Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2000, Qupperneq 36

Heima er bezt - 01.11.2000, Qupperneq 36
konu verslunarstjórans. Hún greinir hjá Ástríði glögg merki þreytu og svefhleysis og býður henni að leggjast til hvíldar á meðan þau hjónin bíða þess að komast til síns heima. Ástríður þiggur boðið með þökkum. Henni varð ekki svefnsamt sjóleiðina frá Reykjavík til Brimness og líðan henn- ar öll miður góð. Gestgjafinn býr henni þægilega hvílu og hún sofnar skjótt. En Matthías svaf vel í skipinu vaggandi á bárum hafsins og er ekki hvíldarþurfi. Hann ákveður að fara út á göngu og liðka sig eftir sjóferðina meðan kona hans sefur. Matthías kannast við ýmsa menn á Brimnesi og brátt mætir hann einum málkunnugum sem tekur hann tali. Viðmælendur verða fleiri og tíminn flýgur hjá. Loks er Matthías orðinn einn á göngu, augu hans leita út á þjóðveginn. Þar er enginn í sjónmáli en Pétur Geir gæti senn farið að birt- ast, hugsar hann og beinir för upp að beitarhólfi skammt ofan við þorpið sem ætlað er hrossum ferðamanna og hann er vanur að geyma þar hesta sína í kaupstaðarferðum. Beitarhólfið stendur autt. Matthías tekur sér sæti á þúfubarði þama rétt hjá og hlustar eft- ir fjömgum hófaslætti sem jafnan ein- kennir reiðlag sonar hans. Hann þarf ekki að bíða lengi, brátt hljómar í eyr- um þetta kunnuglega samspil manns og hests við náttúruna og Pétur Geir skeiðar greitt upp að beitarhólfinu. Matthías rís á fætur í skyndi og fagnar syni sínum feginn endurfund- um. Pétur Geir býður föður sinn vel- kominn á heimaslóðir og spyr að bragði: - Hvemig líður mömmu? Matthías andvarpar þunglega. - Síst betur en þegar hún fór að heiman, góði minn, svarar hann. Hún lagði sig og sofnaði eftir hádegið svo ég rölti hingað til móts við þig. - Suðurförin tók ekki langan tíma, pabbi, segir Pétur Geir og opnar beit- arhólfið. - Nei, þvílíkt og annað eins. Það er best að þú fáir að heyra ferðasöguna núna strax, svarar Matthías og hjálpar syni sínum að hleypa hestunum inn í hólfið. Þeim veitir ekki af því að grípa stundarkom niður í græn grös eftir sprettinn að heiman og fyrir næsta áfanga. Feðgarnir tylla sér sitt á hvort þúfu- barðið rétt utan við beitarhólfið og Matthías hefúr ffásögn sína: - Eins og þér er kunnugt á ég frænda búsettan í Reykjavík, hann Áslák, við erum bræðrasynir og höf- um verið nánir vinir allt frá bamæsku. Hann var á Lyngheiði hjá foreldrum mínum á hverju sumri frá unga aldri og fram yfir fermingu. Eftir að leiðir skildu höfum við árlega skipst á sendi- bréfum og rækt æskuvináttuna. Áður en lagt var af stað í siglinguna frá Brimnesi sendi ég Ásláki sím- skeyti og skýrði honum frá væntan- legri komu okkar hjóna til Reykjavík- ur og erindi móður þinnar þangað. Sjóferðin suður gekk vandræðalaust. Við heilsuðum höfuðborginni árla morguns. Áslákur var mættur við landganginn og flutti okkur á heimili sitt. Þar beið Steiney kona hans með höfðinglegar móttökur og þau hjónin buðu okkur að dvelja á heimili sínu eins lengi og við þyrftum að vera syðra. Strax upp úr hádegi þennan fýrsta dag vildi mamma þín tafarlaust drífa sig til sérfræðingsins. Áslákur vissi hvar hann var að finna og ekki stóð á því að fylgja okkur þangað. Greiðlega gekk að ná fundi læknisins og mamma þín afhenti honum tilvísunina frá hér- aðslækninum hérna. Eftir að hafa lesið hana skoðaði sérfræðingurinn mömmu þína vandlega og spurði um sjúkdómsferlið. Að því loknu kvað hann upp þann úrskurð að mamma þín þyrfti að leggjast inn á sjúkrahús til ffekari rannsóknar en lengra komst hann ekki. Hún hreinlega missti stjórn á sér. - Nei, á spítala fer ég aldrei. Ég hélt að þú sérfræðingurinn kynnir önnur ráð en innilokun, þekktir lyf, sem kæmu mér að gagni, þrumaði hún og skalf af æsingi eins og hrisla í vindi. Læknirinn horfði á hana rólegur í bragði. - Ef til vill þekki ég lyf sem geta komið þér að gagni en til þess þarf ég að rannsaka veikindi þín miklu nánar en ég hef tök á hér á stofunni, svaraði hann vinsamlega. - Ég neyði engan inn á sjúkrahús hjá mér, þitt er valið. - Ég læt ekki loka mig inn á spítala, sagði hún skelfingin uppmáluð. - Til læknis leita ég ekki framar. Hún skipaði mér að greiða viðtalið og skjögraði til dyra. Ég vissi að von- laust var að ræða þetta ffekar og gerði upp við sérffæðinginn. Áslákur beið okkar fyrir utan. Hann spurði einskis á heimleiðinni um svör læknisins, hörmulegt ástand konunnar sagði nóg. Steiney tók mömmu þinni opnum örmum og bauð henni að leggjast til hvíldar á meðan hún jafn- aði sig eftir heimsóknina til læknisins sem sýnilega hafði reynt mikið á hana en mamma þín mátti ekki vera að því. Hún bað Áslák að spyijast strax fýrir um skipaferðir til Brimness, hún vildi helst leggja af stað frá Reykjavík sam- dægurs og mér sýndist heppilegast úr því sem komið var að hún kæmist heim sem fyrst. Við Áslákur fórum á skipaafgreiðsl- una og fengum þær upplýsingar þar að strandferðaskip ætti að leggja af stað ffá Reykjavík norður um land klukkan sjö að kvöldi næsta dags og ég tryggði okkur hjónum far með því skipi. Morguninn eftir hafði mamma þín að mestu sigrast á sálarangist og skapofsa gærdagsins og náð sæmilegu jafnvægi. Steiney bauðst til þess að fara með henni í búðir, langaði hana til að versla eitthvað í höfuðborginni. Mamma þín hafði ekki áhuga fyrir því en hún bað Steineyju að kaupa fyrir sig einn hlut áður en hún færi heim. Fallegasta rugguhest sem hún sæi í búð. Hann ætti að vera handa litla drengnum á Lyngheiði. Og rugguhest- urinn er eini viðbótarfarangur okkur úr þessari ferð. Matthías hefur lokið ffásögn sinni og rís úr sæti. - Vesalings mamma, er það eina sem Pétri Geir verður að orði. Hann stendur snöggt á fætur og opnar beit- arhólfið. Hann vill komast sem fyrst af stað heimleiðis. Og innan stundar halda Lyngheiðarhjónin í fylgt sonar síns heim á ættaróðal sitt. Og suður- förin er orðin dropi í hafi fortíðarinn- ar. 428 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.