Æskan

Årgang

Æskan - 01.04.1966, Side 8

Æskan - 01.04.1966, Side 8
 HROI HÖTTIIR * * * ★ ★★★*★ ★★ ★★★★★★* Skömmu eftir þetta gleðigildi sat Hrói höttur einhverju sinni snemma morguns við þjóðveginn og skóf boga sinn sér til skemmtunar. Þá kom hann auga á slátrara einn þrýstinn og þrifalegan, sem skundaði til torgs með stóra körfu fulla af kjöti á hestinum fyrir framan sig. „Góðan daginn, kunningi," mælti Hrói höttur um leið og hinn reið framhjá. „Hvað hefurðu í körfunni þeirri arna?“ „Það má þér víst standa á sama," svaraði slátrarinn. „Ég held, að þú farir varla að kaupa það.“ „Bíddu við, kunningi, það sakar eigi að vera lítið eitt hæverskari," tók skógarmaðurinn til máls, stóð upp um leið og lagði höndina á makka hestsins. „Hve mikið viltu fá fyrir klárinn þinn með körfunni og öllu, sem í henni er?“ Hrói hðttur og slátrarinn. „Ef þér er alvara að eiga kaup við mig,“ svaraði slátr- arinn, sem enn var í efa, hvort hann ætti að trúa komu- manni, „þá skaltu fá heila skranið fyrir 250 krónur.“ „Láttu mig fá yfirhöfnina þína í kaupbæti, þá eru hér fagrir peningar til reiðu.“ Með þessum orðum tók hann handfylli af gullpeningum úr leðurpyngju, sem hékk við belti hans, og hringlaði framan í slátrarann. Maðurinn varð fegnari en frá megi segja að fá slíkan ábata af vöru sinni. Hann steig því af hestbaki þegar í stað, fékk hinum nýja eiganda tauminn og snaraði sér úr kápunni, sem öll var fitug að utan. Hrói greip hana og fleygði henni yfir sig, hljóp á bak, tók slátrarakörfuna fyrir framan sig og hélt af stað til Nottingham. Þegar til borgarinnar kom, hélt hann rakleiðis á kjöt- sölutorgið. Hann kom hesti sínum fyrir í veitingahusl’ síðan opnaði hann körfuna og bauð vöru sína til söh1' Hann vissi lítil deili á kjötverði, og lét sig litlu skipta’ hvað kjöt kostaði venjulega, en kvenfólkið, sem var þal að kaupa, varð þess skjótt vart, að hann seldi fimnila|t ódýrara en hinir slátrararnir. Nú þyrptust kaupendurn*1 óðum að honum, en naumast komu nokkrir til hinIia slátraranna. I fyrstu gátu þeir ekki skilið, liverju pa sætti, að allir þustu til þessa nýja slátrara, en þá komst einn þeirra að því, að hann seldi heilt svínslæri fyrlt aðeins sjötíu aura, og hófu þeir nú ráðstefnu mikla nU1 þennan ófögnuð. Öllum kom þeim saman um, að anna hvort hlyti hann að vera vitfirringur, eða einhver óknytta seggur, sem hefði hlaupið burt með fémuni föður slIlS’ en allir voru þeir staðráðnir í að reyna að kynnast honllllj betur. Þegar torgsölutíminn var úti, gekk einn þeirra Hróa hattar og mælti: „Heyrðu, félagi, við skulum borða miðdegisverð saiU‘l1 í dag, við hérna höfum allir sömu atvinnu." „Það líkar mér,“ sagði skógarmaðurinn, „og fáuni o*- ur nú væna máltíð. Þetta er í fyrsta skipti sem ég hel11 í yðar hóp, og skulum við því hressa okkur og gel glaðir-“ s Þeir söfnuðust kringum stórt borð, við efri enda P hafði íógetinn í Nottingham tekið sér sæti, en skógal maðurinn settist við hinn endann. Þar sem Hrói höt var ókunnur gestur á meðal þeirra, las hann borðbæn111*; og að því búnu lögðu menn allknálega að nautasteiki og hjartarlærunum, sem þar voru á borð borin. k1 höttur gerði matnum eins góð skil og hver hinna» ^ þegar borð voru rudd, kallaði hann: „Berið öl á ho1 Gerist glaðir, góðir menn! Ég borga!“ „Hann er ekki með öllum mjalla," sagði fógetinn sessunaut sinn. „Við verðum að reyna að komast hvaðan hann er. Heyrðu, vinur,“ sagði hann því V10 eftin níst 156

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.