Æskan

Årgang

Æskan - 01.04.1966, Side 10

Æskan - 01.04.1966, Side 10
LITLA SAGAN Einu sinni átti lítill drengur, sem hét Abraham Lincoln, Jieima í svolitlum landnemakofa í Indiana í Bandaríkjunum. Hann langaði mikið til að fá að fara í skóla. Hann hafði lært að lesa heima og las allt, sem hann náði í, en hann langaði til að læra meira og verða „eitthvað mikið“. En liann vissi engin ráð til þess. Hann vissi aðeins eitt: það var um að gera að vera duglegur. Móðir hans dó, þegar hann var lítill. Hún hafði alltaf sagt, að drengurinn mætti lesa eins mikið og hann vildi, en þegar hún var dáin, varð hann að strita með föður sínum myrkranna á milli. Hann var stór og sterkur og þess vegna fannst föður hans ekki viðlit, að hann lægi í bókum í stað þess að sinna búskapnum. Hann las allt, sem hann náði í. HANN fékk að fara í skóla. Þegar Abraham var níu ára og Sara systir hans ellefu, kom faðir þeirra einn góðan veðurdag heim með nýja konu og þrjú börn. Sem betur fór var það góð stjúpa, sem börnin fengu. Henni fannst sjálfsagt, að Abraham fengi að fara í skóla í næsta þorpi, en pabbi hans nöldraði: „Bókvitið verður ekki látið í askana." „En má ég fara í skóla, ef ég get sannað, að það sé gagnlegt að kunna að lesa?“ spurði Abraham. „Já,“ muldraði faðir hans, og Abraham fékk tækifærið fyrr en liann hafði gert sér von um. Faðir lians hafði hug á að selja nágrannanum jarðarspildu. Og dag einn kom nágranninn til að gera út um málið. „Ef þú undirskrifar þetta blað,“ sagði hann, „þá tek ég við spildunni, sem þú vilt selja.“ Hvorugur þeirra kunni að lesa eða skrifa, en nágranninn hafði fengið mann í þorpinu til að skrifa kaupsamninginn. „Lofaðu mér að lesa þetta blað, pabbi," sagði Abraham. Hann fékk það og las línu eftir línu. Allt í einu tók hann viðbragð: „Ef þú undirskrilar Jætta, afsalar jrú jrér allri jörðinni," hrópaði hann. Nágranninn sagði, að jrað gæti ekki verið rétt, en gamli Lincoln sagði: „Ég veit, að Jn'x liefur ekki ætl- að að pretta mig viljandi. En meinið er, að við þurf- um báðir að fá aðra til að lesa og skrifa fyrir okk- ur. Þess vegna fer ýmislegt öðruvísi en við ætlum. En drengurinn Jrarna kann að lesa og skrifa — Jaað er víst bezt að láta liann fara í skóla.“ Síðar varð Jxessi drengur málaflutningsmaður, og árið 1861 varð hann forseti Bandaríkjanna. Þræla- haldið var afnumið í stjórnartíð hans. Og hann er talinn einn merkasti maðurinn í allri sögu Banda- ríkjanna. „Það er xíhætt að gela honum öl, Jrvi að hér eru þrjú hundruð pund í aðra hönd,“ sagði Litli Jón, þegar hann hafði talið peningana og látið í pyngjuna aftur. „Lofið mér að fara, eða juð munuð kornast að Jrví full- keyptu áður en þessi dagur er liðinn!" æpti bæjarfógetinn og hljóp að hesti sínum. Hrói gekk til hans til að hjálpa honum á hestbak. Hann hélt í ístaðið, meðan fógetinn var að komast á bak. Hrói ,kila óskaði lionum farsællar heimferðar og bað hann að s' «rOXO ástúðarkveðju til konu hans. Vesalings bæjarfógetinn v guðsfeginn að sleppa burt heill á húfi og svaraði Hann keyrði hestinn sporum, og var þegar horfinn augsýn. Hinir glaðværu skógarmenn sneru Jrá aftu| ^ stöðvar sínar, drukku aftur minni bæjarfógetans, og ‘ uðu þess, að þeir fengju sem oftast slíka gesti. í næsta blaði: fírói höttur o£ Vilhjíiltnuv ofuríiuái. 158

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.