Æskan - 01.03.1973, Blaðsíða 44
Fyrir eldri
börnin
Draumaráðningar
Bruni. — Að brenna sig boðar mjög
hamingjusama framtið. Að sjá húsbruna
boðar venjulega þeim, er dreymir, allgóða
stöðu og afkomu.
Brunnur. — Að sækja hreint vatn i brunn
boðar góða framtíð. Að detta i brunn
boðar sorg.
Bújörð. — Að búa á góðri bújörð boðar,
að þú skalt fara varlega í öllum peninga-
málum.
Bursti. — Að snerta hárbrodda á bursta
merkir, að þú munt fá ný glæsileg föt.
Busl. — Að busla í sjó boðar að betra
er að vera varkár í viðkynningu við ókunn-
ugt fólk.
Bæn. — Að biðja bæn táknar gott líf og
hamingjuríkt.
Byssa. — Að skjóta af byssu þýðir, að
þú munt ganga í hjónaband bráðlega.
Biómvöndur. — Ef unga stúlku dreymir,
að elskhugi hennar færi henni blómvönd,
merkir það, að langt verði þangað til hún
giftist. — Ef ungan mann dreymir, að
hann gefi blómvönd á brúðkaupsdegi lienn-
ar, merkir það, ai5 hann muni missa vin
sinn eða unnustu.
D
Dádýr. — Að sjá dádýr er oftast fyrir
fjárhagslegu tapi.
Dalur. — Að ganga um dal boðar nýtt
hcimili eða laslcika.
Dans. — Að vera að dansa er fyrir vel-
gcngni í ástum og störfum. Að sjá aðra
dansa boðar vináttuslit og vonbrigði.
Dauði. — Að dreyma sig látinn merkir
auðlegð og langlífi. Að sjá mann deyja:
ástvinamissir. Deila eða handalögmál við
látið fólk: lífsháski. Að kyssa látinn mann:
veikindi. Að ræða við látið fólk: bending
um að störfin má rækja betur. Að gefa
iátnum gjafir: eignatjón.
Deila. — Deila getur verið fyrir mildum
erfiðleikum, sem verða á vegi þinum, en
sem hægt er að yfirstíga með þolinmæði.
Demantar. — Að eiga mikið af demönt-
um boðar sorg og tjón. Að taka demanta
upp: spilltir framtíðarmöguleikar. Að fá
demanta að gjöf: óvildarmaður.
Draugur. — Að sjá draug eða vofu, sem
veldur þér ótta, er fyrir mikilli hamingju
i hjónabandi þínu.
t •• • %•* •'• V X '< v .... -v • v
—- ' ' ■ -•
/r- r A f
Draumur. — Að ráða í svefni draum sinn
eða segja öðrum er fyrir markverðum tið-
indum.
Dýr. — Að dreyma dýr eða fugl i draumi
er happamerki.
Drukknun. — Dreymi mann, að hann sé
að drukkna, er það heillatákn.
Drykkir. — Of heitir, of kaldir, beiskir
eða óhreinir drykkir eru fyrir sjúkdómi
eða öðru mótlæti. Að drckka kalt vatn:
falskir vinir. Að drekka kaffi eða sæta
drykki: slæmar fréttir. Að drckka mjólk:
auðlegð. Að kasta upp drykk: atvinna i
hættu.
Dúfa.Að dreyma dúfu er fyrir mik-
illi gæfu, einkum ef unga stúlku dreymir.
Að sjá dúfu fljúga boðar oft sendibréf.
Að eignast dúfur: hamingjusöm ást.
Dulbúningur. — Að dulbúa sig i draumi
á einhvern hátt er oft fyrirboði þess, að
þú kemur á heimili, þar sem sorg rikir.
Dvergur. — Það er talið hamingjutákn
að dreyma dverg, boða góða heilsu og af-
komu.
Dyr. — Að berja að dyrum ög ganga inn
er góður draumur. Að halda sig vera lok-
aðan úti: áhugamál inisheppnast. Að sjá
brotnar dyr: veikindi í þvi liúsi. Hurðar-
lausar dyr: óviss framtíð. Að berja á læst-
ar dyr: vondur fjárhagur. Að koma að
opnum dyrum: góð framtíð.
Dýr. — Að sjá hund merkir góðan vjn.
Að sjá dýr hlaupa: óvæntar fréttir. Að
heyra dýr tala: sorg.
Dæla. — Að dæla hreinu vatni er góður
fyrirboði, einkum fyrir þá, sem fást við
verzlun. Sé vatnið óhreint, getur draum-
urinn haft gagnstæða merkingu.
Þegar við drögum lyklaklpPu
upp úr vasanum, hugsum við
venjulega ekkl út i það, að sama
máli gegnir um læslngar °9
lykla eins og flestar aðrar upp
götvanlr — miklar breyting31"
hafa átt sér stað á þeim fra
því að fyrstu tilraunirnar voru
gerðar.
Elztu læsingarnar, sem þekk
ar eru, hafa fundizt í rústunúff1
af fornri, egypzkri höll. Læsing-
In er svipuð og sýnt er á myn
1. Gríðarstórum trélykli var y
Inn í bjálkann, sem lokaði dyr
unum að innanverðu. Á lyklinum
voru þrjú lóðrétt hök, og þe9ar
honum var lyft, meðan hann
sat Inni í bjálkanum, ýtti hann
þremur lokum nægilega ha
upp til þess að bjálkinn f
niður.
Lyklar Forn-Grikkja voru bun-
ir til sem innsigli (mynd 2).
voru þeir skreyttir gulli og si
og með fílabeinsskafti. Þeir voru
svo þungir, að menn báru Þ
venjulega um öxl.
Aftur á móti voru lásarnir sv
einfaldlr, að það gerði ekker^
til, þó að maður gleymdi lyk m-
um, það var auðvelt að opna
lásinn með venjulegum nagla-
42