Æskan - 01.09.1969, Side 47
SPURNINGAR OG SVÖR
JAZZKÓNGUR
Svar til Finnboga: Louis Armstrong er fæddur árið 1000. Faðir
lians yfirgaf fjölskylduna áður en Louis var ársgamall og unz
hann var fimm ára gamall var hann hjá ömmu sinni. Þá var hann
sendur aftur til móður sinnar. Lífið var aldrei auðvelt eða fagurt.
Negrahverfið sem Louis ólst upp i var hættulegt og sóðalegt.
Hver stjúpfaðirinn af öðrum Lom og fór. Umskiptastundin í ævi
hans kom. þcgar hann var ellefu ára gamll. Það voru inikil hátiða-
höld um jólin í borginni, og mikiar dýrðir á götum úti. Louis
fann hlaðna skammhyssu og elti múginn á götunni.
Um miðnæturskeið skaut hann út í loftið, og var samstundis
tekinn fastur af hvítum leynilögreglumanni. Afleiðingin varð sú,
að ungiingadómur dæmdi hann til dvalar i eins konar unglinga-
betrunarhús.
Þetta heimili hafði ágæta hljómsveit, sem oft var fengin til uð
leika i skrúðgöngum i horginni. Louis var söngvinnari en hann
vissi sjálfur. Hann var fyrst iátinn slá tambúrínur og seinna tók
hann próf á aitsaxófón. Og að iokum varð iiann stjórnandi hljóm-
sveitarinnar.
Louis leið vel. Tónlistin var aðaláhugamál lians, og hann kærði
sig ekki um að yfirgefa heimilið, þegar faðir hans kom með
hvítan mann með sér tii að tala máii Jians.
Árið eftir að Louis var iaus frá betrunarhúsinu fékk hann fyrsta
starfið i hljómsveit. En framasaga Louis byrjaði fyrst þegar hann
komst í kynni við Joe Oliver. Oliver kenndi Louis að lesa nótur,
°g þegar Oliver fór til Chicago, fékk Louis stöðu hans. Eftir þetta
lék hann á fijótahátum á Mississippifljóti.
Fjórum árum seinna, þegar Oliver var orðinn djazzkóngur i
Cliicago, gerði hann Louis orð að koma í hljómsveit sína. Nú lék
allt í lyndi. Vinsældir þeirra Olivers og Louis voru geysilegar.
Hftir það stóð frægðarhrautin opin.
Louis Armstrong hefur farið hljómleikaferðir um allan heim,
°g alls staðar lilotið geysigóðar viðtökur. Til íslands kom hann
fyrir nokkrum árum. Louis leggur mikið á sig á hverjum liljóm-
leikum. Svitinn flæðir um hann í stríðum straumum og froða
vellur út úr báðum munnvikjum. í lok hverrar sýningar fer hann
í bað og þvær sér um hárið, 24 vasaklútar eru partur af sviðs-
útbúnaði lians,
Twiggy 1 árs.
Síðustu fréttir af TWIGGY
Svar til Jónínu: Twiggy sú heimsfræga sýningarstúlka saman-
stendur kannski að langmestu leyti af beinum og skinni en liún
getur reyndar líka státað af hrokknu hári. Sína hrokknu lokka
getur liún þakkað hárgreiðslumeistara sínum í Chelsea, en hann
fann upp fyrir tveimur árum hina vinsælu Twiggy-hárgreiðslu.
sem átti sinn þátt i þeirri skjótu frægð sem Twiggy fékk. •— Nú
liefur Twiggy endurgoldið rakaranum frá Chelsea þennan greiða
við sig, með því að stofna með honum fyrirtæki. Þau hyggjast Jiú
í sameiningu opna hárgreiðslustofur á víð og dreif um England.
Með þessu hefur Twiggy enn aukið við verzlunarveldi sitt, en áður
en þessar hárgreiðslustofur komu til, þá rak hún, og rekur enn
ljósmyndastofu og fataverzlun, en auk Jiess hefur hún lagt eitt-
livað fé í kvikmyndir.
Twiggy i dag.
403