Heima er bezt - 01.11.2000, Side 16
^enao.^
'4/rC^
’^í.SSÖtV
'SuSc^
^nout
/JoruV^
A ''S^
"Sujnft**
'm e\>«*
"•J(Sv>'!'
^ctrn^-
Skólaspjald nemenda og kennara á Eiðaskóla 1941-42.
ég man rétt. Hann hóf mál sitt venjulega á þessum orð-
um: „Nemendur mínir“.
Kona skólastjóra, Sigrún Sigurþórsdóttir, kenndi stúlk-
unum hannyrðir og saum. Þóroddur Guðmundsson frá
Sandi kenndi okkur íslensku, grasafræði, heilsufræði og
bókmenntasögu, við kölluðum hann alltaf Odd svona
okkar á milli. Grasafræðina kölluðu margir grasasna-
fræði. Það var vegna þess að mörgum leiddist sú ágæta
fræðigrein. Ég skildi það nú ekki því að mér fannst hún
mjög skemmtileg.
Kona Þórodds var Hólmfríður Jónsdóttir, ég veit ekki
meira um hana. Þórarinn Sveinsson kenndi okkur reikn-
ing og fimleika, hann mun hafa haft á hendi reiknings-
hald fyrir skólann að ég held. Kona hans var Stefanía
Jónsdóttir, síðar símstöðvarstjóri á Eiðum. Þau bjuggu í
sérhúsi. Jón Dagsson brúarsmiður frá Melrakkanesi
kenndi okkur landafræði, smíðar og, ef ég man rétt, eitt-
hvað í eðlisfræði. Hann var mjög góður smíðakennari.
Mig minnir að það hafi verið mikið kapphlaup að kom-
ast í rennibekkinn, sem var á smíðaloftinu, en fleira var
nú gert en að renna, því að við smíðuðum ferðatöskur,
skrifborð, bollabakka o.fl., sem ég man ekki upp að telja.
Ennfremur minnir mig að Jón hafi sagt okkur til í leður-
vinnu. Ég man að ég smíðaði mér sandala, og peninga-
veski, sem ég á ennþá, saumaði ég.
Ekki man ég hvað kona Jóns hét, en þau bjuggu í kjall-
arum hjá Þórarni Sveinssyni.
Skólastjórahjónin höfðu vinnukonu, sem hét Ragnheið-
ur Einarsdóttir frá Valþjófsstað. Hún var kölluð Agga.
Þóroddur og Hólmfríður höfðu líka vinnukonu, sem hét
Sigríður Sigtryggsdóttir og var kölluð Didda. Hún var frá
Þórshöfn.
Þessar stúlkur höfðu oft samband við okkur nemana,
kannski mest upp á spaug og glens, svo sem títt er hjá
ungu fólki.
Ekki má ég gleyma matráðskonnunni, en hún hét Ingi-
björg Björnsdóttir frá Rangá, en við kölluðum hana yfir-
leitt Imbu. Ég held að flest höfum við verið mjög ánægð
með hana og talið að hún stæði sig vel í sínu starfi.
Hún hafði aðstoðarstúlku, sem kölluð var Begga, ekki
man ég hvað hún hét en Gísladóttir var hún frá Skóga-
gerði. Hún var besta stelpa.
408 Heima er bezt