Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2000, Side 14

Heima er bezt - 01.11.2000, Side 14
Benedikt Sigurjónsson frá Arbœ: Minningarfrá Vorið 1941 haföi ég ákveðið að sœkja um skólavist á Eiðum, vegna þess aö ég hafði mikla löngun til að lœra meira en ég hafði áður gert. Hafði þó verið einn vetur í unglingaskóla á Höfn, þar sem Henrik Thorlacius var eini kennarinn. Og auð- vitað hafði ég tekið fullnaðarpróf úr barnaskóla. veturinn 1941 til 1942 Eg hafði sótt um á Laugarvatni og fengið synjun en fékk skólavist á Eiðum. Þar sem ég var ekki fæddur með silfurskeið í munninum og foreldrar mínir fremur efnalítil, þá varð ég að vinna fyrir kaupi um sumarið. Fór ég því í Bretavinnu á Reyðarfirði um vorið en um sumarið í vegavinnu á Fjarðarheiði, þar sem Unnar móðurbróðir minn var verkstjóri. En um það sumar ætla ég ekki að skrifa að þessu sinni, hvað sem seinna verður. Þegar ég fékk loforð um skólavist á Eiðum fékk ég blað í hendurnar um eitt og annað viðvíkjandi skólavistinni. Og þar sem þetta er nú að verða sextíu ára gamalt, þá ætla ég að birta það, ef einhver hefði gaman af að lesa, því ég tel að það sýni vel hvernig héraðsskólarnir voru hugsaðir og reknir. En nú munu þeir allir vera liðnir undir lok, því miður að mínu áliti. Þetta blað er þannig: Eiöum. Um leiö og þér heimilast skólavist í Eiðaskóla næsta vetur, þykir mér rétt aö gefa þér eftirfarandi upplýsingar um skólann og námiö áöur en þú kemur hingað. Inntökuskilyrði eru þessi, samkv. reglugerö skólans: 1. Umsækjandi sé fullra 16 ára aö aldri. 2. Hann verðurað hafa læknisvottorð um það, aö hann sé ekki haldinn af neinum slæmum sjúkdómi eða líkamskvilla er geti orðið hinum nemendunum skað- vænn. 3. Siöferöi hans sé óspillt og skal hann hafa vottorð um það frá presti sínum. 4. Hann hafi hlotið menntun þá, sem ætluð er til fullnaðarprófs barna og enn- fremur lesið að minnsta kosti eina af íslendingasögunum. 5. Umsókninni fylgi fullgild ábyrgð fyrir öllum fjárhagsskuldbindingum umsækj- anda meðan hann dvelur sem nemandi. Mætti orða ábyrgðina á þessa leið : Ég undirritaður (nafn, staða og heimili ábyrgðarmanns) geng hér með í ábyrgð fyrir skilvísri greiðslu á öllum gjöldum, sem (nafn og heimili umsækjanda) ber að greiða vegna væntanlegrar námsdvalar sinnar við Eiðaskóla Dagsetning og undirskrift ábyrgðarmanns. Nemendur fá ókeypis kennslu, húsnæði, rúmstæði með dýnu, Ijós og hita. Að öðru leyti verða þeir að kosta sig sjálfir, m.a. leggja sér til rúmfatnað allan og þar á meðal rúmteppi. Fatnaður þeirra sé greinilega merktur. Mjög áríðandi er að þeir sendi allan sjóvegsflutning á undan sér og merki hann tryggilega að Eiðum um Reyðarfjörð. Kostnaður: Dvalarkostnaður síðastliðið ár var kr. 480 fyrir pilta en kr. 460 fyrir stúlkur. Þó geta þessar upphæðir orðið hærri séu allar bækur keyptar nýjar, en vel geta tveir 406 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.