld til Hríseyjar og tók mig að sjálf- sögðu með sér. Það eftirminnilegasta frá þeim tíma var að þar keypti ég fyrstu munnhörpuna. Reyndar vöktu nú fyrstu æfingarnar ekki neinn sér- stakan fdgnuð áheyranda, svo ég varð I brúarglugganum (til hægri) á "Síldinni," ásamt Svenna mótorista. Þaö var siður að nýta allar stundir þegar ekki var hráefni fyrir hendi hjá Bæjarútgerðinni. að láta mér nægja að spila þegar ég var einn í bragganum. Að lokum náði ég þó þeim tökum á þessu að segja má að þetta hljóðfæri hafi fylgt mér síðan nokkuð samfellt. Harmonikku eignaðist ég svo löngu seinna en hef ekki verið nægilega duglegur við að æfa mig á hana svo á henni náði ég aldrei þeim tökum sem ég varð fyllilega ánægður með. Líklega mun fyrsta atvinna mín teljast hafa verið sumar- dvöl í Hvítárholti í Hreppum. Þar lærði ég að slá með orfi og það kom sér vel þegar mamma rak búið á Álftanesinu en þar þurfti að heyja handa kúnum sem voru þrjár. Þótt segja megi að í æðum mér renni sjómannsblóð átti sjómennskan ekki neitt sérlega vel við mig. Fyrsta reynsla mín þar var sú að ég réðst sem hjálparkokkur á togarann Max Pemberton. Þar var ég tvo túra. Seinni túrinn var siglt með aflann til Englands og ég var skilinn eftir í siglingar- fríi. Mér líkaði ekki vinnan um borð og ekki bætti úr að þetta var slæmt sjóskip sem tók þungar veltur svo maður gat átt von á öllu þegar veður voru verst. Það var búið að breyta skipinu eins og mörgum togurum á þessum tíma, lestin stækkuð svo hún rúmaði meiri afla og sú breyting ásamt ýmsum öðrum sem fylgdu í sama tilgangi hafði stórlega skert sjóhæfni skipsins. Ég var því ákveðinn í að segja upp þegar skipið kæmi til hafnar úr siglingunni. En til þess kom ekki því þessi túr reyndist verða sá síðasti. Max Pemberton fórst á heimleiðinni frá Englandi með allri áhöfn. Þetta varð mér sár reynsla, því þarna um borð hafði ég eignast marga góða vini og kunn- ingja sem ég saknaði sárt. Meðal annars eyddi ég mörgum stundum í loftskeytaklefanum og fylgdist með loftskeyta- manninum þegar hann var að starfa við sína tómstunda- iðju, sem var að smíða skipslíkön sem voru mikið lista- smíð. En fyrir unglinga lá vinna ekki á lausu á þessum tímum. Helst var um að ræða hafnarvinnu, þ.e. vinnu við uppskip- un á vöru úr fraktskipum því uppskipun á fiski önnuðust sjómenn að mestu sjálfir. Ég man að þegar ég kom fyrst að máli við verkstjóra sem sá um uppskipun og leitaði eftir vinnu, þá leit hann snöggt til mín og svaraði því stuttlega til að ég væri enn of ungur. Skömmu seinna var ég sem oftar staddur niður við höfn, en þar lá þá kolaskip sem byrjað var að skipa upp úr. Allt í einu mæti ég verkstjóran- um sem hafði synjað mér um vinnuna vegna aldurs nokkrum dögum áður. Hann vék sér að mér og ávarpaði mig: “Jæja, drífðu þig um borð og farðu að moka!” Mér varð hverft við og svaraði að bragði að hann hefði talið Þorvaldur bróðir minn ifiullum „herklœóum “. Þessi mynd hefur birst víða um heim. 400 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.