Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.05.1965, Qupperneq 16

Æskan - 01.05.1965, Qupperneq 16
SAGA ■plzti geimfarinn, sem á lof't hefur ■L~' farið til þessa, mun vera Pavél Bélaéf, sem fór 17 hringi umhverfis jörðu 18. marz s.l. Pavél Bélaéf verð- ur fertugur á þessu ári, og líklega hefur leiðin upp í geimfar engum ver- ið svo erfið sem einmitt honum. Hug- ur Pavéls stóð snemma til flugs, en frá upphafi virtust atvikin leggjast gegn því að það mætti takast. Þegar hann kom ungur sveitastrákur til borgarinnar Kaménsk-Úralsk til að ganga á flugskóla, þá gat hann ekki fengið skólavist, af því að heimavistar- pláss var með öllu þrotið. Nokkru síð- ar tókst honum þó að komast að við flugnám og fór í sína fyrstu flugíerð ásamt kennara í lítilli skíðavél og var vitanlega ákaflega ánægður með sitt hlutskipti, söng af kæti. En lending- in tókst ekki betur en svo, að skíðin stungust niður í djúpan snjó og flugvélin steyptist yfir sig. Upp frá þessu gekk Pavél allt í haginn lengi vel. Daginn sem Þjóðverjar gáfust upp, en það var 5. maí 1945, út- skrifaðist hann sem orrustuflugmað- ur, og eldskírn sína hlaut hann, þegar hann síðustu vikur stríðsins fylgdi sovézkum sprengjuflugvélum er þær gerðu árásir á stöðvar japanska flot- ans. Er stríðinu lauk hélt Pavél áfram þjónustu sinni í flughernum og starf- aði þar í 11 ár og var þá orðinn for- ingi fyrir sveit orrustuflugmanna. Árið 1956 var hafizt handa um að þjálfa nokkra flugmenn til fyrirhug- aðra geimferða og Pavél var einn þeirra, sem valdir voru til að ganga undir þær þrekraunir. Hann var elzt- ur í þeim hópi, þá rúmlega þrítugur. En ekki höfðu æfingar staðið nema skamma stund, þegar hann varð fyrir því óhappi, sem virtist dæma hann úr leik með öllu. Geimfarar voru að þjálfa sig í fallhlífarstökkum. Þeir köstuðu sér út í allmikilli hæð og áttu að láta sig hrapa í þrjátíu sek- úndur áður en fallhlífin opnaðist. Pavél varð síðastur til að stökkva og var þá aðeins farið að hvessa. Fall- hlífin opnaðist á réttum tíma, en er hann átti skammt ófarið til jarðar, kom snörp vindhviða og hálflokaði fallhlífinni og jók þetta fallhraðann fram úr hófi: Pavél kom illa niður og tvíbraut á sér vinstri fótinn. Verðandi geimfarar báru félaga sinn í sjúkrabíl í þungum þönkum. Þarna hafði sá fyrsti líklega helzt úr lestinni; Pavél sjálfur var hins vegar ekki á þeim buxunum að spá sjálfum sér hrakspám, ekki frekar en þá, er fyrstu flugferð hans lauk með því að vélinni hvolfdi í skafli. Hann beið þolinmóður í fjörutíu daga og fjöru- tíu nætur á sjúkrahúsi meðan brot hans var að gróa. Og þegar hann a® lokum fékk að fara heim, tók haI111 til óspilltra málanna að styrkja þeI111 an brotna fót. Hann minntist þá y111 issa þjóðráða, sem faðir hans gaf sjúÚ ingum sínum. Helzta aðferð hans val sú, að standa lengi á vinstra fæti setja á herðar sér ýmisleg aílrauna tæki og smáþyngja byrðina. Og sV° kom, að hann þóttist fær í flestan sí^' Flestir aðrir voru þó á öðru máli- P‘l vél gæti að vísu flogið og auðvita lært við Akademíu flugliersins, en 11 geimferðir þýddi ekki að tala. En þa. fór nú svo, að Pavél fór 17 hriuS1, umhverfis jörðu og var stjórna11 geimskipsins. geimfarans. 0 188

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.