Heima er bezt - 01.11.2000, Qupperneq 15
Svo mörg voru þau orð og ekkert nafn var skrifað
undir blaðið. Eftir birtingu þessa skjals þarf ég ekki að
taka það fram að þetta var heimavistarskóli, sem starfaði
í yngri og eldri deild. Reyndar var seinna meir bætt við
þriðju deildinni og hét hún Smíðadeild. En þar sem ég
veit í raun ekkert um hana, þá get ég af augljósum ástæð-
um ekkert skrifað þar um, enda er það ekki í sambandi
við þessar endurminningar.
Þá er nú best að ég segi frá skólahúsinu. Því miður veit
ég ekki hvað það voru margir fermetrar.En þessi bygging
var tvær hæðir, ris og kjallari. í risi var heimavist eða
svefnloft pilta. Voru það tveggja og þriggja manna her-
bergi, sem öll hétu eitthvað, t.d. það herbergi sem ég bjó
á, en það hét Brattahlíð. Það var þriggja manna og þeir
sem með mér voru hétu Vilberg Lárusson, hann var Esk-
firðingur, ekki vissi ég fyrr en mörgum árum seinna að
hann var töluvert skyldur mér. Hinn hét Jóhann Björns-
son frá Surtstöðum í Jökulsárhlíð.
Á annari hæð var heimavist stúlkna og ennfremur íbúð
skólastjórahjóna og íbúð Þórodds. Þar bjuggu einnig
Ingibjörg matráðskona og hjálparstúlka hennar. Ég held
að þær hafi verið saman á herbergi. Einnig voru þar sam-
an á herbergi tvær vinnukonur skólastjóra og Þórodds.
Á fyrstu hæð var anddyri. Þar var fatahengi og til hægri
þegar inn var komið, tvær kennslustofur auk geymsluher-
bergis fyrir ýmis kennslugögn. Til vinnstri var matsalur-
inn og eldhúsið og að auki eitt svefnherbergi að mig
minnir fyrir ijóra pilta og straustofa, sem við kölluðum
svo, en þar var gengið frá taui eftir þvott, t.d. straujað og
brotið saman. Þar var ennfremur bakgangur í húsið. Mig
minnir að þar færi einnig fram handavinnukennsla
stúlkna.
í kjallara var þvottahús, matvælageymsla fyrir garðá-
vexti, saltkjöt, súrmeti og fleira. Þar var miðstöðvarketill
og kolageymsla. Svo var þar leikfimissalurinn og böð,
sem voru sturtuböð. Við fórum í kalda sturtu alltaf eftir
leikfimi og einu sinni í viku í heita sturtu og hét það
þrifabað og þá var notuð sápa.
Það er best að segja frá því í þessu sambandi, úr því að
ég minnist á leikfimissalinn, að í áðurnefndu skjali þar
sem okkur er ráðlagt hvað við ættum að hafa með okkur í
skólann, er m.a. sagt að við ættum að hafa meðal annars,
leikfimisföt. Það gerðu nú flestir og létu sér nægja stuttar
lastingsbuxur, en einn pilturinn kom með kvenmannsnær-
buxur með teygju í skálmunum að neðan. Þetta þótti okk-
ur hinum býsna hlægilegt, en þessi brók gerði nú sitt
gagn, hvað sem okkur fannst.
Fleiri hús tilheyrðu skólanum og ætla ég að nefna hjall-
inn, þar sem þvotturinn var þurrkaður og smíðaloftið,
sem var efri hæð í einhverju útihúsi, sem ég veit ekkert
meira um.
Því miður man ég ekkert eftir skólasetningunni. Hvort
það var þá eða fljótlega í byrjun skólans, sem ég hygg að
hafi nú verið, þá man ég vel eftir því þegar skólastjóri,
sem við nemendurnir kölluðum yfirleitt “stjóra,” var að
fræða okkur um það hvernig við ættum að umgangast
vatnssalerni. Kannski var þörf á þessu þar sem slík tæki
hafa ekki verið algeng a.m.k. á sveitaheimilum, sem við
vorum mörg eða flest frá.
Nú ætla ég að telja upp kennara, sem kenndu okkur
þennan vetur og reyndar annað heimilsfólk á Eiðum.
Fyrstan tel ég skólastjórann Þórarinn Þórarinsson frá Val-
þjófstað. Hann var guðfræðingur að mennt, mikill áhuga-
maður um skólamál, skógrækt og hvers konar menning-
armál. Hann kenndi dönsku, ensku held ég, en ég tók
ekki þátt í henni, sögu, söng og auk þess flutti hann oft
fræðandi erindi um hin ýmsu efni en þó flest söguleg, ef
nemendur notað flestar bækur í félagi, sé samkomulag gott.
í áðurnefndum kostnaði erfalið fæði og hreinlætisvörur, gjöld í sjóði, bæk-
ur og ritföng. Ferðakostnaður og vasapeningar eru hér að auki. Nemendur
skulu greiða, sem mest af kostnaðinum í byrjun skólaárs og vera skuldlausir
við skólaslit.
Kennslubækur og nám:
Þessar bækur voru notaðar við kennsluna miðað við yngri deild:
Málfræði Björns Guðfinnssonar, Lestrarbók Nordals, Ritreglur Freysteins,
Reikningsbók Ólafs Daníelssonar, Landafræði Bjarna Sæmundssonar, Plönt-
urnar eftir Stefán Stefánsson, Heilsufræði Steingríms, íslendingasaga Arn-
órs, Fornöldin eftir Þorleif Bjarnason, Kennslubók í dönsku eftir Ágúst Sig-
urðsson, 1. og 2. Kennslubók I ensku eftir Önnu Bjarnadóttir.
Bækur allar og ritföng eru seld I skólanum við bókhlöðuverði og skal það
greitt við móttöku.
Stúlkum eru kenndar hannyrðir og saumur en piltum smíðar, leðurvinna
o. fl. Ráðgert er að auka handavinnu kennsluna frá því, sem verið hefur.
Kennsla í söng og fimleikum fer fram allan veturinn og er æskilegt að
nemendur hafi með sér Vasasöngbókina, sálmabók og leikfimisföt.
Nemendur eru skyldir að vera úti eina klukkustund daglega, sér til heilsubót-
ar og til þess að stunda útiíþróttir, sem kapp verður lagt á að æfa eftir föngum,
ættu því þeir, sem eiga skauta og skíði að muna eftir að hafa þau með sér.
Útbúnaður:
Nauðsynlegt er að hafa með sér hlý og vatnsheld utanyfirföt, Islenska
sokka og vettlinga, góða, vatnshelda skó eða stígvél til að vera í útivið.
Sérhver nemandi hafi með sér tannbursta og tannsápu, skó- og fata-
bursta, handsápu, skóáburð og hlífðargleraugu.
Ýmislegt:
Nemendur þjóna sér sjálfir, munið því eftir því að taka með ykkur nál og
spotta. Þeir þvo þvott sinn og slétta klæði sín. Þeir skulu ræsta herbergi sín,
ganga, kennslustofur, snyrtiherbergi og fimleikasal
Þá skulu þeir til skiftis hjálpa til í eldhúsi og borðstofu. Þurfa því allir pilt-
ar jafnt sem stúlkur, að hafa hvíta sloppa eða treyjur. Geta tveir til þrír verið
saman um hverja treyju og getur skólinn aðstoðað við kaup á þeim.
Áfengis og tóbaksnotkun er algerlega bönnuð.
Nemendur greiði fullu verði það sem þeir kunna að skemma, svo skólinn
verði skaðlaus.
Skólinn væntir þess af sérhverjum nemanda sínum að hann veröi góður
heimilsmaður, er temji, sér háttprýði, snyrtimennsku og sjálfstjórn I hví-
vetna.
Brjóti nemandi settar reglur eða hagi sér ósæmilega, hefur hann fyrirgert
rétti sínum um skólavist.
Skólinn verður settur 30. Október. [Það kann að vera að þessi dagsetning
sé röng hjá mér, því það er orðið illlæsilegt en það breytir engu í raun og
veru. Innsk. greinarhöf.]. Skulu þá allir komnir nema forföll banni.
Mundu eftir að láta mig vita símleiðis þegar í stað ef þú, af einhverjum
ástæðum, verður að hætta við að sækja skólann.
Velkomin að Eiðum.
Heima er bezt 407