Æskan - 01.09.1969, Qupperneq 4
Á stríðsárunum 1914—1918 var farið að
smíða tiltölulega stórar sprengjuflugvélar.
Ein þeirra var hin enska Vickers Vimy, sem
hafði tvo 380 ha. hreyfla. Eftir stríðið vildu
menn sýna fram á, að hægt væri að nota
flugvélar til ferða yfir úthöfin. Hinn 14. og
15. júní árið 1919 fóru Englendingarnir Al-
cock og Brown í Vickers Vimy flugvél fyrsta
viðkomulausa Atlantshafsflugið. Sama ár
flugu tveir enskir flugmenn, bræðurnir
Ross og Keith Smith, í Vickers Vimy tví-
vængju frá Englandi til Ástralíu.
starfa hér á landi á okkar mælikvarða tvö
stór flugfélög, sem halda uppi tíðum ferð-
um milli staða innan lands og milli landa.
Við eru ekki lengur einangruð þjóð. Land
okkar liggur nú um þjóðbraut þvera. Ómet-
anlegt er, hvílíkur ávinningur það er okkur,
bæði viðskiptalega og menningarlega. Sá
árangur, sem við (slendingar höfum náð í
flugmálum, er afleiðing mikils og óeigin-
gjarns starfs frumkvöðlanna og dugnaðar
og trúar þeirra, er síðar lögðu hönd á plóg-
inn. En varast skyldu menn að álíta flug-
mál okkar komin heil í höfn. Smæð þjóðar-
innar gerir okkur baráttuna að sumu leyti
erfiðari, og risarnir á alþjóðaflugleiðum
gerast æ umsvifameiri.
Á 50 ára afmæli flugs á Islandi á ég þá
ósk bezta, að þjóðin haldi svo á málum, að
um alla framtíð fljúgi fslenzkir menn fs-
lenzkum flugvélum milli landa og innan
lands. Sagan kennir oss, hvernig fer, þegar
samgöngumálin komast í eriendar hendur.
Flugvélar voru geysimikið notaðar f fyrri
heimsstyrjöldinni, 1914—1918, og þá kom
fram mikill fjöldi nýrra gerða. Ein slfk var
Ella Fitzgerald
Ameríska jazz- og dægurlaga-
söngkonan Ella Fitzgerald hefur
lengi verið talin meðal fremstu
söngkvenna heimsins. Er hún kom
fyrst fram opinberlega 16 ára að
aldri, vann hún verðlaun á sam-
komu, þar sem nýliðar með sér-
staka hæfileika reyndu sig. Hljóm-
sveitarstjórinn Chick Webb var
meðal áheyrenda, og hann bauð
Ellu að starfa með hljómsveit hans.
Áður en hann lét hana koma fram
og syngja með hljómsveitinni,
kenndi hann henni og leiðbeindi
vandlega. Þegar hann taldi hana
nægilega vel undirbúna, lét hann
hana syngja með hljómsveitinni.
Innan eins árs var hún mest um-
talaða söngkonan í tónlistarheim-
inum.
Ella Fitzgerald starfaði áfram
með hljómsveit Chicks Webbs, þar
til hann lézt fimm árum síðar.
Chick Webb mat Ellu svo mikils,
að hann fól henni stjórn hljóm-
sveitarinnar eftir sinn dag. Hún hélt
hljómsveitinni saman um eins árs
skeið, þar til hún sjálf fór að starfa
sjálfstætt. Að undanskildum þeim
leiðbeiningum, sem Ella Fitzgerald
fékk hjá Chick Webb, hefur hún
ekki notið verulegrar tilsagnar í
söngtækni og raddbeitingu. Hins
vegar eru fáar söngkonur, sem
jafnast á við hana að því er snert-
ir hljómfall og hljómfegurð radd-
arinnar.
Frá árinu 1946 hefur Ella Fitz-
gerald farið árlega hljómleikaför
um Bandaríkin, Evrópu og Japan
með hljómsveitinni „Jazz at the
Philharmonic“ í New York. Hún
hefur sungið í öllum hljómleika-
sölum og næturklúbbum Banda-
rikjanna og Kanada og á miklum
vinsældum að fagna í Evrópu.
Þegar hún er ekki á ferðalegi lifir
hún kyrrlátu lífi á fallegu heimili
sínu í Beverly Hills í Kaliforniu.
Sonur hennar Ray Brown yngri,
sem er 16 ára að aldri, leikur á
trommur með skólahljómsveit þar.
hin þýzka einsætis orustuflugvél, Fokker
D VII, sem kom fram í stríðslokin. Þessi
vél var byggð af hollenzka flugvélasmiðn-
um Anthony Fokker, sem þá starfaði I
Þýzkalandi. Fokker D VII var fyrsta ílug-
vélin með hinn svokallaða þykka burðar-
væng, það er að segja, vængurinn var
gerður stífur innan frá. Þessi stórmerka
nýjung losaði ílugvélarnar við víra þá og
stoðir, sem svo einkenndu flugvélar þessa
tíma.
360