Æskan - 01.09.1969, Side 55
141. HEIÐA er harðánægð með nýja heimilið sitt. Þegar Pétur kemur í heimsókn tekur hún
hann sér við hönd og sýnir honum alla dýrðina. Fyrst sýnir hún honum herbergið sitt, svo stóra
eldhúsið og litiu stofuna hans afa. Þau ganga út úr stofunni: „Þetta ætlum við ekki að nota, svo
að það gerir ekkert til, þó að rúður vanti hér í fallegu bogagluggana,“ segir Heiða. „En sjáðu,
hve fagurlega vafningsviðurinn vindur sig kringum hann.“ — 142. „OG sjáðu hérna,“ segir
Heiða, þegar þau koma inn í næsta herbergi. „Sjáðu fallegu súlurnar, sem bera hvolfþakið. Afi
heldur, að það hafi verið bænahús. Þetta hefur einhvern tíma verið mjög fínt hús, heldur þú
það ekki, Pétur? Afi hefur stráð hér hálmi á gólfið, því að hér eiga geitur okkar að vera til
húsa.“ Þær liggja nú hér í hálminum og jórtra ánægðar á svipinn.
143. PÉTUR rennir sér í loftköstum með skólatöskuna á bakinu, en hann stanzar ekki hjá skól-
anum, heldur lætur sig renna alla leið niður i dalinn. Þegar þangað kemur, sér hann, að hann
verður enn einu sinni of seinn í skólann. Hann skrópar. Á heimleiðinni kemur hann við i skól-
anum og fylgir Heiðu heim. Þegar afi heyrir, að Pétur hefur skrópað, nær hann ekki upp í
nefið á sér, svo reiður er hann: „Hvað gerir þú, þegar geiturnar hlýða þér ekki?“ „Hirti þær,“
svarar Pétur. „Þá verður víst líka að hirta óhlýðna drengi," heldur afi áfram. „Næst þegar þú
skrópar, skalt þú koma til mín og fá ráðningu þá, sem þér ber.“ — 144. HEIÐA fær að fara með
Pétri í heimsókn til ömmu. Heiða er í hlýju kápunni frá Klöru. Hún segir Pétri heil ósköp um
geiturnar og nýja húsið, en Pétur hlustar alls ekki á hana. Hann er að hugsa um ráðninguna,
sem hann á í vændum, ef hann skrópar aftur í skólanum. „Betra er nú fyrir mig að sækja skól-
ann, heldur en að sækja til afa það, sem hann var að tala um,“ segir Pétur stuttur í spuna. „Þetta
er rétt af þér, Pétur,“ segir Heiða.
Hin fræga enska poppsöng-
kona, Lule, giftist nýlega hinum
heimsfræga hljómlistarmanni
^aurice Gee, en hann er einn
úr hinni frægu hljómsveit Bee
Gees. Myndin sýnir brúðhjónin,
er þau koma úr kirkju eftir
brúðkaupið.
JUDY GARLAND
Söng- og leikkonan heims-
,r®9a, Judy Garland, lézt í
L°ndon 22. júní s.l. Hún var
fædd í Minnesota 10. júní árið
1923. Judy Garland var aðeins
þriggja ára, þegar hún kom
fyrst fram opinberlega. Hún lék
f um 40 kvikmyndum, þeirri
fyrstu 1935, þegar hún var 13
ára. Skömmu eftir 1950 neydd-
ist hún.til að hætta kvikmynda-
leik vegna heilsuleysis, en hélt
áfram að syngja, hvenær sem
tækifæri gafst. Gekk það hálf
illa, þvf að hún varð oft að af-
lýsa söngskemmtunum vegna
veikinda. Síðasti eiginmaður
Judy Garland var Mickey Deans,
og var hann fimmti eiginmaður
leikkonunnar.
411