Æskan - 01.04.1966, Qupperneq 16
ÞRiÞRAUT FRi
OG ÆSKUNNAR
ipp
Kæru lesendur!
í síðasta blaði sögðum við ykkur
frá íþróttakeppni, sem við ætlum
að efna til meðal 11—13 ára barna. "WKK
Alls munu böm á þessum aldri SÍ'
vera nálægt 12.000 á öllu landinu, •* »
svo þetta verður ein fjölmennasta ggj
íþróttakeppni, sem haldin hefur §1
verið á íslandi. Sigurður Heigason.
í Noregi var í fyrra háð keppni
í svipuðu formi og tóku þátt í
henni 47.000 norsk börn. í næsta blaði segi ég ykkur nánar
frá þeirri keppni.
í þessu blaði fáið þið kennsluþætti í hástökki og knatt-
kasti með skýringarmyndum. Er þá ekkert því til fyrir-
stöðu, að þið getið byrjað að æfa ykkur.
í þessu blaði er einnig ávarp Skúla Þorsteinssonar, f°’
manns Sambands íslenzkra barnakennara, mynd og
um bezta hástökkvara íslands, Jón Þ. Ólafsson og Sel
er glæsilegra verðlauna, sem veita á þeim einstakling11^
dreng og stúlku, er sigur hljóta í úrslitakeppnin111
Reykjavík næsta sumar.
Ég óska ykkur svo góðs gengis við æfingar ykkar, se|I
íjjö
þið skuluð stunda reglulega og skynsamlega, svo í
öðlist við þær aukið líkamsþrek og lífsánægju.
Mér þætti vænt um að fá að heyra frá ykkur við tíC^,
færi. Þið megið einnig skrifa, ef ykkur vanhagar utn 11 al1
ari upplýsingar eða annað varðandi keppnina.
Með beztu kveðju.
Fyrir hönd Frjálsíþróttasambands íslaIl£^
Sigurður Helgason,
Laugargerðisskóla,
Snæfellsnesi.
Eflaust hafið þið öll reynt að stökkva hástökk yfir
rá eða snúru og þá flest eins og stúlkan gerir á
mynd 1. Þið sjáið, að hún stekkur af vinstra l'æti og
sveiflar þeim hægri snöggt fram og upp samtímis
því, að hún spyrnir vel í með stökkfætinum. Hönd-
unum lyftir hún einnig fram í uppstökkinu. Þegar
hún hefur náð svo til fullri hæð, lyftir hún stökk-
fætinum yfir og færir um leið hægri fótinn niður.
Takið eftir, að hún vindur sig að ránni um leið
og hægri fóturinn fer yfir. Margar íþróttakonf1
nota þessa stökkaðferð í liástökki, meðal þeirra
Balas írá Rúmeníu, sem á heimsmetið í þessan
grein, hefur stokkið 1,91 m.