Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2000, Qupperneq 13

Heima er bezt - 01.11.2000, Qupperneq 13
næsta bæ. Annar þeirra kom á vettvang srax en hinn nokkru síðar eftir að hafa komið boðum til bæjanna í sveit- inni. Ég tók síðan til við að leysa nautgripina og koma þeim út úr íjósinu með hjálp húsfreyjunnar, en bóndinn hafði fengið eitthvert taugaáfall og æddi bara í kringum brennandi bæinn. Ég hleypti kindunum út úr ijárhúsinu og var að hamast við að koma nautgripunum þar inn þegar liðið úr sveitinni kom á vettvang og lauk við verkið. Þá var íbúðarhúsið að mestu brunnið til kaldra kola og hef ég ekki séð hús brenna á jafn skömmum tíma. Ég var í buxunum einum fata þarna í frostinu og þegar öllum þessum atgangi lauk fór ég fyrst að finna fyrir kulda og setti þá að mér skjálfta. Ég var drif- inn inn í bíl og ekið heim að næsta bæ þar sem ég var dúð- aður undir sæng og gefið viskí í heitu vatni. Ég náði mér fljótt og varð ekki meint af. Nokkrar ferðir fór ég norður í Árneshrepp fyrir Þorvarð bónda á vörubíl sem hann átti til að sækja rekavið sem bændurnir á Gjögri höfðu sagað niður og selt honum. Það var alveg ofboðslega skemmtilegt og eftirminnilegt að kynnast þessu ágæta fólki sem þama bjó og því umhverfi sem það lifði í. Eitt sinn lenti ég þarna á balli síðsumars og það var nú dálítið sögulegt. Það hafði verið pöntuð hljómsveit úr Reykjavík og keypt undir hana flugvél. Hljómsveitin var mætt þarna að áliðnum degi en eitthvað hafa blessaðir mennirnir misskilið það hvetjum þeir áttu að skemmta, því um kvöldið þegar ballið átti að byrja voru allir meðlimir hljómsveitarinnar orðnir ófærir af drykkju og einhveijir voru sofnaðir víndauða. En allt leystist þetta þó farsællega. Ég hafði haft munnhörpuna mína meðferðis og þarna í sveitinni var rnaður sem átti gítar sem hann hann lék á. Það varð úr að hann sótti gítarinn og ég tók fram munnhörpuna og þarna lékum við svo fyrir dansinum sem dunaði ffam undir morgun og allir skemmtu sér hið besta. Hjá Bæjarútgerðinni og Granda var ég í 23 ár að með- töldum þessum skammtímafríum í Miðfirðinum. Ég tók virkan þátt í því félagslífi sent þarna var stundað, m.a. stjómaði ég kappróðrarsveitum á Sjómannadaginn í 20 ár. Sveitin vann marga verðlaunabikara sem geymdir eru hjá fyrirtækinu. Á Sjómannadaginn nú í sumar var ég svo heiðraður fyrir þetta með fallegum eignarbikar sem fúlltrúi Sjómannadagsráðs afhenti mér við þessa venjubundnu at- höfn á Geirsbryggjunni. Þótt ég stundaði aldrei íþróttir af neinni alvöm nema svolítið knattspyrnu á yngri árum, þá hef ég gaman af að fylgjast með öllu slíku, sérstaklega boltanum og fer á alla leiki sem ég kemst á. Ég tók nokkrum sinnum þátt í hlaup- um á Sjómannadaginn og keppti þá í sveit Granda. Þaðan á ég líka nokkra verðlaunagripi því ég var býsna sprækur hlaupari. Svo hafa margir haft gaman af að sjá þennan leik minn með vatnsglasið, sem ég var fenginn til að sýna í sjónvarp- inu. Þetta bytjaði þannig að ég var staddur norður í Mið- firði um áramótin. Þar átti ég marga góða kunningja og við komum nokkrir saman á gamlárskvöld á Bjargi, þar sem einn þeirra bjó. Við vorum eitthvað að fá okkur í glas og biðum eftir að komast á ballið úti á Hvammstanga, en það átti að bytja kl. 12. Allt í einu dettur mér í hug að fylla glas af vatni, setja það á gólfið og svo leggst ég flatur fyrir framan það og fer að koma því fyrir á hausnum á mér. “Hana, nú er Einar orðinn vitlaus”, segja strákamir. Svo kemur að því að ég finn að glasið stöðvast og þá fer ég að fikra mig á ijóra fætur og stend loksins upp með glasið á hausnum. Þeir urðu alveg agndofa og spurðu hvemig mér hefði dottið þessi vitleysa í hug. “Þið voruð bara orðnir svo leiðinlegir að mér fannst ástæða til að ég færi að snúa at- hyglinni að mér”, svaraði ég. Þetta hef ég oft leikið síðan og sárasjaldan misst glasið. Svo hef ég oft prófað að leggj- ast niður aftur með glasið og það hefúr tekist býsna oft. Ég geri ráð fyrir að halda þessum leik áfram á meðan ég get. Það er mikilvægt að halda sér í formi á meðan nokkur kostur er og heilsan leyfir. Eg tók oft eftir því á meðan ég vann við höfnina að þar voru á rölti rosknir menn sem virtust vera búnir að týna öllum áhuga fyrir lífinu og lífsleiðinn var teiknaður utan á þá. Ég tók þá ákvörðun þá að þetta skyldi ég ekki láta henda mig. Svo er það einn dag skömmu eftir að ég hætti hjá Granda vegna aldurs, að ég rölti inn í félagsmiðstöðina í Gerðubergi. Þá er þar roskinn maður, Benedikt að nafni og hann er að spila á harmoniku. Ég fer að hlusta á hann og allt í einu skýtur þeirri hugmynd niður í kollinn á mér að rölta til hans og segja honum frá að ég eigi munnhörpu heima og nú skuli ég ná í hana og svo ættum við að prófa að taka lagið saman. Nú, hann var til í þetta og í stuttu máli þá fannst öllum þetta ganga svo vel að nú hefur þetta þró- ast svo að þarna er komin nokkuð fjölmenn hljómsveit með hinum ýmsu hljóðfærum. Við þetta bættist svo söng- hópur, sem byrjaði sem kvartett og þar syng ég líka ásamt öðrum karli og tveimur konum. Stjórnandinn er Kári Frið- riksson píanóleikari, flinkur og stórskemmtilegur náungi. Við höfum starfað saman á þriðja ár og verkefnin eru næg. Við syngjum á skemmtunum eldra fólks bæði á sjúkra- stofnunum og víðar. Þá syngjum við allt upp í fjórum sinn- um í viku við morgunguðsþjónustur sem haldnar eru í kapellum sem borgin hefur látið setja upp, á einum 16 stöðum. Auk þess höfúm við verið pöntuð til að koma ffam á hinum og þessum stöðum og höfúm ferðast um mestallt landið með þessi skemmtiatriði okkar. Þetta er góður hópur og ég mun starfa með honum á meðan heilsan endist. í dag bý ég einn í lítilli íbúð sem ég á í Breiðholtinu. Ég hef tvívegis verið giftur og er fráskilinn. Ég eignaðist eina dóttur í hvoru þessara hjónabanda og þær eru báðar búsett- ar og starfandi erlendis í dag. Fyrir hjónaband eignaðist ég son sem lengi hefúr verið starfandi á Keflavíkurflugvelli. Ég held sambandi við þessi böm min og einsemdin htjáir mig ekki á meðan ég hef næg hugðarefni að starfa við og þar að auki hef ég nóg að gera um helgar í Kolaportinu en þar hef ég staðið í sölubásum næstum því frá upphafi, eins og ýmsir munu kannnast við. Heima er bezt 405

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.