Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2000, Qupperneq 9

Heima er bezt - 01.11.2000, Qupperneq 9
Nokkur af róðrarliðunum sem ég stjórnaði jyrir Granda. I skips en hinir skipstjórarnir. Hann var bara ekki með neinn óþarfa hamagang því litlu skipti með þetta vegna þess að á þessum tíma var “róið eftir merkjum”, þ.e. enginn gat lagt í róður fyrr en eftir að merki hafði verið gefið og þá fyrst mátti setja stefnuna fram á miðin og auðvitað voru vélarn- ar keyrðar til hins ítrasta því allir vildu ná bestu lögninni. Eitt atvik er mér þarna minnisstætt. Þegar verið var að búast til róðursins eitt kvöldið var veður vaxandi og ég man að ég varð að skríða fram bryggjuna með síðasta bjóðið og það var með herkjum að allir komust um borð. Einhverjum af skipstjórunum leist ekki á veðrið og hættu við. Það var talsverður slampandi á útstíminu og nokkuð frarn á flóann en dró úr veðri er á daginn leið. Það var róið vestur undir jökul og þegar þangað var komið og farið að leggja línuna var komið besta veður sem hélst allan þann dag. En um kvöldið þegar fiskinum hafði verið landað og búið að gera klárt til næsta dags tilkynnti Olafur skipstjóri að ekki yrði róið að morgni. Þetta fannst okkur undarlegt háttalag, enda reru allir hinir og lögðu af stað í blíðuveðri. En er á daginn leið fór vindur ört að vaxa og lauk með slíku stólparoki að flestir bátarnir misstu meira og minna af línunni og máttu kallast heppnir að komast slysalaust í höfn. Þegar Ólafur hætti með Ásgeir tók við af honum skip- stjóri frá Eyjum sem Karl hét og var Sigurðsson að mig minnir. Alveg prýðismaður. Svo var það eitt sinn í stríðslok og Ásgeir var tekinn í slipp til einhverrar stærri skveringar, að ég réði mig tíma- bundið í afleysingu á Skeljung sem flutti olíu á hafnirnar við ströndina. Þetta urðu nú ekki nema tveir túrar, því | seinni túrinn varð býsna sögulegur þó ekki sé fastar að orði mig allt of ungan þarna á dögunum. “Ekkert röfl, það er nóg af skóflum niðri og þú skalt bara koma þér niður í hvelli og byrja”. Eg lét auðvitað ekki standa á mér þegar svona var komið og skellti mér í lestina með það sama. Þetta var bæði erfið og sóðaleg vinna en ég lét það ekki á mig fá og gerði mitt besta. Þarna voru auðvitað þraut- jojálfaðir vinnujaxlar sem litu svona grænjaxla eins og mig hálfgerðu hornauga. En ég setti mér það að halda í við þá eftir bestu getu og árangurinn varð sá að eftir þetta mátti ég helst ekki láta sjá mig á uppskipunarbryggjunni án þess að eiga von á að vera kvaddur til vinnu. Þetta var auðvitað ágætt þangað til ég fór að stunda sjóinn frá verbúðunum og landlegur komu. Þá varð ég eiginlega að varast að láta sjá mig þarna ef uppskipun var í gangi því ef verkstjórinn kom auga á mig vildi hann senda mig tafarlaust niður í lest. En auðvitað var maður nú ekki ævinlega ginkeyptur eftir lang- ar tarnir á sjónum. Ég var sjómaður um nokkurra ára skeið og lengst á hon- um Ásgeiri frá Reykjavík. Þá bjuggum við nokkrir af skipshöfninni í verbúðunum við bátahöfnina og höfðum mötuneyti með ráðskonu og öllu tilheyrandi. Skipstjórinn sem ég byrjaði hjá og reri lengst með, hét Ólafur Guð- mundsson og átti heima í Þingholtunum. Sumir kölluðu hann Ólaf lata vegna þess að hann kom stundum seinna til Heima er bezt 401

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.